Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-19/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Breyting á lögum um ökutækjatryggingar

Áformað er að innleiða í landslög tilskipun Evrópusambandsins um ökutækjatryggingar.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september); 158. þing (áætlað: janúar).

Áformað er að innleiða í íslenskan rétt tilskipun (ESB) 2021/2118 um breytingu á tilskipun 2009/103/EB um ábyrgðartryggingu vegna notkunar vélknúinna ökutækja og um að fylgja því eftir að vátrygging vegna slíkrar ábyrgðar sé tekin með breytingum á lögum um ökutækjatryggingar, nr. 30/2019. Með innleiðingu tilskipunarinnar verður tilteknum aðila falið að hafa með höndum bótagreiðslur til tjónþola verði vátryggingafélag sem vátryggði ökutæki tekið til gjaldþrota- eða slitameðferðar vegna ógjaldfærni. Einnig eru gerðar samræmdar kröfur til tjónavottorða á EES-svæðinu, skilgreiningu á hugtakinu ökutæki er breytt o.fl.

S-19/2026· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. jan. 2026 – 12. feb. 2026· 2 umsagnir

Breyting á lögum um ökutækjatryggingar

Áformað er að innleiða í landslög tilskipun Evrópusambandsins um ökutækjatryggingar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-19/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (23. febrúar 2026)

Umsagnir bárust frá tveimur aðilum. Sjá má umfjöllun um umsagnir í samráðskafla (kafla 5) í drögum að frumvarpi sem var birt í samráðsgátt 20. febrúar 2026 (mál nr. S-50/2026).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-19/2026: Breyting á lögum um ökutækjatryggingar · Alviti