Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-35/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða)

Áformað er að leggja til breytingar á lagaákvæðum sem gilda um þær magntakmarkanir sem lífeyrissjóðum er gert að fylgja við fjárfestingar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: mars); 158. þing (áætlað: október).

Með breytingunum er ekki ætlunin að kollvarpa því fyrirkomulagi sem komið var á með lögum árið 2016 heldur gera á því æskilegar umbætur með því að rýmka nokkrar takmarkanir, einfalda framsetningu og sníða af vankanta sem komið hafa fram í framkvæmd. Öll rýmkun á lögbundnum takmörkunum felur í sér að meginreglan sem nefnd hefur verið skynsemisregla, og fram kemur í 36. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, fær meira vægi í starfsemi sjóðanna. Í skynsemisreglunni felst krafa um að fjárfestingarstefna lífeyrissjóða sé sett fram af ábyrgð og hún taki mið af skuldbindingum og hlutverki hvers lífeyrissjóðs. Jafnframt er áformað að leggja til breytingar sem varða rekstur, innra eftirlit og innri endurskoðun.

S-35/2026· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 9. feb. 2026 – 18. feb. 2026· 12 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða (fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða)

Áformað er að leggja til breytingar á lagaákvæðum sem gilda um þær magntakmarkanir sem lífeyrissjóðum er gert að fylgja við fjárfestingar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-35/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 18. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 567)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
  • #1Gunnar Þór Baldvinsson
    Umsögnin varðar áform um breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nánar tiltekið breytingar á kröfum til tryggingastærðfræðinga. Í umsögninni er bent á að fyrirhuguð breyting sé ótengd meginmarkmiði frumvarpsins um fjárfestingarheimildir og að núverandi fyrirkomulag hafi reynst bæði faglega fullnægjandi og hagkvæmt. Ekki hefur verið sýnt fram á að þörf sé á auknum kröfum eða föstu stöðugildi tryggingastærðfræðings innan sjóðanna. Slík breyting myndi óhjákvæmilega leiða til aukins rekstrarkostnaðar án skýrs ávinnings fyrir sjóðfélaga. Nánari rökstuðni… Lesa alla

    Umsögnin varðar áform um breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nánar tiltekið breytingar á kröfum til tryggingastærðfræðinga. Í umsögninni er bent á að fyrirhuguð breyting sé ótengd meginmarkmiði frumvarpsins um fjárfestingarheimildir og að núverandi fyrirkomulag hafi reynst bæði faglega fullnægjandi og hagkvæmt. Ekki hefur verið sýnt fram á að þörf sé á auknum kröfum eða föstu stöðugildi tryggingastærðfræðings innan sjóðanna. Slík breyting myndi óhjákvæmilega leiða til aukins rekstrarkostnaðar án skýrs ávinnings fyrir sjóðfélaga. Nánari rökstuðning og umfjöllun má finna í meðfylgjandi fylgiskjali.

  • #2Steinunn Guðjónsdóttir Hansen

    Meðfylgjandi er umsögn frá Félagi íslenskra tryggingastærðfræðinga

  • #3Harald Gunnar Halldórsson

    Meðfylgjandi er umsögn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.

  • #4Festa - lífeyrissjóður

    Sjá meðfylgjandi umsögn Festu lífeyrissjóðs um áformaskjal um breytingar á lögum um lífeyrissjóði

  • #5Gunnar Ingólfsson

    Hjálögð er umsögn Seðlabanka Íslands við mál nr. 35/2026

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.