Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-87/2026 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda (leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi)

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda um leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september); 158. þing (áætlað: september).

Áformað er að leggja fram frumvarp þar sem lagðar eru til breytingar á á lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda. Frumvarpið er samið af starfshópi þriggja ráðuneyta, þ.e. umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, utanríkisráðuneytis og atvinnuvegaráðuneytis auk fulltrúa frá Umhverfis- og orkustofnun. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda. Markmið frumvarpsins er að tryggja skýran lagamma um heimildir til að stunda rannsóknir í hafinu umhverfis Ísland, á sviði loftslagsverkfræði („marine geoengineering“) sem og tryggja skilvirkni í málsmeðferð. Samkvæmt 9. gr. laga nr. 41/1979 um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn eru vísindalegar rannsóknir háðar samþykki stjórnvalda, en framkvæmd þeirra laga hefur verið á forræði utanríkisráðuneytisins og miðast einkum við rannsóknir erlendra ríkja og alþjóðastofnana. Hagkvæmast er að færa stjórnsýslu vegna starfsemi er lýtur að loftslagsverkfræðilegum rannsóknum til Umhverfis- og orkustofnunar í ljósi þess að sú stofnun fer m.a. með loftslagsmál og mengunarvarnir. Ljóst er að aukin eftirspurn er eftir leyfum vegna slíkra rannsókna og því mikilvægt að lög og reglur séu skýrar til að tryggja skilvirkni í afgreiðslu mála. Meginregla í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda er sú að óheimilt er að varpa efnum og hlutum í hafið. Umhverfis- og orkustofnun getur hins vegar veitt leyfi fyrir því að ákveðnum hlutum og efnum sé varpað í hafið. Það er háð mati hverju sinni hvort um varp í hafið er að ræða eða ekki, en það að koma fyrir efnum eða hlutum í hafinu í öðrum lögmætum tilgangi en að farga þeim, telst t.a.m. ekki varp í hafið auk annarra tilvika. Í frumvarpinu er lögð til sú meginbreyting að Umhverfis- og orkustofnun geti veitt leyfi fyrir vísindalegum rannsóknum er varða loftslagsverkfræðilegar aðgerðir í hafi í rannsóknarskyni. Ákvæðið byggir á breytingum á Lundúnabókuninni (Resolution LP.4(8)) og gerir kröfu um að slíkar rannsóknir séu lögmætar vísindarannsóknir og háðar mati á áhrifum samkvæmt matsviðmiðum sem samþykkt hafa verið af samningsaðilum og leyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Um er að ræða loftslagsverkfræðilegar rannsóknir í hafi, sem m.a. er ætlað að vinna gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum. Með því er tryggt að Ísland uppfylli alþjóðlegar skyldur sínar um verndun hafsins gegn mengun sem getur hlotist af slíkum aðgerðum. Gildandi lög hafa ekki veitt stjórnvöldum nægilega skýrar heimildir til að hafa eftirlit með eða takmarka rannsóknir einkaaðila á hafi, þegar um er að ræða nýstárlegar aðferðir eins og loftslagsverkfræðilegar rannsóknir (t.d. örvun frumframleiðni með dreifingu á næringarefnum s.s. járni, köfnunarefni og fosfór í því skyni að auka kolefnisbindingu).

S-87/2026· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 10. jún. 2026 – 7. júl. 2026· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda (leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi)

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda um leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-87/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. júlí 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 203)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
  • #1Festa - miðstöð um sjálfbærni
    Festa - miðstöð um sjálfbærni fagnar því að færa eigi forræði yfir leyfisveitingar vegna rannsókna í hafi frá utanríkisráðuneyti til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Í ljósi þess að allar þjóðir heims eru þessa dagana að keppast við að draga úr magni gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti og veikja þannig áhrif loftslagsbreytinga má leiðar líkur að því að ásókn í rannsóknir tengdar loftslagsverkfræðilegum lausnum í hafi muni eingöngu aukast á næstu árum og áratugum. Það er bagalegt ef fyrirkomulag stjórnsýslu kemur í veg fyrir þekkingarsköpun og þróun nauðsynlegra lausna í þessum mála… Lesa alla

    Festa - miðstöð um sjálfbærni fagnar því að færa eigi forræði yfir leyfisveitingar vegna rannsókna í hafi frá utanríkisráðuneyti til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Í ljósi þess að allar þjóðir heims eru þessa dagana að keppast við að draga úr magni gróðurhúsalofttegunda í andrúmslofti og veikja þannig áhrif loftslagsbreytinga má leiðar líkur að því að ásókn í rannsóknir tengdar loftslagsverkfræðilegum lausnum í hafi muni eingöngu aukast á næstu árum og áratugum. Það er bagalegt ef fyrirkomulag stjórnsýslu kemur í veg fyrir þekkingarsköpun og þróun nauðsynlegra lausna í þessum málaflokki. Þess fyrir utan er afar mikilvægt að fagleg þekking verði lögð til grundvallar leyfisveitingarskilmálum, vöktun og eftirfylgni rannsókna á hafi, enda eru lífríki hafsins nú þegar undir álagi og stórar atvinnugreinar reiða sig á heilbrigði þessara vistkerfa. Því er þessi tilfærsla ábyrgðar á milli ráðuneyta afar jákvætt skref við að ryðja hindrunum úr vegi fyrir ábyrgri nýsköpun og verðmætum rannsóknum. Eftir sem áður kallar leyfisveiting fyrir rannsóknir í hafi á samstarf fleiri stofnana, þvert á ráðuneyti og er það óskandi að hugað verði vel að öllum skýrleika í kringum innleiðingu og framkvæmd frumvarpsins ásamt skörun við önnur lög og/eða aðgerðaráætlanir. Fyrir hönd Festu, Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastýra.

  • #2Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

    Meðfylgjandi er umsögn Heilbrigðiseftirlit Vesturlands.

  • #3Röst sjávarrannsóknasetur ehf.
    Röst sjávarrannsóknasetur fagnar framkomnum áformum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004, sem varða leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi á sviði loftslagsverkfræði. Að mati Rastar er mikilvægt og tímabært að koma þessum málaflokki í betra, skýrara og faglegra horf. Hafið gegnir lykilhlutverki í loftslagskerfi jarðar og rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga, kolefnisbindingu og mögulegum loftslagslausnum eru mikilvægar til að byggja ákvarðanir framtíðarinnar á traustum vísindalegum grunni. Um leið er ljóst að rannsóknir sem var… Lesa alla

    Röst sjávarrannsóknasetur fagnar framkomnum áformum um frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004, sem varða leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi á sviði loftslagsverkfræði. Að mati Rastar er mikilvægt og tímabært að koma þessum málaflokki í betra, skýrara og faglegra horf. Hafið gegnir lykilhlutverki í loftslagskerfi jarðar og rannsóknir á áhrifum loftslagsbreytinga, kolefnisbindingu og mögulegum loftslagslausnum eru mikilvægar til að byggja ákvarðanir framtíðarinnar á traustum vísindalegum grunni. Um leið er ljóst að rannsóknir sem varða loftslagsverkfræðilegar aðgerðir í hafi geta snert viðkvæm vistkerfi og kalla því á skýran lagaramma, faglegt mat, gagnsæi og virkt eftirlit. Röst styður sérstaklega að áformað sé að færa stjórnsýslu leyfisveitinga vegna slíkra rannsókna til þess ráðuneytis og þeirrar stofnunar sem búa yfir viðeigandi fagþekkingu á umhverfis-, orku-, loftslags- og mengunarmálum. Með því að Umhverfis- og orkustofnun fái skilgreint hlutverk í leyfisveitingum og eftirliti má gera ráð fyrir upplýstari, skilvirkari og gagnsærri málsmeðferð. Slík breyting er til þess fallin að auka fyrirsjáanleika fyrir rannsakendur, styrkja stjórnsýslu málaflokksins og tryggja að mat á umsóknum byggist á viðeigandi sérfræðiþekkingu. Röst telur einnig mikilvægt að frumvarpið skapi skýrari farveg fyrir lögmætar vísindarannsóknir. Mikilvægt er að greina með skýrum hætti á milli annars vegar vísindarannsókna sem hafa það að markmiði að afla þekkingar, meta áhrif og skilja mögulegar loftslagslausnir, og hins vegar eiginlegra loftslagsverkfræðilegra aðgerða eða viðskiptalegrar hagnýtingar á stórum skala. Slík aðgreining er nauðsynleg til að tryggja að reglur sem ætlað er að bregðast við mögulegri umhverfisáhættu skapi ekki óþarfa hindranir fyrir lögmætar, smáskala og vel vaktaðar rannsóknir. Að mati Rastar er frumvarpið jafnframt mikilvægt vegna þess að það samræmir íslenska löggjöf betur alþjóðlegum viðmiðum og þeirri þróun sem átt hefur sér stað á vettvangi Lundúnasamningsins, Lundúnabókunarinnar og annarra alþjóðlegra ferla. Alþjóðleg umræða um kolefnisbindingu og aðrar mögulegar loftslagslausnir undirstrikar þörfina fyrir aukna vísindalega þekkingu. IPCC hefur bent á að kolefnisbinding verði nauðsynlegur þáttur í að ná markmiðum um kolefnishlutleysi, samhliða tafarlausum og afgerandi samdrætti í losun. Vísindastofnanir og sérfræðingar um allan heim kalla eftir auknum, ábyrgum og vel vöktuðum rannsóknum, meðal annars á möguleikum tengdum kolefnisbindingu í hafi. Enn er mikil óvissa um hvaða aðferðir kunna að reynast árangursríkar og raunhæfar til lengri tíma. Þess vegna er mikilvægt að stjórnvöld skapi ramma sem gerir vandaðar rannsóknir mögulegar, án þess að slakað sé á kröfum um varúð, umhverfisvernd og gagnsæi. Röst tekur undir að nýr lagarammi geti skapað ábyrgð í báðar áttir. Annars vegar fá stjórnvöld skýrari heimildir til að meta, setja skilyrði fyrir eða synja umsóknum sem kunna að hafa skaðleg áhrif á umhverfi eða lífríki. Hins vegar fá rannsakendur skýrari og skilvirkari leið til að sækja um leyfi fyrir lögmætu rannsóknarstarfi. Þetta er mikilvægt til að byggja upp traust milli stjórnvalda, vísindasamfélagsins, almennings og annarra hagaðila. Röst vill þó leggja sérstaka áherslu á að við meðferð frumvarpsins og við setningu afleiddra reglugerða og stjórnsýsluferla verði þess gætt að frumvarpið skapi ekki óæskilegar eða illa ígrundaðar hindranir fyrir vísindarannsóknir. Skilgreiningar, túlkun og framkvæmd þurfa að vera nægilega skýrar til að koma í veg fyrir að lögmætar rannsóknir verði ranglega samsamaðar fullskala loftslagsverkfræðilegum aðgerðum. Sérstaklega þarf að tryggja að smáskala, tímabundnar, afturkræfar og vel vaktaðar rannsóknir sæti málsmeðferð sem er í eðlilegu samræmi við umfang þeirra og áhættu. Í því samhengi leggur Röst til að í áframhaldandi vinnu verði lögð áhersla á eftirfarandi atriði: 1) Skýr greinarmunur verði gerður á vísindarannsóknum og eiginlegum loftslagsverkfræðilegum aðgerðum 2) Leyfisferlið verði áhættumiðað og taki mið af umfangi, eðli og mögulegum áhrifum hvers verkefnis 3) Kröfur um gögn, mat og eftirlit verði skýrar, fyrirsjáanlegar og í samræmi við bestu fáanlegu vísindalegu þekkingu Málsmeðferð verði skilvirk og gagnsæ, með skýrum tímamörkum eftir því sem við á 4) Samráð verði tryggt við viðeigandi fagstofnanir, rannsóknaraðila og hagaðila 5) Gjaldtaka vegna leyfisveitinga og eftirlits verði hófleg, gagnsæ og ekki til þess fallin að hindra minni rannsóknarverkefni eða nýsköpun á sviði haf- og loftslagsvísinda Röst telur að Ísland, sem hafþjóð, hafi bæði tækifæri og ábyrgð til að vera í fremstu röð í hafvísindum. Skýr, fagleg og varfærin umgjörð um rannsóknir í hafi getur stutt við þá sýn, aukið þekkingu á hafinu við Ísland og stuðlað að betri skilningi á áhrifum loftslagsbreytinga á norðlæg hafsvæði. Röst styður því meginmarkmið frumvarpsins og fagnar því að verið sé að skýra stjórnsýslu, ábyrgð og eftirlit með þessum mikilvæga málaflokki. Jafnframt hvetur Röst til þess að við áframhaldandi vinnu verði tryggt að lagaumgjörðin styðji við ábyrgar, lögmætar og vel vaktaðar vísindarannsóknir, samhliða öflugri vernd hafsins. Virðingarfyllst, -- Birkir Bárðarson Forstöðumaður | Röst Sjávarrannsóknasetur

  • #4Bára A. Alexandersdóttir

    Hjálögð er umsögn Sjálfbærni- og loftslagsréttarstofnunar Háskólans í Reykjavík (CLoCCS).

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-87/2026: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda (leyfisveitingar vegna vísindarannsókna í hafi) · Alviti