Breytingar á raforkulögum (verkefni Raforkueftirlitsins)
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir drög að frumvarpi til laga um breytingar á raforkulögum nr. 65/2003.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-58/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. apríl 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 19 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (19)
- #1Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Landverndar. Bestu kveðjur, Þorgerður María Þorbjarnardóttir Formaður
- #2Ólafur Hjördísarson Jónsson
Raforkuverð á Íslandi og samsetning þess. Í dag skiptisti endanlegt “Raforkuverð” í 2 liði. (ca 50-50 hjá heimili.) 1. Raforka 2. Flutningskostnaður. Ég ætla að fá að gera athugasemd við seinni liðinn. Samkvæmt reglum Evrópusambandsins er kostnaður við flutning á rafmagni eftirfarandi. * Network charges are applied by the companies that manage the electricity grids, under the supervision of the national energy regulatory authorities. * Grids transport electricity from where it is produced to where it is consumed. * Network charges contribute to the cost of expanding, maintaining, up… Lesa alla
Raforkuverð á Íslandi og samsetning þess. Í dag skiptisti endanlegt “Raforkuverð” í 2 liði. (ca 50-50 hjá heimili.) 1. Raforka 2. Flutningskostnaður. Ég ætla að fá að gera athugasemd við seinni liðinn. Samkvæmt reglum Evrópusambandsins er kostnaður við flutning á rafmagni eftirfarandi. * Network charges are applied by the companies that manage the electricity grids, under the supervision of the national energy regulatory authorities. * Grids transport electricity from where it is produced to where it is consumed. * Network charges contribute to the cost of expanding, maintaining, upgrading and managing the grids. https://energy.ec.europa.eu/topics/markets-and-consumers/electricity-prices_en Þar kemur fram að flutningaskostnaður er fundin út frá kostnaði við að byggja upp kerfið, uppfæra og reka rafmagnsnetið. Það stendur ekkert um að þessi liður þurfi að vera háður lið 1. þegar fundið er út endanlegt raforkuverð til neytandans. (eins og er hér á landi). Á island í dag er flutningsliðurinn í raforkuverði tengdur við raforkuna sem viðkomandi notandi notar. Ég vil meina að það sé kolröng nálgun og mun leiða til þess að kerfið verði ekki sjálfbært til lengri tíma. (Kerfið minnkar ekki þó að rafmagnstæki framtíðarinnar noti minna rafmagn.). Dæmi: Lampar í gróðurhúsi nota nú minna en 10% þeirrar orku sem gömlu lamparnir notuðu.). Tengingin og kostnaður við flutningin breytist ekki eða var að minnsta kosti ekki 90% lægrti. Lausn: Flutningskostnaður rafmagns á að miðast við tengingu húsnæðis (nefskattur) og vera óháð magni orku sem um tenginguna fer. Dæmi: Íbúð með X amper inn borgar X mikið á ári og Gróðurhús borgar XYX á ári fyrir XYX amperfjölda hjá sér, óhátt notkun. Ergo: Það kostar það sama að vera með hús tengt við kerfið sem notar ekkert rafmagn og hús sem notar mikið rafmagn. Þessi nálgun er að mínu mati mun heiðarlegri heldur en núverandi nálgun, þar sem núverandi nálgun er ekki rökrétt og getur ekki gengið til framtíðar. Best kveðjur Ólafur Hjördísarson Jónsson arkitekt ojonsson@icloud.com
- #3Friðrik Björgvinsson
Umhverfis,- orku- og loftlagsráðuneytið þriðjudagur, 7. apríl 2026 Sent á samráðsgátt Umsögn um frumvarp til breytinga á raforkulögum nr. 65/2003 (mál nr. S-58/2026 – verkefni Raforkueftirlitsins) ________________________________________ 1. Inngangur Umsögn þessi beinist sérstaklega að þeim þáttum frumvarpsins sem snúa að verðlagningu raforku, aðferðarfræði gjaldskrár og réttarstöðu notenda. Ekki er fjallað um frumvarpið í heild, heldur lögð áhersla á áhrif þess á almenna notendur, smærri fyrirtæki og byggðir þar sem raforka gegnir hlutverki grunninnviðar. ________________________________… Lesa alla
Umhverfis,- orku- og loftlagsráðuneytið þriðjudagur, 7. apríl 2026 Sent á samráðsgátt Umsögn um frumvarp til breytinga á raforkulögum nr. 65/2003 (mál nr. S-58/2026 – verkefni Raforkueftirlitsins) ________________________________________ 1. Inngangur Umsögn þessi beinist sérstaklega að þeim þáttum frumvarpsins sem snúa að verðlagningu raforku, aðferðarfræði gjaldskrár og réttarstöðu notenda. Ekki er fjallað um frumvarpið í heild, heldur lögð áhersla á áhrif þess á almenna notendur, smærri fyrirtæki og byggðir þar sem raforka gegnir hlutverki grunninnviðar. ________________________________________ 2. Raforka sem grunnþjónusta og neytendavernd Samkvæmt EES-regluverki er raforka hluti af innri markaði, en jafnframt þjónusta í almannaþágu þar sem aðildarríkjum er heimilt og skylt að tryggja aðgengi, öryggi og sanngjarnt verð til neytenda. Þessi tvíþætta staða felur í sér að þrátt fyrir markaðsfyrirkomulag er bæði heimilt og eðlilegt að móta reglur sem vernda almenna notendur og tryggja jafnræði. Í frumvarpinu er lögð rík áhersla á að styrkja aðferðarfræði og valdheimildir við ákvörðun gjaldskrár. Hins vegar er ekki sýnt fram á með skýrum hætti hvernig þessi breyting leiðir til sanngjarns verðs eða bættrar verndar fyrir heimili og smærri fyrirtæki. ________________________________________ 3. Aðferðarfræði og flækjustig gjaldtöku Frumvarpið felur í sér að ákvörðun aðferðarfræði gjaldskrár færist í auknum mæli frá lögum yfir til eftirlitsaðila, sem setur bindandi reglur um tekjumörk og gjaldskrár. Á sama tíma er raforkukerfið byggt upp af mörgum stigum: • framleiðslu, • flutningi, • dreifingu, • og sölu. Hver þessara þátta felur í sér eigin kostnað og í sumum tilvikum prósentubundna þóknun. Þannig getur gjaldtaka orðið marglaga, þar sem kostnaður safnast upp í gegnum virðiskeðjuna. Slík uppbygging leiðir eðli máls samkvæmt til aukins flækjustigs og minni gagnsæis. Ekki er sýnt fram á með fullnægjandi hætti hvernig þessi uppbygging leiðir til lægra verðs eða aukinnar hagkvæmni fyrir almenna notendur. Þvert á móti er hætta á að gjaldtaka verði síður rekjanleg og erfiðari fyrir notendur að skilja og meta. ________________________________________ 4. Aðfararhæfni gjaldtöku og réttarstaða notenda Gjaldtaka samkvæmt raforkukerfinu er aðfararhæf, óháð því hvort notandi samþykkir forsendur hennar eða ekki. Á sama tíma eru ekki tryggðar skýrar og raunhæfar leiðir til að fá efnislega endurskoðun á gjaldtöku áður en hún kemur til innheimtu. Þetta leiðir til þess að notendur bera fjárhagslega ábyrgð á gjaldtöku sem byggir á aðferðarfræði og kostnaðaruppbyggingu sem þeir hafa takmarkaða möguleika á að vefengja í framkvæmd. Frumvarpið styrkir þannig kerfið sem ákveður gjaldtöku, án þess að sambærileg styrking eigi sér stað á réttarstöðu notenda. ________________________________________ 5. Byggðasjónarmið og samfélagslega mikilvæg orkunotkun Frumvarpið tekur ekki með skýrum hætti tillit til þess að raforka gegnir mismunandi hlutverki eftir landsvæðum. Á köldum svæðum, þar sem aðgangur að jarðhita er takmarkaður eða enginn, er raforka ekki aðeins markaðsvara heldur grunnforsenda búsetu, atvinnu og samfélagslegrar virkni. Í slíkum tilvikum er raforkunotkun vegna húshitunar og tengdra innviða í eðli sínu hluti af samfélagslegum grunninnviðum. Ekki er að finna í frumvarpinu heimildir eða leiðir til að: • skilgreina slíka notkun sérstaklega, • eða móta gjaldskrár sem taka mið af byggðalegum aðstæðum og raunverulegri þörf. Án slíkra úrræða er veruleg hætta á að kostnaður við nauðsynlega orkunotkun verði hlutfallslega hærri á köldum svæðum, með neikvæðum áhrifum á búsetuskilyrði og byggðaþróun. ________________________________________ 6. Aðfararhæfni og eignarhald innviða Aðfararhæfni gjaldtöku í raforkukerfinu byggir á því að um sé að ræða innviði í almannaþágu. Ef aðfararhæf gjaldtaka í einokunarinnviðum er óbreytt en eignarhald færist til einkaaðila, eykst hætta á að slík gjaldtaka verði í auknum mæli nýtt til arðsemi fremur en þjónustu við almenning. Ef eignarhald eða rekstrarform breytist er því nauðsynlegt að meta sérstaklega hvort og með hvaða skilyrðum slík heimild sé áfram réttlætanleg. ________________________________________ 7. Áhrifamat og rökstuðningur Áhrifamat frumvarpsins byggir að mestu á almennum fullyrðingum um aukna hagkvæmni og fyrirsjáanleika, án þess að lagðar séu fram efnislegar greiningar á áhrifum á verð eða kostnað til almennra notenda. Þar er jafnframt bæði haldið fram að frumvarpið hafi ekki áhrif á almenning og að það bæti réttarstöðu notenda og stuðli að sanngjarnari gjaldskrám. Slík framsetning er ekki sjálfbær án frekari rökstuðnings og kallar á skýrari greiningu á raunverulegum áhrifum frumvarpsins. ________________________________________ 8. Niðurstaða Frumvarpið felur í sér verulegar breytingar á skipulagi og aðferðarfræði raforkukerfisins. Hins vegar er ekki sýnt fram á með fullnægjandi hætti að breytingarnar leiði til aukinnar hagkvæmni, lægra verðs eða bættrar stöðu almennra notenda. Í ljósi þess er mikilvægt að: • tryggja skýrari og virkari neytendavernd, • auka gagnsæi og rekjanleika í gjaldskrárgerð, • og taka með markvissari hætti tillit til byggðasjónarmiða og samfélagslegra innviða við frekari mótun lagaramma. ________________________________________ Friðrik Björgvinsson Iðnfræðingur. icefritz@gmail.com Vestmannaeyjar
- #4Mýsköpun ehf.
Meðfylgjandi er umsögn Ingólfs Bragi Gunnarssonar framkvæmdastjóra MýSköpunar ehf. Kveðja, Ingólfur Bragi Gunnarsson Framkvæmdastjóri MýSköpunar ehf.
- #5Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum
Meðfylgjandi er umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.