Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-56/2026 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynni áform um lagasetningu um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: nóvember).

Uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku á Íslandi hefur á undanförnum árum tafist verulega, oft vegna ágreinings um eignarnám, umráðatöku og fjárhæð eignarnámsbóta. Áskoranirnar liggja m.a. í núverandi lagaumgjörð sem setur ströng skilyrði fyrir upphafi framkvæmda og dregur úr fyrirsjáanleika. Þá hafa flókin leyfisferli á sviði umhverfis- og orkumála átt þátt í því hve hægt hefur gengið að koma nauðsynlegum innviðaframkvæmdum af stað. Stigin hafa verið skref til einföldunar stjórnsýslu og regluverks en áfram finnast kerfislægar hindranir sem draga þarf úr. Markmiðið er að stytta afgreiðslutíma og auka fyrirsjáanleika við uppbyggingu raforkuinnviða. Þetta verður m.a. gert með því að tryggja að ágreiningur um bótafjárhæð eða lögmæti eignarnáms verði ekki sjálfkrafa til þess að fresta nauðsynlegum framkvæmdum, að því gefnu að réttindi landeigenda séu tryggð með fullnægjandi hætti. Áform um lagasetninguna eru opin til samráðs til 26. mars.

S-56/2026· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. mar. 2026 – 26. mar. 2026· 28 umsagnir

Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynni áform um lagasetningu um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-56/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 26. mars 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 28 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (28)
  • #1Mánahlíð ehf.

    Jóhann Páll, ekki gleyma að þú ert umhverfisráðherra

  • #2Skagafjörður

    Byggðarráð Skagafjarðar tekur undir markmið um einföldun stjórnsýslu og regluverks en áform um skilvirkari málsmeðferð innviðaframkvæmda á borð við flutningskerfi raforku voru í stjórnarsáttmála fyrri ríkisstjórnar, líkt og þeirrar núverandi. Byggðarráð bendir eigi að síður á að friðhelgi eignarréttar er tryggður í stjórnarskrá Íslands og því þarf að vanda virkilega vel til mögulegra breytinga á lögum hvað þetta varðar. Tryggja þarf að hvati orkufyrirtækja til samráðs og samninga haldist og að eignarréttarákvæði stjórnarskrár verði ekki ógnað.

  • #3Borgarbyggð
    Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 737 dags. 19. mars 2026 voru til umræðu áform um lagasetningu er varða flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks og vareftirfarandi bókun samþykkt samhljóða: "Byggðarráð tekur undir að tilefni er til að skoða með hvaða hætti gera megi regluverk vegna uppbyggingar orkuinnviða skilvirkara. Uppbygging orkuinnviða er velferðar- og öryggismál fyrir landsmenn alla. Aukin skilvirkni má hins vegar ekki vera á kostnað landeigenda eða sveitarfélaga. Byggðarráð og sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ítrekað bent á að sjónarmið um sanngjarnan hlut la… Lesa alla

    Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar nr. 737 dags. 19. mars 2026 voru til umræðu áform um lagasetningu er varða flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks og vareftirfarandi bókun samþykkt samhljóða: "Byggðarráð tekur undir að tilefni er til að skoða með hvaða hætti gera megi regluverk vegna uppbyggingar orkuinnviða skilvirkara. Uppbygging orkuinnviða er velferðar- og öryggismál fyrir landsmenn alla. Aukin skilvirkni má hins vegar ekki vera á kostnað landeigenda eða sveitarfélaga. Byggðarráð og sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur ítrekað bent á að sjónarmið um sanngjarnan hlut landeigenda og nærsamfélaga og uppbyggingu orkuinnviða geta auðveldlega farið saman. Framleiðsla og flutningur á raforku skapar mikil verðmæti fyrir íslenskt samfélag. Það er óviðunandi að sú verðmætasköpun sé á kostnað landeigenda eða samfélaga fjarri þeim stað er orkan er nýtt. Það er sanngirnismál að greitt sé eðlilegt verð fyrir það land sem tekið er undir orkumannvirki. Það verð hlýtur að taka mið af þeim skorðum sem mannvirkin setja á nýtingu landsins og þeim miklu verðmætum sem þeim er ætlað að skapa."

  • #4Sigurður Jón Hreinsson
    Góðann dag. Með þessum skrifum mínum og viðhengdum skjölum, geri ég athugasemdir við áform ráðherra um lagasetningu sem sagt er að eigi að flýta uppbyggingu raforkuinnviða og einföldun regluverks. Það kann að vera að uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku á Íslandi hafi eitthvað tafist á undanförnum árum, vegna ágreinings um eignarnám, umráðatöku og fjárhæð eignarnámsbóta. Hinsvegar verður ekki annað séð af þeim dæmum sem ég hef verið að fylgjast með, en að tafirnar séu fyrst og síðast til komnar vegna þvermóðsku starfsmanna Landsnets og að því er virðist lélegra samskiptahæfileika þ… Lesa alla

    Góðann dag. Með þessum skrifum mínum og viðhengdum skjölum, geri ég athugasemdir við áform ráðherra um lagasetningu sem sagt er að eigi að flýta uppbyggingu raforkuinnviða og einföldun regluverks. Það kann að vera að uppbygging flutnings- og dreifikerfis raforku á Íslandi hafi eitthvað tafist á undanförnum árum, vegna ágreinings um eignarnám, umráðatöku og fjárhæð eignarnámsbóta. Hinsvegar verður ekki annað séð af þeim dæmum sem ég hef verið að fylgjast með, en að tafirnar séu fyrst og síðast til komnar vegna þvermóðsku starfsmanna Landsnets og að því er virðist lélegra samskiptahæfileika þeirra. Samskipti við landeigendur eða aðra sem hafa hagsmuna að gæta, er í þeim tilfellum sem ég þekki til, í algerri mýflugumynd og ábendingar um aðrar lagnaleiðir eða valkosti eru ekki bara hunsaðir heldur hreinlega gengið svo langt að ljúga í svörum við athugasemdum í skipulagsferli og færa inn á kort rangar upplýsingar, sem henta betur en sannleikurinn, í málflutningi Landsnets. Þessvegna er þessi setning í raun lykilsetning, í greinargerð ráðuneytisin; „....að því gefnu að réttindi landeigenda séu tryggð með fullnægjandi hætti.“ Þau réttindi eru nefnilega ekki tryggð í dag. Og í raun er það hreinlega átakanlegt að sjá hverja stofnunina og sveitarfélagið á fætur öðru, hreinlega missa lappirnar þegar Landsnet kíkir í heimsókn. Engu er líkara en að allir séu hræddir við Landsnet og meira að segja Skipulagsstofnun lyppast niður, í vinnu við Strandsvæðaskipulag Vestfjarða. Þegar starfsmenn stofnunarinnar fullyrða að áform Landsnets um strenglagningu yfir Arnarfjörð, sem sett var fram í Kerfisáætlun Landsnets, sé nánast ígildi tilskipunar og að stofnuninni hafi borið að setja inn þriðja mannvirkjabeltið yfir Arnarfjörð þar sem tengingin hafi verið sett fram með þeim hætti í Kerfisáætlun. Þau tvö mál sem ég vitna í, sem dæmi um vinnubrögð Landsnets og skort fyrirtækisins á samtali við þá sem hafa hagsmuna að gæta, er annars vegar vegna Mjólkárlínu 2, strenglagningar úr Mjólkárvirkjun til Bíldudals og hinsvegar vegna áforma um að tengja jarðstreng í Dýrafjarðargöngum við Breiðadalslínu 1, í Dýrafirði. Í síðarnefnda málinu vísa ég á Skipulagsgátt, þar sem sjá má kröftug mótmæli landeigenda við áformunum, ásamt öðrum athugasemdum. https://skipulagsgatt.is/issues/2026/222 Vegna Mjólkárlínu 2, fylgja nokkur viðhengi, sem benda vinnubrögðin og upplýsingaóreiðuna sem boðið var uppá. Læt þetta duga. Gangi ykkur vel.

  • #5Húnaþing vestra

    Meðfylgjandi er umsögn byggðarráðs Húnaþings vestra um áform um lagasetningu um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. F.h. byggðarráðs Húnaþings vestra Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-56/2026: Flýting uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks · Alviti