Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-51/2026 · Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna innleiðingar rýmiseigna og afnáms gildandi undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: janúar).

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs frumvarp til laga um breytingar á lögum um skráningu, merki og mat fasteigna, lögum um tekjustofna sveitarfélaga, skipulagslögum og lögum um mannvirki. Um er að ræða veigamiklar breytingar á fasteignaskráningu á Íslandi sem ætlað er að gera hana sambærilega við það sem gerist í nágrannalöndum okkar þegar kemur að stórum innviðum og flóknum mannvirkjum. Breytingarnar sem lagðar eru til í frumvarpinu eru tvíþættar: 1. Innleiðing rýmiseigna Í fyrri hluta frumvarpsins er lögð til skilgreining á nýrri tegund fasteignar, svokallaðri rýmiseign. Rýmiseign er þrívítt afmarkað rými utan um mannvirki og mannvirkjakerfi, ásamt réttindum sem þeim fylgja og heimilt er að reisa samkvæmt mannvirkja- og skipulagslögum. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að skrá skuli slíka eign þegar: 1. Viðkomandi rými nær yfir eða undir aðra fasteign, eða mannvirki innan rýmisins eru varanlega skeytt við eignarlaust land eða sjávarbotn. 2. Mannvirki og tilheyrandi réttindi innan rýmisins mynda eina heildstæða einingu, svo sem orkuvinnslukerfi, samgöngumannvirki eða iðnaðarsamstæður. 3. Áfram er hægt að nýta þann hluta fasteignar, sem liggur yfir eða undir rýmiseigninni, í öðrum og sjálfstæðum tilgangi. Þessi breyting er nauðsynleg til að unnt sé að skrá og meta á heildstæðan hátt mannvirki sem liggja yfir eða undir mörgum fasteignum eða þvert á staðarmörk sveitarfélaga. Undir þetta falla m.a. orku- og samgöngumannvirki, bílastæðahús og aðrar flóknar neðanjarðarbyggingar. Samhliða þessu eru lagðar til breytingar á skipulagslögum og lögum um mannvirki til að tryggja: • Skýra og skilvirka stjórnsýslu þegar eign nær yfir fleiri en eitt sveitarfélag. • Samræmda skipulagsvinnu og eftirlit á milli sveitarfélaga varðandi rýmiseignir. • Skiptingu fasteignaskattstekna og þjónustugjalda milli sveitarfélaga vegna almennra rýmiseigna 2. Afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati Síðari hluti frumvarpsins snýr að breytingum á lögum um skráningu, merki og mat fasteigna og lögum um tekjustofna sveitarfélaga þar sem m.a. eru gerðar tillögur að: • Afnámi undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati, að undanskildum þeim sem annast dreifingu raforku. • Innleiðingu á sérstökum dreifireglum sem kveða á um hvernig fasteignaskattstekjum af slíkum orkumannvirkjum skuli skipt á milli þeirra sveitarfélaga sem verða fyrir áhrifum af orkuframleiðslu. • Ákvæði sem mælir fyrir um forsendur svokallaðs hvalrekaákvæðis, um hámark fasteignaskattstekna sveitarfélaga á hvern íbúa vegna stóriðju og orkumannvirkja. Samráð og áframhaldandi vinna Breytingar þær sem hér eru kynntar eru margþættar og varða málefnasvið margra ráðuneyta, stofnana og sveitarfélaga. Vegna þess hve málið er umfangsmikið og tæknilega flókið er sú leið farin að kynna drögin á þessu stigi með tillögum að útfærslum án þess að endanleg afstaða hafi verið tekin til allra þeirra leiða sem þar birtast. Markmiðið með birtingu í Samráðsgátt er að fá fram sjónarmið hagaðila á þessu stigi til að vinna áfram með þær tillögur sem hér eru kynntar. Með hliðsjón af því gæti frumvarpið tekið breytingum í kjölfar samráðsins. Ef um verulegar breytingar verður að ræða, er gert ráð fyrir að drögin verði kynnt að nýju í samráðsgátt áður en gengið verður frá endanlegu frumvarpi til framlagningar á Alþingi.

S-51/2026· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 20. feb. 2026 – 6. mar. 2026· 41 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati

Innviðaráðuneytið kynnir til samráðs frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna innleiðingar rýmiseigna og afnáms gildandi undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-51/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 41 umsögn barst

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (41)
  • #1Íslensk Gagnavinnsla ehf.

    Hjálagt skjal inniheldur umsögn Íslenskrar Gagnavinnslu ehf.

  • #2Skagafjörður

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins séu lögð fram formleg drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir, þar sem jafnframt verður felld úr gildi undanþága rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana, svo og annarra orkugjafa) frá fasteignamati. Byggðarráð lýsir jafnframt yfir ánægju með að áformað sé að fasteignaskattur geti dreifst á milli fleiri en eins sveitarfélags og að hluti af fasteignaskattstekjum af orkumannvirkjum skuli eiga að dreifast til sveitarfélaga í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga.

  • #3Samtök orkusveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn samtaka orkusveitarfélaga

  • #4Samtök orkusveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka orkusveitarfélaga

  • #5Samband íslenskra sveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-51/2026: Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati · Alviti