Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-52/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða)

Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi um rýmkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða auk annarra tengdra breytinga.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: mars); 158. þing (áætlað: október).

Lagðar eru til breytingar á lagaákvæðum sem gilda um magntakmarkanir sem lífeyrissjóðum er gert að fylgja við fjárfestingar. Með breytingunum er ekki ætlunin að kollvarpa því fyrirkomulagi sem komið var á með lögum árið 2016 heldur gera á því æskilegar umbætur með því að rýmka nokkrar takmarkanir, einfalda framsetningu og sníða af vankanta sem komið hafa fram í framkvæmd. Öll rýmkun á lögbundnum takmörkunum felur í sér að meginreglan sem nefnd hefur verið skynsemisregla, og fram kemur í 36. gr. laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, fær meira vægi í starfsemi sjóðanna. Í skynsemisreglunni felst krafa um að fjárfestingarstefna lífeyrissjóða sé sett fram af ábyrgð og hún taki mið af skuldbindingum og hlutverki hvers lífeyrissjóðs. Jafnframt eru lagðar til breytingar sem varða rekstur, innra eftirlit og innri endurskoðun lífeyrissjóða.  Í 3. kafla frumvarpsins er að finna umfjöllun um tillögur að helstu breytingum sem varða magntakmarkanir.

S-52/2026· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 26. feb. 2026 – 5. mar. 2026· 8 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða)

Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi um rýmkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða auk annarra tengdra breytinga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-52/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. mars 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 567)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-52/2026: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997 (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða) · Alviti