Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)
Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á gjaldaákvæði hafnalaga nr. 61/2003.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-93/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. júní 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 17 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (17)
- #1Samtök sunnlenskra sveitarfél
Meðfylgjandi er umsögn SASS.
- #2Skagafjörður
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að ráðist sé í vinnu við endurskoðun hafnalaga og tekur undir mikilvægi þess að skýra lagagrundvöll gjaldtöku hafna. Hafnir gegna lykilhlutverki í innviðum landsins og eru undirstaða atvinnulífs víða um land. Þá eru hafnir mikilvægar fyrir þróun ferðaþjónustu með móttöku skemmtiferðaskipa, sér í lagi á svæðum sem eru utan alfararleiðar. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að hafnir geti staðið undir fjárfestingum í uppbyggingu mannvirkja til að styðja við framtíðartækifæri í atvinnuþróun viðkomandi svæða. Í þessu samhengi bendir byggðarráð á að hafnarmannvi… Lesa alla
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að ráðist sé í vinnu við endurskoðun hafnalaga og tekur undir mikilvægi þess að skýra lagagrundvöll gjaldtöku hafna. Hafnir gegna lykilhlutverki í innviðum landsins og eru undirstaða atvinnulífs víða um land. Þá eru hafnir mikilvægar fyrir þróun ferðaþjónustu með móttöku skemmtiferðaskipa, sér í lagi á svæðum sem eru utan alfararleiðar. Þess vegna er sérstaklega mikilvægt að hafnir geti staðið undir fjárfestingum í uppbyggingu mannvirkja til að styðja við framtíðartækifæri í atvinnuþróun viðkomandi svæða. Í þessu samhengi bendir byggðarráð á að hafnarmannvirki eru fjárfrekir innviðir þar sem uppbygging, viðhald og endurnýjun mannvirkja krefst verulegrar langtímafjárfestingar sem erfitt er að standa undir eingöngu með rekstrartekjum, sérstaklega í smærri byggðarlögum. Hafnarbótasjóður gegnir þar lykilhlutverki við að jafna aðstöðu hafna og tryggja að unnt sé að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir þrátt fyrir mismunandi rekstrarforsendur og tekjugrunn. Byggðarráð leggur áherslu á að samhliða skýrari heimildum til gjaldtöku verði tryggt að fjármögnunarumhverfi hafna sé heildstætt og stöðugt, þar sem samspil tekna hafnarsjóða og framlaga úr Hafnabótasjóði gerir höfnum kleift að fjárfesta í uppbyggingu til framtíðar. Nauðsynlegt er að ríkið tryggi sjóðnum nægilegt fjármagn til að unnt sé að standa undir mótframlögum til fjárfestinga í hafnarmannvirkjum, enda eru slík verkefni forsenda áframhaldandi atvinnuuppbyggingar og byggðaþróunar. Byggðarráð bendir þá einnig á að hafnir eru sér skipulagssvæði. Hagræða mætti í stjórnsýslu sveitarfélaga ef skipulagsmál sveitarfélagsins í heild væru á einni hendi, það er skipulagsnefndar hvers sveitarfélags fyrir sig.
- #3Erna María Svavarsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn Reykjanesbæjar.
- #4Múlaþing
Meðfylgjandi er umsögn byggðaráðs Múlaþings
- #5Hafnasamband Íslands
Meðfylgjandi er umsögn stjórnar Hafnasambands Íslands.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.