Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-34/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild)

Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

Með frumvarpinu er lagt til að heimild einstaklinga til skattfrjálsrar ráðstöfunar á séreignarsparnaði inn á höfuðstól lána, sem tryggð eru með veði í íbúðarhúsnæði til eigin nota, verði gerð varanleg. Gert er ráð fyrir því að heimildin öðlist þegar gildi en að mögulegt verði að sækja um að nýta hana afturvirkt frá 1. janúar 2026. Í flestum meginatriðum er lagt til að sambærileg skilyrði gildi um nýtingu heimildarinnar og gilt hafa undanfarin ár. Þó eru lagðar til nokkrar breytingar. Þar má helst nefna tillögu um að einstaklingum verði framvegis heimilt að nýta sér heimildina í tíu ár eða samanlagt 120 mánuði að hámarki. Þá er lagt til að hámarksfjárhæð til skattfrjálsrar ráðstöfunar á árinu 2026 geti að hámarki numið samtals 500 þús. kr. og að sú fjárhæð taki árlegum hækkunum í samræmi við vísitölu neysluverðs í upphafi hvers árs, fyrst árið 2027. Þá er lagt til að hámarksfjárhæð miðast í öllum tilvikum við einstaklinga í stað þess að sérstakt lægra viðmið gildi fyrir hjón og sambúðarfólk. Loks er í frumvarpinu tillögur að breytingum á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Breytingunum er ætlað að samræma betur skilyrði úrræðanna tveggja og einfalda framkvæmd.

S-34/2026· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 9. feb. 2026 – 22. feb. 2026· 19 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild)

Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-34/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 19 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 564)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (19)
  • #1Björn Zoëga Björnsson

    Ég mæli með að einstaklingum verði heimilt, einu sinni, að ráðstafa, í einni greiðslu, skattfríðindi allt að 10 milljónum af uppsöfnuðum séreignarsparnaði með greiðslu inná íbúðalán á húsnæði í þeirra eigu.

  • #2Guðlaugur Már Unnarsson

    Virði 750.000 kr árið 2014 er í dag ca 1.2 millj 10.02.2026. segir allt sem segja þarf :)

  • #3Dagný Björk Jóhannesdóttir

    Mikilvægt er að passa að þessir 120 mánuðir þurfi ekki að vera samfelldir. Við keyptum okkar fyrstu íbúð með uppsöfnuðum séreignarsparnaði meðan ég var í háskólanámi og ég fór í fæðingarorlof á meðan á námi stóð. Ég var tekjulaus meirihluta fæðingarorlofs, en það tímabil telur samt sem áður upp í mánuðina í Fyrstu kaupa úrræðinu og féllu þeir því á milli hjá mér. Ég get ímyndað mér að margt ungt fólk sé í sömu stöðu.

  • #4Gústav Gústavsson

    Það að hafa samfellt tímabil og hámark 5.millj. þíðir að þeir sem hafa hærri tekjur fá meira út úr þessum úrræðum. Láglaunafólk og fólk í námi nær ekki að fullnýta úrræðið. Best væri að allir fái 5. millj og enginn tímamörk á því mætti taka þess vegna 15 ár að ná því. Hefði haldið að þessi stjórnarmeirihluti væri sammála þessu ?

  • #5Nína Rún Óladóttir

    Það að úrræðið sé enn samfelld 10 ár segir til um að ekki er verið að hugsa um tekjulægri eða unga fólkið. Margar ástæður geta verið fyrir því að fólk sé tekjulægra eða tekjulaust tímabundið, fæðingarorlof, nám og veikindi eiga ekki að bitna á nýtingu úrræðisins. Margir eru að skrapa saman í útborgun til að koma sér á fasteignamarkaðinn og eru því ekki að hugsa um hámarksnýtingu úrræðisins. Margir ná einungis að nýta brotabrot af hámarksfjárhæð úrræðisins. Afnemið samfelldan tíma og hafið hámarksfjárhæð á kennitölu óháð tímabili.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-34/2026: Drög að frumvarpi til laga um ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána (varanleg heimild) · Alviti