Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-20/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja

Frumvarpinu er ætlað að innleiða tvær Evrópugerðir um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember); 158. þing (áætlað: september).

Með Evrópugerðunum er regluverk Evrópusambandsins um varfærniseftirlit með verðbréfafyrirtækjum í megindráttum skilið frá reglum um varfærniseftirlit með bönkum og öðrum lánastofnunum. Með því móti getur regluverkið betur tekið mið af sérstöðu hvorrar tegundar fyrirtækja fyrir sig og unnt er að hafa einfaldari löggjöf fyrir verðbréfafyrirtæki. Lagt er til að gerðirnar verði innleiddar með nýjum lögum um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja og að gildandi lög um fjármálafyrirtæki, sem eiga nú bæði við um verðbréfafyrirtæki og lánastofnanir, verði að lögum um lánastofnanir. Samhliða verði hugtakið fjármálafyrirtæki lagt af sem yfirheiti fyrir verðbréfafyrirtæki og lánastofnanir.

S-20/2026· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2026 – 12. feb. 2026· 8 umsagnir

Varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja

Frumvarpinu er ætlað að innleiða tvær Evrópugerðir um varfærniskröfur til verðbréfafyrirtækja.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-20/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 587)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (28. apríl 2026)

Átta umsagnir bárust. Fjallað er um efni þeirra og viðbrögð við þeim í 5. kafla greinargerðar með frumvarpi sem lagt var fyrir Alþingi 26. mars 2026 (587. mál á 157. löggjafarþingi).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.