Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-33/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Breytingar á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga (CSDR Refit og T+1)

Áformað er að leiða í landslög tvær Evrópugerðir um breytingar á reglugerð (CSDR) sem innleidd var hér á landi með lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

CSDR mælir fyrir um samræmdar kröfur fyrir uppgjör viðskipta með fjármálagerninga og reglur um skipulagningu og háttsemi verðbréfamiðstöðva til að stuðla að öruggu, skilvirku og snurðulausu uppgjöri. Hún var innleidd hér á landi með tilvísunaraðferð, sbr. lög um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020. Breytingagerðirnar, sem nú stendur til að lögfesta samhliða, eru frá 2023 (CSDR Refit) og 2025 (CSDR T+1). Með Refit taka ýmis efnisatriði CSDR breytingum, í ljósi fenginnar reynslu af framkvæmd upphaflegrar móðurgerðar. Markmið breytinganna er að stuðla að einföldun og aukinni skilvirkni, auk þess að undirbúa styttingu uppgjörstíma. Þegar á heildina er litið er ekki búist við að álag á verðbréfamiðstöðvar eða eftirlitsaðila breytist í meginatriðum eða aukist varanlega við lögfestingu CSDR Refit hér á landi. Með gerðinni frá 2025 var ákveðið að stytta uppgjörstíma viðskipta með fjármálagerninga. Meginreglan er nú T+2 á Evrópska efnahagssvæðinu, en frá október 2027 verður hún T+1. Þessi breyting krefst tímanlegs undirbúnings og samhæfingar þvert á markaðinn. Upptaka gerðanna er áformuð í EES-samninginn í mars 2026.

S-33/2026· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 6. feb. 2026 – 1. mar. 2026· 3 umsagnir

Breytingar á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga (CSDR Refit og T+1)

Áformað er að leiða í landslög tvær Evrópugerðir um breytingar á reglugerð (CSDR) sem innleidd var hér á landi með lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-33/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. mars 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (17. mars 2026)

Engar efnislegar breytingartillögur komu fram eða athugasemdir um upptöku og innleiðingu EES-gerðanna sem um ræðir. Vegna tafa á upptöku gerðanna í EES-samninginn liggur nú fyrir að ekki verður af framlagningu frumvarpsins fyrr en á haustþingi 2026. Ekki er gert ráð fyrir veigamiklum breytingum á frumvarpinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-33/2026: Breytingar á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga (CSDR Refit og T+1) · Alviti