Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-42/2026 · Dómsmálaráðuneytið

Fulllnusta refsinga - brottvísun og afplánun erlendra fanga

Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fullnustu refsinga

Um er að ræða drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fullnustu refsinga nr. 15/2016. Frumvarpið felur í sér endurskoðun á ákvæðum laganna sem varða reynslulausn og fullnustu refsinga utan fangelsa, í þeim tilvikum þar sem fyrir liggur að erlendum föngum með lítil eða engin tengsl við Ísland verði brottvísað í kjölfar afplánunar. Lögð er til tímabundin heimild til 1. júlí 2027 til að veita erlendum föngum, sem endanlega hefur verið ákveðið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn í stað helmings samkvæmt gildandi lögum. Við reynslulausn verður viðkomandi vísað úr landi þegar í stað. Á sama tíma er lagt til að þeir sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi geti ekki afplánað refsingu á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti. Slík úrræði eiga aðeins við þegar markmiðið er aðlögun að íslensku samfélagi, sem á ekki við um þá sem ljóst er að hafi engin eða lítil tengsl við landið og muni yfirgefa landið að afplánun lokinni.

S-42/2026· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 13. feb. 2026 – 25. feb. 2026· 3 umsagnir

Fulllnusta refsinga - brottvísun og afplánun erlendra fanga

Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fullnustu refsinga

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-42/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 25. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 514)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. júní 2026)

Áform um lagasetninguna voru birt í Samráðsgátt sjá mál S-42/2006. Engin umsögn barst um áformin. Þrjár umsagnir bárust um frumvarpið og er gerð grein fyrir þeim í greinargerð frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 5. mars 2026 og samþykkt sem lög 1. júní 2026.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Sturla Eide Jensson

    Alveg sama hversu alvarlegt brotið er hjá erlendum aðila á hann að fara úr landi og ekki að fá að komast inn í landið aftur hann á ekki að vera í fangelsi hér á landi og við skattgreiðendur þurfum að borga fyrir hann. Dæmi: 1) Vísað úr landi degi eftir þjófnað. 2) þann 10/2 2026 er í fréttum um 2 aðila þar sem annar á að baki langan sakaferil og svona aðili á að senda úr landi og hann gengur laus vegna þess að það er ekki pláss.

  • #2Magnús Kristján Guðmundsson

    Margir sem sitja inni eru útlendingar sem eru að koma með ólögleg vímuefni . Það þarf að lögleiða sölu og dreifingu à þessum ólöglegu vímuefnum og þà verður nóg pláss í fangelsum landsins fyrir þà sem eiga að vera þar.

  • #3Steinvör Jónsdóttir

    Þetta stangast á við stjórnarskrá og ráðherrar ættu að kunna utanbókar, þar segir; 65. gr. [Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti. Konur og karlar skulu njóta jafns réttar í hvívetna.] 1) From <https://www.althingi.is/lagas/nuna/1944033.html>

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-42/2026: Fulllnusta refsinga - brottvísun og afplánun erlendra fanga · Alviti