Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-7/2026 · Atvinnuvegaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 (innleiðing EES reglna)

Áform um lagasetningu frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: mars); 158. þing (áætlað: september).

Áformað er að gera breytingar á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006, en breytingarnar eru þríþættar. Í fyrsta lagi er um að ræða breytingu á stærðarmörkum í lögunum. Frumvarpið felur í sér innleiðingu á framseldri tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2775 um breytingu á tilskipun (ESB) 2013/34 að því er varðar stærðarviðmið fyrir örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki eða samstæður. Stærðarmörk félaga í lögum um ársreikninga eru nú þau sömu og innan EES og er með frumvarpinu verið að hækka þau til samræmis við breytingar innan ESB. Einnig verður farið yfir endurskoðunarmörkin í lögum um ársreikninga. Í öðru lagi er um að ræða breytingar er lúta að skilum ársreikninga til opinberrar birtingar. Er verið að leggja til að stærri og kerfislega mikilvæg félög skili ársreikningi fyrr á árinu en minni félög og lengja skilafrestinn fyrir örfélög. Í þriðja lagi er um að ræða innleiðingu á tilskipun (ESB) 2021/2101 um breytingu á tilskipun 2013/34/ESB að því er varðar upplýsingagjöf tiltekinna fyrirtækja og útibúa um tekjuskattsupplýsingar kveður á um skyldu um að útbúa skýrslu með tekjuskattsupplýsingum og birta opinberlega. Breytingarnar, innleiðingar á Evróputilskipunum og breytingin á skilum á ársreikningum til opinberrar birtingar, kalla á breytingu á lögum um ársreikninga. Stærðarviðmið í lögunum færð í samræmi við. Tímanleg skil ársreikninga til opinberrar birtingar er mikilvægur liður í gagnsæi viðskiptalífsins og lagt er til að stærri og kerfislega mikilvæg félög skili fyrr ársreikningi til opinberrar birtingar. Einnig, með áherslu á gagnsæi, er tilskipun ESB um skyldu til þess að skila skýrslu um tekjuskattsupplýsingar, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, innleidd.

S-7/2026· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 15. jan. 2026 – 29. jan. 2026· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 (innleiðing EES reglna)

Áform um lagasetningu frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-7/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 556)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-7/2026: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um ársreikninga nr. 3/2006 (innleiðing EES reglna) · Alviti