Frumvarp um stofnun innviðafélags
Drög að frumvarpi stofnun sérstaks innviðafélag sem heldur utan um fjármögnun og uppbyggingu tiltekinna samgöngumannvirkja.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-14/2026)
- Umsagnarfrestur hefst · til 9. febrúar 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 10 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 535)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (7. júlí 2026)
Samtals bárust tíu umsagnir um frumvarpsdrögin og í flestum þeirra var almennt tekið undir mikilvægi þess að auka fjárfestingar í samgönguinnviðum. Traust fjármögnun, sjálfstætt rekstrarumhverfi og möguleikar á tekjuöflun í gegnum veggjöld var talið skapa forsendur fyrir því að fyrirhugað innviðafélag hér á landi gæti náð sambærilegum árangri og innviðafélög í nágrannalöndum okkar. Í umsögnunum komu einnig fram athugasemdir sem voru af ólíku tagi. Leitast var við að taka mið af þeim umsögnum sem bárust við endanlega útfærslu frumvarpsins en þó þannig að tilgangur og markmið myndi nást.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (10)
- #1Baldur Geir Gunnarsson
Hjá Vegagerðinni starfa fullt af hæfileikaríku fólki með mikla reynslu í samgöngum, hönnun samgöngumannvirkja, skipulagi og fleira. Væri ekki hægt að fela Vegagerðinni þetta verkefni?
- #2Akraneskaupstaður
Sjá meðfylgjandi viðhengi.
- #3Vegagerðin
Umsögn Vegagerðarinnar er í meðfylgjandi viðhengi.
- #4Svava Halldóra Friðgeirsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn Arion banka hf.
- #5Landssamtök lífeyrissjóða
Umsögn Landssamtaka lífeyrissjóða er í viðhengi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.