Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-26/2026 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika)

Markmið frumvarpsins er tryggja framkvæmd rannsókna á alvarlegum óvæntum atvikum er eiga sér stað í starfsemi þeirra þjónustuaðila sem falla undir eftirlit Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: september).

Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur m.a. það lögbundna hlutverk að taka við tilkynningum frá þjónustuaðilum um alvarleg óvænt atvik en með því er átt við atvik sem valdið hefur eða hefði getað valdið notanda þjónustu varanlegu líkamlegu eða andlegu tjóni eða orðið honum að bana. Aðilar sem veita félagslega velferðarþjónustu heyra undir eftirlit GEV en staða stofnunarinnar er í grunninn hliðstæð við Embætti landlæknis (EL) sem hefur eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum. GEV hefur víðtækar heimildir til þess að afla gagna þegar alvarlegt óvænt atvik er rannsakað en þarf einnig að reiða sig á framburð stjórnenda og starfsmanna sem veita þjónustu. Má ljóst vera að slíkur framburður er lykilatriði til þess að rannsókn nái því markmiði að koma megi í veg fyrir að sambærilegt atvik endurtaki sig. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hefur Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála haft til rannsóknar alvarlegt óvænt atvik á meðferðarheimilinu Stuðlum sem starfrækt er af Barna- og fjölskyldustofu. Í núverandi lagaumhverfi getur GEV ekki tryggt að það sem aðilar kunna að tjá sig um við stjórnsýslurannsókn GEV eða þau gögn sem GEV aflar vegna rannsóknar verði ekki afhent lögreglu komi krafa þess efnis fram. Segir enda í lögum um GEV að ef rannsókn leiðir fram vitneskju eða vekur grun um refsiverða háttsemi skuli stofnunin beina ábendingu um slíkt til lögreglu. Sú framkvæmd sem gildandi lög um GEV gerir ráð fyrir samræmist á hinn bóginn ekki þeim einstaklingsbundna rétti stjórnenda, starfsmanna og annarra málsaðila að taka þátt í meðferð stjórnsýslumáls án þess að þurfa þar með að fella á sig sök í mögulegu framhaldsmáli. Sú staða sem hér er rakin var til skamms tíma einnig fyrir hendi innan heilbrigðisþjónustunnar. Innan þess geira var brugðist við á árinu 2023 með breytingu á lögum um landlækni og lýðheilsu. Brýnt er að bregðast við þeirri stöðu sem uppi er gagnvart meðferð GEV á alvarlegum óvæntum atvikum. Stofnunin þarf að geta sinnt sínu lögbundna eftirlitshlutverki og það markmið rannsóknar að nást að komið verði í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig. Með það fyrir augum hyggst félags- og húsnæðismálaráðherra leggja fram frumvarp á vorþingi 2026 þar sem lögð verður til hliðstæð breyting og gerð var á lögum um landlækni og lýðheilsu árið 2023. Rökin að baki eru hliðstæð og myndi réttarstaða starfsmanna og stjórnenda verða sambærileg heilt yfir innan félags- og heilbrigðisþjónustunnar, nái tillögur í frumvarpsdrögunum fram að ganga.

S-26/2026· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 2. feb. 2026 – 16. feb. 2026· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika)

Markmið frumvarpsins er tryggja framkvæmd rannsókna á alvarlegum óvæntum atvikum er eiga sér stað í starfsemi þeirra þjónustuaðila sem falla undir eftirlit Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-26/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 598)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-26/2026: Drög að frumvarpi um breytingar á lögum um Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (rannsókn alvarlegra óvæntra atvika) · Alviti