Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-32/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing)

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, og lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október); 158. þing (áætlað: september).

Með frumvarpinu er lagt til að innleidd verði ákvæði tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/828 frá 17. maí 2017 um breytingu á tilskipun 2007/36/EB að því er varðar hvatningu til þátttöku hluthafa til lengri tíma (nefnd SRDII). Jafnframt er með frumvarpinu innleidd framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1212 frá 3. september 2018 um lágmarkskröfur varðandi framkvæmd ákvæða tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins 2007/36/EB að því er varðar auðkenningu hluthafa, sendingu upplýsinga og að auðvelda hluthöfum að nýta sér réttindi sín. Framangreind tilskipun miðar að því að hvetja til langtímaþátttöku hluthafa og auka gagnsæi í samskiptum hlutafélaga og fjárfesta. Tilefni tilskipunarinnar má rekja til þess mats Evrópusambandsins, sem m.a. byggir á reynslu af fjármálakreppunni, að hluthafar hafi í of miklum mæli stutt við skammtímaáhættusækni stjórnenda. Þá hafi eftirlit og aðkoma stofnanafjárfesta og eignastýringaraðila oft verið ófullnægjandi og miðist um of við skammtímaávöxtun, sem geti leitt til lakari stjórnarhátta og verri afkomu fyrirtækja til lengri tíma litið. Til að bregðast við þessu kveður tilskipunin á um sértækar ráðstafanir sem miða að því að auðvelda félögum að bera kennsl á hluthafa sína og tryggja skilvirka miðlun upplýsinga milli félagsins og hluthafa í gegnum keðju milliliða. Jafnframt eru gerðar kröfur um aukið gagnsæi varðandi fjárfestingarstefnu stofnanafjárfesta og þeirra sem sinna eignastýringu, sem og starfsemi umboðsráðgjafa. Þá felur tilskipunin í sér nýjar reglur um starfskjarastefnu stjórnenda og aukin áhrif hluthafa á hana, auk reglna um gagnsæi og samþykki vegna viðskipta við tengda aðila. Markmiðið er að skapa nútímalegan lagaramma sem stuðlar að virkari hluthafaþátttöku og sjálfbærum rekstri félaga sem hafa hlutabréf sín tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Með frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar á lögum um einkahlutafélög til samræmis við þær breytingar sem lagðar eru til á lögum um hlutafélög hvað varðar starfskjarastefnu félaga.

S-32/2026· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. feb. 2026 – 27. feb. 2026· 6 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing)

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög, nr. 2/1995, og lögum um einkahlutafélög, nr. 138/1994.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-32/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 27. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 604)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. júní 2026)

Málið var lagt fram á Alþingi 1. apríl 2026. Málið náði ekki fram að ganga á 157. löggjafarþingi, upplýsingar um framvindu málsins má finna á vef Alþingis, sjá hér: https://www.althingi.is/thingstorf/thingmalalistar-eftir-thingum/ferill/157/604/?ltg=157&mnr=604. Málið verður endurflutt á 158. löggjafarþingi.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Kristín Elfa Ingólfsdóttir

    Nauðsynlegt er að hafa aðlögunartíma markaðar 1 ár frá gildistöku laganna á Íslandi. Gefa útgefendum, milliliðum og fjármálastofnunum tækifæri til að skilgreina hlutverk og ábyrgðarsvið hvers og eins í "keðjunni" og finna hagkvæmustu aðferðarfræðina fyrir markaðinn í heild sinni. Hefur mögulega í för með sér fjárfestingu í tækni með tilheyrandi kaupum/ nýsmíði / aðlögun/prófunum og þess háttar.

  • #2Landssamtök lífeyrissjóða

    Umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða er í viðhengi.

  • #3Adela Lubina

    Nasdaq verðbréfamiðstöð - umsögn í viðhengi.

  • #4Kauphöll Íslands hf.

    Umsögn Nasdaq Iceland er viðhengd.

  • #5Harpa Lydía Gunnarsdóttir

    Umögn þessi er lögð inn fyrir hönd LOGOS slf.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-32/2026: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög (innleiðing) · Alviti