Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta og skipan Flóttamannanefndar)
Drög að frumvarpi til breytinga 9. og 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016. Annars vegar er um að ræða breytingar á skipan Flóttamannanefndar og hins vegar um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta.
Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um útlendinga. Lagðar eru til breytingar á 9. og 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016. Annars vegar er um að ræða breytingar á ákvæði um skipan Flóttamannanefndar og hins vegar á ákvæðum um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta, einkum að því er varðar réttarstöðu þeirra sem dvelja hér á landi á þeim grundvelli að verndartímabili loknu.
Megintilgangur frumvarpsins er að samræma ákvæði 44. gr. laga um útlendinga, er varða dvalarleyfi einstaklinga sem dvelja hér á landi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta, við löggjöf og framkvæmd Evrópusambandsins, auk þess sem horft er til sambærilegrar framkvæmdar í Noregi og Danmörku. Markmiðið er að tryggja að íslensk framkvæmd sé í samræmi við þá samræmdu stefnu sem mótast hefur á vettvangi Evrópu um tímabundið eðli úrræðisins.
Verði ekki ráðist í lagabreytingar mun verulegur fjöldi einstaklinga sem nú dvelja hér á landi á grundvelli fjöldaflótta öðlast, í mars 2027 eða þegar stríðinu í Úkraínu lýkur, rétt til dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða og að liðnu einu ári með slíkt leyfi rétt til ótímabundins dvalarleyfis. Slík þróun myndi leiða til þess að íslensk framkvæmd yrði frábrugðin þeirri samræmdu áætlun sem unnið er að á vettvangi Evrópusambandsins og í nágrannaríkjum.
Frumvarpið felur ekki í sér breytingu á almennum heimildum útlendinga til að sækja um og fá dvalarleyfi á öðrum lagagrundvelli samkvæmt lögum um útlendinga. Einstaklingar sem dvelja hér á landi á grundvelli sameiginlegrar verndar vegna fjöldaflótta munu áfram eiga kost á að sækja um dvalarleyfi, svo sem á grundvelli atvinnu, fjölskyldutengsla eða annarra tengsla við landið. Slíkar umsóknir sæta sjálfstæðri og einstaklingsbundinni málsmeðferð samkvæmt almennum reglum laganna. Ákvörðun um dvöl eða brottför úr landi fer ávallt fram á grundvelli einstaklingsbundins mats í samræmi við ákvæði laga um útlendinga og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Ísland er bundið af alþjóðlegum skuldbindingum, þar á meðal flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna frá 1951 og mannréttindasáttmála Evrópu, sem fela í sér bann við endursendingu (non-refoulement) til ríkis þar sem einstaklingur á yfir höfði sér raunverulega hættu á ofsóknum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða öðrum alvarlegum mannréttindabrotum. Enginn verður því sendur til Úkraínu ef slíkar aðstæður eru fyrir hendi.
Með frumvarpinu er þannig verið að skýra og festa í sessi tímabundið eðli úrræðisins um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta, en ekki að takmarka möguleika einstaklinga til áframhaldandi lögmætrar dvalar hér á landi á öðrum lagagrundvelli.
S-48/2026· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. feb. 2026 – 27. feb. 2026· 6 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta og skipan Flóttamannanefndar)
Drög að frumvarpi til breytinga 9. og 44. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016. Annars vegar er um að ræða breytingar á skipan Flóttamannanefndar og hins vegar um sameiginlega vernd vegna fjöldaflótta.
Sex umsagnir bárust við frumvarpsdrögin og voru þau tekin til skoðunar við vinnslu frumvarpsins.
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 1. apríl 2026, sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í greinargerð er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)
S-48/2026: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (sameiginleg vernd vegna fjöldaflótta og skipan Flóttamannanefndar) · Alviti