Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-3/2026 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum

Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.

Markmið frumvarpsins er aukið samræmi eftirlits, einföldun og skilvirkni, en fyrir liggja greiningar og skýrslur sem sýna skort á samræmi, skýrri ábyrgð og yfirstjórn eftirlits, en umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og atvinnuvegaráðherra kynntu áform um einföldun regluverks þann 2. sept. sl., sjá hér: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/09/02/Storfelld-einfoldun-regluverks-ur-ellefu-eftirlitsadilum-i-tvo/ Helstu breytingar frumvarpsins eru að ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum verður færð frá heilbrigðiseftirliti til Umhverfis- og orkustofnunar. Útgáfa starfsleyfis verður miðlæg á vegum fyrrgreindrar stofnunar. Það athugast að fyrirhugað er að samhliða framlagningu frumvarpsins verði lagt fram frumvarp frá atvinnuvegaráðuneyti vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með matvælum.

S-3/2026· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. jan. 2026 – 17. feb. 2026· 100 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum

Kynnt eru til samráðs drög að frumvarpi til breytinga á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-3/2026)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 17. febrúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 100 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 582)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (31. mars 2026)

Ráðuneytinu bárust 100 umsagnir um frumvarpið. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 27. mars 2026, sjá þingmál nr. 582, sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í greinargerð er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (100)
  • #1Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

    Umsögn framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlitssvæða

  • #2Skagafjörður
    Byggðarráð Skagafjarðar mótmælir eindregið þeim áformum sem koma fram í framlagðu frumvarpi um að flytja allt eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar og að eftirlit með matvælum flytjist til Matvælastofnunar. Með frumvarpinu er lagt til að núverandi heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður og að rúmlega 70% af starfsemi þeirra, sem jafnframt eru tekjuberandi verkefnin, flytjist frá sveitarstjórnarstigi til ríkisins. Þessi breyting kollvarpar rekstrargrundvelli heilbrigðiseftirlitanna og skilur sveitarfélög… Lesa alla

    Byggðarráð Skagafjarðar mótmælir eindregið þeim áformum sem koma fram í framlagðu frumvarpi um að flytja allt eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum frá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga til Umhverfis- og orkustofnunar og að eftirlit með matvælum flytjist til Matvælastofnunar. Með frumvarpinu er lagt til að núverandi heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lagt niður og að rúmlega 70% af starfsemi þeirra, sem jafnframt eru tekjuberandi verkefnin, flytjist frá sveitarstjórnarstigi til ríkisins. Þessi breyting kollvarpar rekstrargrundvelli heilbrigðiseftirlitanna og skilur sveitarfélög eftir með verkefni sem eru þjónustuháð, tekjulítil og í mörgum tilvikum ófjármögnuð. Ljóst er að breytingarnar munu hafa verulega neikvæð áhrif á landsbyggðina. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga hafa áratuga reynslu af stöðugri og staðbundinni þjónustu sem byggir á þekkingu á aðstæðum, svæðum, áhættumatsháttum og atvinnulífi. Sú sérþekking sem er undirstaða hraðra viðbragða, tapast ef verkefnin eru færð í miðlægt kerfi ríkisstofnana. Þrátt fyrir fullyrðingar um að störfum verði fjölgað á landsbyggðinni er ekkert í frumvarpinu sem tryggir slíkt. Þvert á móti er hætt við að störf flytjist frá svæðinu og að sérfræðingar, sem búa í nærumhverfi sveitarfélaga, missi starf eða velji að starfa í stærri þéttbýliskjörnum þar sem stofnanirnar eru með meginstarfsemi sína. Byggðarráð telur sérlega mikilvægt að á það sé bent að ekkert í athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) kallar á niðurlagningu staðbundinna stjórnvalda eða heilbrigðiseftirlita. Ábendingar ESA snúa fyrst og fremst að samræmingu, skýrari ábyrgð og sameiginlegum upplýsingakerfum, en öll þau markmið má uppfylla án þess að leggja niður heilbrigðiseftirlitin. Frumvarpið gengur því töluvert lengra en nauðsynlegt er og er hvorki útskýrt né rökstutt með fullnægjandi hætti hvers vegna meðalhófs sé ekki gætt og vægari og hagkvæmari úrræði, svo sem styrkt samræmingarhlutverk ríkisstofnana, innleiðing sameiginlegs upplýsingakerfis og skýrari verkaskipting séu ekki valin. Eitt af áhyggjuefnum byggðarráðs er hætta á þjónusturofi við yfirfærslu verkefnanna. Frumvarpið gerir ráð fyrir að allar breytingar taki gildi 1. janúar 2027 og felur í sér að heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga verði lögð niður á sama tíma og ríkið tekur við öllum verkefnum á tveimur stofnunum. Slík framkvæmd er áhættusöm. Fyrir liggur að fjöldi starfsmanna þarf að skipta um starfsvettvang, verklag og ábyrgð breytast, upplýsingakerfi þurfa að vera tilbúin og byrjað verður að vinna eftir verkferlum sem hafa ekki verið prófaðir í framkvæmd. Reynslan sýnir að jafn umfangsmiklar verkefnayfirfærslur taka að lágmarki nokkur ár í undirbúningi til að tryggja samfellda og trausta þjónustu. Hér er hins vegar gert ráð fyrir mjög skömmum aðlögunartíma og engum skýrum áætlunum um hvernig forðast eigi rof í eftirliti, leyfisveitingum eða bráðu viðbragði. Slíkt þjónusturof myndi bitna sérstaklega á rekstraraðilum sem þurfa leyfi eða endurnýjun leyfa, ferðaþjónustufyrirtækjum, matvælafyrirtækjum og smærri verslunum sem reiða sig á reglubundnar úttektir. Að auki bitnar þetta á sveitarfélögum sem missa aðgengi að skjótum ráðleggingum eða viðbrögðum vegna mengunaróhappa, atvika eða kvartanamála auk þess sem íbúar og atvinnulíf missa aðgang að skjótum og staðbundnum viðbrögðum fagfólks sem þekkir aðstæður. Á sama tíma má leiða líkur að því að flóknar boðleiðir innan ríkiskerfisins, takmarkaður aðgangur að starfsmönnum í nærsamfélaginu og aukið álag á fáum starfsmönnum muni skapa tafir, óvissu og síendurtekinn tvíverknað næstu árin á eftir. Fjárhagsleg áhrif á sveitarfélög eru einnig umfangsmikil, þótt frumvarpið geri lítið úr þeim. Sveitarfélög munu þurfa að standa undir biðlaunakostnaði, breytingakostnaði, kostnaði við ráðningar sérfræðinga í ný verkefni og yfirfærslu staðbundinna úrlausnarefna sem fylgja engar tekjur með. Það að tekjustofnar heilbrigðiseftirlita sem eru í þessum tilvikum stærstu verkefnin eru teknir af sveitarfélögum án þess að bæta sveitarfélögum tekjumissinn, hlýtur að teljast skýr tilfærsla fjárhagslegs álags frá ríki til sveitarfélaga. Byggðarráð ítrekar að einfaldari, skilvirkari og ódýrari leið er fyrir hendi, það er að styrkja samræmingu, verklag og upplýsingakerfi innan núverandi kerfis, án þess að leggja heilbrigðiseftirlitin niður. Sú leið myndi tryggja betri gæði, meiri samfellu og jafnt aðgengi að þjónustu um allt land. Með vísan til alls framangreinds tekur byggðarráð Skagafjarðar undir umsögn og sjónarmið SHÍ að öllu leyti, telur frumvarpið ómótað, lítt rökstutt og líklegt til að rýra þjónustu við íbúa og atvinnulíf um land allt, og skorar á ráðherra að draga áformin til baka og hefja í staðinn frekara samráð við sveitarfélög og SHÍ um úrbætur sem byggja á raunhæfum, hagkvæmum og sanngjörnum lausnum.

  • #3Grímsnes-og Grafningshreppur
    Sveitarstjórn Grímsnes-og Grafningshrepps vísar til fyrri bókunar sinnar um fyrirhugaðar breytingar á regluverki á sviði hollustuhátta og mengunarvarna. Sveitarstjórn tekur fram að þrátt fyrir framlagningu frumvarpsdraga séu enn ýmis álitaefni óleyst, einkum hvað varðar áhrif breytinganna á sveitarfélög, fjárhagsleg og fagleg. Sveitarstjórn ítrekar mikilvægi þess að áframhaldandi vinna við málið fari fram í nánu samráði við sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðeigandi hagaðila, og að tryggt verði að breytingarnar leiði hvorki til kostnaðarauka né þjónustuskerðingar fyrir sv… Lesa alla

    Sveitarstjórn Grímsnes-og Grafningshrepps vísar til fyrri bókunar sinnar um fyrirhugaðar breytingar á regluverki á sviði hollustuhátta og mengunarvarna. Sveitarstjórn tekur fram að þrátt fyrir framlagningu frumvarpsdraga séu enn ýmis álitaefni óleyst, einkum hvað varðar áhrif breytinganna á sveitarfélög, fjárhagsleg og fagleg. Sveitarstjórn ítrekar mikilvægi þess að áframhaldandi vinna við málið fari fram í nánu samráði við sveitarfélög, Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra viðeigandi hagaðila, og að tryggt verði að breytingarnar leiði hvorki til kostnaðarauka né þjónustuskerðingar fyrir sveitarfélögin.

  • #4Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs.

    Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi birta hér umsögn sína um frumvarpið, sjá viðhengi.

  • #5Húnaþing vestra

    Byggðarráð Húnaþings vestra tekur heilshugar undir umsögn Samtaka helbrigðiseftirlitssvæða um málið og lýsir yfir áhyggjum af áhrifum frumvarpsins nái það fram að ganga. Fyrir hönd byggðarráðs, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-3/2026: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum · Alviti