Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-31/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.

Ekki komið til Alþingis

Með frumvarpi þessu er lagt til að Matvælastofnun, Fiskistofa og Verðlagsstofa skiptaverðs verði sameinaðar í nýja stofnun. Jafnframt er lagt til að matvælaeftirlit færist frá heilbrigðiseftirlitssvæðum til nýrrar stofnunar. Með því að sameina starfsemi framangreindra stofnana sem og að færa matvælaeftirlit til nýrrar stofnunar verður til ný öflug stjórnsýslu og eftirlitsstofnun á sviði matvælaframleiðslu og fiskveiða. Þjónusta við atvinnulíf verður einfaldari og skilvirkari með færri samskiptaleiðum og skýrari ferlum. Öflugar starfsstöðvar verða staðsettar um land allt. Með frumvarpinu verða embætti Fiskistofustjóra, forstjóra Matvælastofnunar, embætti yfirdýralæknis og forstöðumanns Verðlagsstofu skiptaverðs lögð niður. Önnur störf hjá framangreindum stofnunum verða einnig lögð niður en kveðið verður á um forgang starfsmanna í störf hjá nýrri stofnun. Jafnframt er kveðið á um forgang starfsmanna heilbrigðiseftirlitssvæða sem sinnt hafa matvælaeftirliti í störf hjá hinni nýju stofnun. Heimilt verður að ráða nýjan forstjóra áður en stofnunin tekur til starfa og mun hann hafa heimild til þess að undirbúa nýja stofnun en gert er ráð fyrir að hún taki til starfa 1. janúar 2027. Með frumvarpinu er einnig verið að bregðast við áminningu Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) þar sem farið er fram á að opinbert eftirlit á sviðum matvæla, fóðurs og dýraheilbrigðis fari fram á skilvirkan hátt og í samræmi við EES reglur en stofnunin hefur gert athugasemdir við eftirlit með matvælum frá árinu 2010. Verðlagsstofa skiptaverðs verður lögð niður en verkefni hennar verða hluti af nýrri stofnun og munu þau verða unnin innan sérstakrar einingar þar sem fylgst verður með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna. Með frumvarpinu er lagt til að ný stofnun hafi auknar heimildir til þess að afla upplýsinga um fiskverð og afurðaverð úr tollaupplýsingum frá Skattinum en það er talið nauðsynlegt svo að stofnunin geti borið saman upplýsingar sem útgerðir skila inn til stofnunarinnar og raunverð sem samið er um í útflutningi á fiski og afurðum og kemur fram í tollskýrslum. Þannig mun stofnunin geta aflað upplýsinga frá Skattinum með almennum hætti yfir tiltekin tímabil en ekki einungis í einstaka málum. Að lokum er óskað eftir tillögum að nafni nýrrar stofnunar.

S-31/2026· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 5. feb. 2026 – 20. feb. 2026· 77 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-31/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 77 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (77)
  • #1Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

    Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga

  • #2Skagafjörður
    Byggðarráð Skagafjarðar mótmælir þeim áformum sem fram koma í drögum að frumvarpi. Með frumvarpinu er lagt til að núverandi heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður og að rúmlega 70% af starfsemi þeirra, sem jafnframt eru tekjuberandi verkefnin, flytjist frá sveitarstjórnarstigi til ríkisins. Þessi breyting kollvarpar rekstrargrundvelli heilbrigðiseftirlitanna og skilur sveitarfélög eftir með verkefni sem eru þjónustuháð, tekjulítil og í mörgum tilvikum ófjármögnuð. Ljóst er að breytingarnar munu hafa verulega neikvæð áhrif á landsbyggðina. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa ára… Lesa alla

    Byggðarráð Skagafjarðar mótmælir þeim áformum sem fram koma í drögum að frumvarpi. Með frumvarpinu er lagt til að núverandi heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður og að rúmlega 70% af starfsemi þeirra, sem jafnframt eru tekjuberandi verkefnin, flytjist frá sveitarstjórnarstigi til ríkisins. Þessi breyting kollvarpar rekstrargrundvelli heilbrigðiseftirlitanna og skilur sveitarfélög eftir með verkefni sem eru þjónustuháð, tekjulítil og í mörgum tilvikum ófjármögnuð. Ljóst er að breytingarnar munu hafa verulega neikvæð áhrif á landsbyggðina. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa áratuga reynslu af stöðugri og staðbundinni þjónustu sem byggir á þekkingu á aðstæðum, svæðum, áhættumatsháttum og atvinnulífi. Sú sérþekking sem er undirstaða hraðra viðbragða, tapast ef verkefnin eru færð í miðlægt kerfi ríkisstofnana. Þrátt fyrir fullyrðingar um að störfum verði fjölgað á landsbyggðinni er ekkert í frumvarpinu sem tryggir slíkt. Þvert á móti er hætt við að störf flytjist frá svæðinu og að sérfræðingar, sem búa í nærumhverfi sveitarfélaga, missi starf eða velji að starfa í stærri þéttbýliskjörnum þar sem stofnanirnar eru með meginstarfsemi sína. Byggðarráð telur sérlega mikilvægt að á það sé bent að ekkert í athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) kallar á niðurlagningu staðbundinna stjórnvalda eða heilbrigðiseftirlita. Ábendingar ESA snúa fyrst og fremst að samræmingu, skýrari ábyrgð og sameiginlegum upplýsingakerfum, en öll þau markmið má uppfylla án þess að leggja niður heilbrigðiseftirlitin. Frumvarpið gengur því töluvert lengra en nauðsynlegt er og er hvorki útskýrt né rökstutt með fullnægjandi hætti hvers vegna meðalhófs sé ekki gætt og vægari og hagkvæmari úrræði, svo sem styrkt samræmingarhlutverk ríkisstofnana, innleiðing sameiginlegs upplýsingakerfis og skýrari verkaskipting séu ekki valin. Eitt af áhyggjuefnum byggðarráðs er hætta á þjónusturofi við yfirfærslu verkefnanna. Frumvarpið gerir ráð fyrir að allar breytingar taki gildi 1. janúar 2027 og felur í sér að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lögð niður á sama tíma og ríkið tekur við öllum verkefnum á tveimur stofnunum. Slík framkvæmd er áhættusöm. Fyrir liggur að fjöldi starfsmanna þarf að skipta um starfsvettvang, verklag og ábyrgð breytast, upplýsingakerfi þurfa að vera tilbúin og byrjað verður að vinna eftir verkferlum sem hafa ekki verið prófaðir í framkvæmd. Reynslan sýnir að jafn umfangsmiklar verkefnayfirfærslur taka að lágmarki nokkur ár í undirbúningi til að tryggja samfellda og trausta þjónustu. Hér er hins vegar gert ráð fyrir mjög skömmum aðlögunartíma og engum skýrum áætlunum um hvernig forðast eigi rof í eftirliti, leyfisveitingum eða bráðu viðbragði. Slíkt þjónusturof myndi bitna sérstaklega á rekstraraðilum sem þurfa leyfi eða endurnýjun leyf, ferðaþjónustufyrirtækjum, matvælafyrirtækjum og smærri verslunum sem reiða sig á reglubundnar úttektir. Að auki bitnar þetta á sveitarfélögum sem missa aðgengi að skjótum ráðleggingum eða viðbrögðum vegna mengunaróhappa, atvika eða kvartanamála auk þess sem íbúar og atvinnulíf missir aðgang að skjótum og staðbundnum viðbrögðum fagfólks sem þekkir aðstæður. Á sama tíma er leiða má líkur að því að flóknar boðleiðir innan ríkiskerfisins, takmarkaður aðgangur að starfsmönnum í nærsamfélaginu og aukið álag á fáum starfsmönnum muni skapa tafir, óvissu og síendurtekið tvíverknað næstu árin á eftir. Fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög eru einnig umfangsmikil, þótt frumvarpið geri lítið úr þeim. Sveitarfélög munu þurfa að standa undir biðlaunakostnaði, breytingakostnaði, kostnaði við ráðningar sérfræðinga í ný verkefni og yfirfærslu staðbundinna úrlausnarefna sem fylgja engar tekjur með. Það að tekjustofnar heilbrigðiseftirlita sem eru í þessum tilvikum stærstu verkefnin séu teknir af sveitarfélögum án þess að bæta sveitarfélögum tekjumissinn, hlýtur að teljast skýr tilfærsla fjárhagslegs álags frá ríki til sveitarfélaga. Byggðarráð ítrekar að einfaldari, skilvirkari og ódýrari leið er fyrir hendi, það er að styrkja samræmingu, verklag og upplýsingakerfi innan núverandi kerfis, án þess að leggja heilbrigðiseftirlitin niður. Sú leið myndi tryggja betri gæði, meiri samfellu og jafnt aðgengi að þjónustu um allt land. Með vísan til alls framangreinds tekur Byggðarráð Skagafjarðar undir umsögn og sjónarmið heilbrigðiseftirlita á landinu að öllu leyti, telur frumvarpið ómótað, lítt rökstutt og líklegt til að rýra þjónustu við íbúa og atvinnulíf um land allt, og skorar á ráðherra að draga áformin til baka og hefja í staðinn frekara samráð við sveitarfélög og heilbrigðiseftirlitin um úrbætur sem byggja á raunhæfum, hagkvæmum og sanngjörnum lausnum.

  • #3Heilbrigðiseftirlit Austurl bs
    Heilbrigðisnefnd Austurlands mótmælir því fyrirkomulagi sem lagt er til í frumvarpinu, eins og það liggur fyrir, og telur að það feli í sér óásættanlega óvissu um framkvæmd, ábyrgðarskiptingu og raunverulegan ávinning eftirlits. Nefndin telur að ekki hafi verið sýnt fram á að fyrirhugaðar kerfisbreytingar bæti gæði, skilvirkni eða hagkvæmni eftirlits, né að þær taki nægjanlegt tillit til þeirrar fagþekkingar og staðbundnu reynslu sem byggst hefur upp innan heilbrigðiseftirlits umdæmanna og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga. Heilbrigðisnefnd Austurlands varar sérstaklega við því að breytingar af… Lesa alla

    Heilbrigðisnefnd Austurlands mótmælir því fyrirkomulagi sem lagt er til í frumvarpinu, eins og það liggur fyrir, og telur að það feli í sér óásættanlega óvissu um framkvæmd, ábyrgðarskiptingu og raunverulegan ávinning eftirlits. Nefndin telur að ekki hafi verið sýnt fram á að fyrirhugaðar kerfisbreytingar bæti gæði, skilvirkni eða hagkvæmni eftirlits, né að þær taki nægjanlegt tillit til þeirrar fagþekkingar og staðbundnu reynslu sem byggst hefur upp innan heilbrigðiseftirlits umdæmanna og heilbrigðisnefnda sveitarfélaga. Heilbrigðisnefnd Austurlands varar sérstaklega við því að breytingar af þessari stærðargráðu, sem lagðar eru fram með takmörkuðum undirbúningi, ófullnægjandi greiningu á áhrifum og skömmum fyrirvara, geti leitt til þjónusturofs, tvíverknaðar, lengri boðleiða og skertar viðbragðsgetu. Jafnframt hafnar Heilbrigðisnefnd Austurlands þeirri framsetningu að frumvarpið sé nauðsynlegt vegna athugasemda ESA. Athugasemdir ESA snúa fyrst og fremst að framkvæmd matvælalaga en ekki lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir. Afstaða ESA styður því ekki þá niðurstöðu að boðaðar kerfisbreytingar séu hvorki nauðsynlegar né nægjanlegar, og telur nefndin ekki rétt að vísa til ESA sem réttlætingar fyrir frumvarpinu. Nefndin telur að fyrirhugaðar breytingar miði einkum að einföldun á stjórnsýslustigi, en óljóst sé hvort ávinningur skili sér til þjónustuþega, og taka ekki tillit til byggðarsjónarmiða, þar sem fleiri eftirlitsaðilar, fjarlægari stjórnsýsla, lengri boðleiðir og minni nálægð við eftirlitið geta grafið undan jafnræði í þjónustu milli landshluta og aukið kostnað þjónustuþeganna. Með boðuðu fyrirkomulagi er ljóst að þjónustuþegar verði undir eftirliti frá allt að þremur eftirlitsaðilum í stað eins með núverandi fyrirkomulagi. Afleiðingarnar myndu að mati nefndarinnar bitna á íbúum, atvinnulífi og starfsemi eftirlitsaðila, auk þess sem hætta er á auknum kostnaði fyrir ríki, sveitarfélög og aðra hagaðila. Óljóst er hvaða verkefni munu sitja eftir hjá sveitarfélögunum og hvaða kostnaður muni falla á þau. Að sama skapi er óljóst hvernig sveitarfélögin eigi að sinna þeim verkefnum sem eftir sitja. Eins hefur ekki komið skýrt fram hvað verður um starfsmenn heilbrigðiseftirlita, hvar áætlað er að halda úti starfsstöðvum, hversu mörg störf á landsvísu þetta séu né hvernig sú skipting sé eftir landshlutum. Heilbrigðisnefnd Austurlands telur nauðsynlegt að benda á að betur hefði átt að standa að samráði og upplýsingagjöf af hálfu ráðuneytisins við undirbúning málsins. Að mati nefndarinnar var upplýsingafundur sem haldinn var fyrir framkvæmdastjóra sveitarfélaga og stjórnamenn heilbrigðisnefnda of stuttur og veitti ekki á neinn hátt nægjanlegt svigrúm til umræðu og fyrirspurna. Nefndin leggur áherslu á að við undirbúning svo umfangsmikilla breytinga sé tryggt raunverulegt samráð, gagnsæi og tækifæri hagsmunaaðila til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Heilbrigðisnefnd Austurlands leggur að lokum áherslu á að markmiðum um aukið samræmi, einföldun og skilvirkni í eftirliti verði betur náð með því að efla, þróa og samræma núverandi fyrirkomulag heilbrigðisnefnda sveitarfélaga, fremur en að ráðast í róttækar og illa ígrundaðar kerfisbreytingar.

  • #4Gunnhildur Pétursdóttir

    Góðan daginn Ég hef áhyggjur af stöðu dýralækna hjá nýrri stofnun. Það er einstaklega mikilvægt að dýralæknar sinni eftirliti um velferð dýra en einnig eru dýralæknar með einstaka menntu þegar það kemur að smitsjúkdómum sem berast milli dýra og manna. Mikilvægt er að starf yfirdýralæknis sé enn til staðar og sé undir ráðherra. Þessi einstaklingur er með mjög mikilvæga þekkingu sem mun reynast samfélaginu vel.

  • #5Múlaþing

    Umsögn byggðaráðs Múlaþings.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-31/2026: Drög að frumvarpi til laga um sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs · Alviti