Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjarskipti (EES-reglur)
Ráðuneytið hefur til kynningar frumvarp til innleiðingar á tveimur Evrópureglugerðum sem teknar hafa verið upp í Samninginn um evrópska efnahagssvæðið. Umsagnarfrestur er tvær vikur.
Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: september).
Með frumvarpinu er verið að gera stjórnvöldum kleift að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara svo hægt sé að innleiða reglugerðir Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/1232 og (ESB)2024/1307). Fyrrnefnda reglugerðin veitir undanþágu frá tveimur ákvæðum svonefndar E-privacy reglugerðar Evrópusambandsins 2002/58/EB sem á að tryggja fjarskiptaleynd. Seinni reglugerðin er breytingarreglugerð á hinni fyrri og framlengdi gildistíma hennar en sólarlagsákvæði er á reglugerðunum. Reglugerðirnar eiga að falla brott þann 3. apríl nk. en líklegt þykir að gildistími þeirra verði framlengdur með annarri reglugerð. Tilgangur reglugerðar (ESB) 2021/1232 er að gera þjónustuveitendum kleift að nýta tiltekna tækni við vinnslu persónuupplýsinga og annarra ópersónugreinanlegra upplýsinga, þegar hún telst vera nauðsynleg til að koma upp um kynferðisofbeldi gegn börnum á internetinu ásamt því að tilkynna um þannig athæfi og fjarlægja slík gögn. Reglugerð (ESB) 2021/1232 gildir um fjarskipti ótengt númerum en fjarskiptaþjónusta nær einnig yfir fjarskipti á milli einstaklinga sem er ótengt númerum, sbr. 7. mgr. 2. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1972 frá 11. september 2018 um setningu evrópskra reglna um rafræn fjarskipti, oft nefnd Fjarskiptatilskipunin eða Kóðinn og var innleidd í íslenskan rétt með lögum nr. 70/2022. Þannig gildir reglugerðin ekki um talsamband, þ.e. síma né SMS skilaboð sem eru númeraháð. Reglugerðin gildir um OTT-samskiptaþjónustu, e. over the top communication services eins og Microsoft Teams chat, Google chat, o.fl. og tölvupóstþjónustur eins og Gmail, Outlook o.fl. ásamt Facebook messenger, svo dæmi séu nefnd. Reglugerðin er einungis að veita undaþágu frá meginreglunni um fjarskiptaleynd en veitir ekki lagagrundvöll fyrir vinnslu persónuupplýsinga við notkun greiningatækja. Kjósi þjónustuveitendur að nýta sér undanþáguna er þeim skylt að fara eftir reglugerð Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) 2016/679 um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og um frjálsa miðlun slíkra upplýsinga og niðurfellingu tilskipunar 95/46/EB (almenna persónuverndarreglugerðin), sbr. lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018. Þjónustuveitendum er enn sem komið er ekki skylt að fara eftir reglugerðinni. Kjósi þjónustuveitendur að nýta sér undanþáguheimild reglugerðarinnar þá ber þeim að fylgja ákvæðum reglugerðar 2016/679 um persónuvernd og þeirra skilyrða sem reglugerðin kveður á um. Vinnslan verður að vera nauðsynleg til að koma upp um kynferðisofbeldi gegn börnum og það þarf að tilkynna það til þar til bærra yfirvalda. Þá þarf að gæta meðalhófs við vinnsluna og hún þarf að vera takmörkuð við það efni og umferðargögn sem nauðsynleg eru til að uppfylla tilgang vinnslunnar. Loks má ekki geyma gögnin lengur en þörf er á og er hámarksgeymslutími 12 mánuðir frá söfnun upplýsinga.
S-43/2026· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2026 – 1. mar. 2026· 0 umsagnir
Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjarskipti (EES-reglur)
Ráðuneytið hefur til kynningar frumvarp til innleiðingar á tveimur Evrópureglugerðum sem teknar hafa verið upp í Samninginn um evrópska efnahagssvæðið. Umsagnarfrestur er tvær vikur.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)