Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-18/2026 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki

Frumvarpið er lagt fram í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar (ESB) 2020/1503 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki (hér eftir ECSP).

Í aðfaraorðum reglugerðar (ESB) 2020/1503 (ECSP) kemur fram að hópfjármögnun geti stuðlað að því að veita litlum og meðalstórum fyrirtækjum aðgang að fjármögnun og koma á sambandi fjármagnsmarkaða. Ásamt því að veita leið til fjármögnunar getur hópfjármögnun veitt fyrirtækjum annars konar ávinning líkt og að gefa viðskiptahugmynd ákveðna staðfestu, stuðla að betri markaðssetningu fyrirtækja og veita frumkvöðlum aðgang að miklum fjölda einstaklinga sem geta veitt hagnýtar upplýsingar. Mörg aðildarríki innan Evrópusambandsins hafa innleitt sérsniðnar landsbundnar reglur um hópfjármögnun, þ.m.t. um rekstrarfyrirkomulag vettvanga fyrir hópfjármögnun, umfang leyfilegrar starfsemi og kröfur um starfsleyfi. Ólíkar landsbundnar reglur geta hindrað veitingu hópfjármögnunarþjónustu yfir landamæri þar sem slíkt gæti dregið úr áhuga hjá annars vegar fjárfestum til að fjárfesta yfir landamæri á vettvöngum hópfjármögnunar og hins vegar hjá þjónustuveitendum hópfjármögnunar á að bjóða þjónustu sína í öðrum aðildarríkjum Evrópusambandsins en í því ríki þar sem þeir hafa staðfestu. Hópfjármögnunarþjónusta hefur þ.a.l. hingað til verið að mestu landsbundin sem hefur neikvæð áhrif á stofnun hópfjármögnunarþjónustu á vettvangi Evrópusambandsins og stendur þar með í vegi fyrir því að fyrirtæki hafi haldbæran aðgang að slíkri þjónustu, einkum hjá fyrirtækjum sem starfa á litlum landsbundnum mörkuðum. Með samræmdu evrópsku regluverki um hópfjármögnunarþjónustu yfir landamæri er stuðlað að auðveldari aðkomu til að veita og þiggja hópfjármögnunarþjónustu á innri markaði Evrópusambandsins ásamt aukinni fjárfestavernd. Frumvarpið felur í sér innleiðingu ECSP í íslenskan rétt með setningu nýrra laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki. Meginefni frumvarpsins er lögfesting ECSP og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, þar á meðal heimildir eftirlitsaðila til eftirlits og upplýsingaöflunar, viðurlög við brotum gegn ákvæðum ECSP og heimild ráðherra og Seðlabanka Íslands til að setja stjórnvaldsfyrirmæli.

S-18/2026· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. jan. 2026 – 13. feb. 2026· 0 umsagnir

Frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki

Frumvarpið er lagt fram í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar (ESB) 2020/1503 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki (hér eftir ECSP).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-18/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 513)
Niðurstöður samráðs (17. febrúar 2026)

Engar umsagnir bárust

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-18/2026: Frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki · Alviti