Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-259/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Heildarendurskoðun á fyrirkomulagi við fjárfestingar ríkisins

Stefnt er að heildarendurskoðun á núgildandi fyrirkomulagi um opinberar framkvæmdir til að tryggja að samræmd málsmeðferð og fagleg verkefnastjórnsýsla gildi yfir allar stærri fjárfestingar ríkisins.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: febrúar); 158. þing (áætlað: október).

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um fjárfestingar ríkisins sem felur í sér heildarendurskoðun á gildandi lögum um skipan opinberra framkvæmda. Í frumvarpinu verða markmið og gildissvið núgildandi regluverks endurskoðað þannig að það nái yfir allar stærri og flóknari fjárfestingar ríkisins, óháð því hvort um sé að ræða byggingar, mannvirki, tæki, búnað, stafræna innviði eða aðrar óefnislegar eignir. Með frumvarpinu er stefnt að innleiðingu á samræmdu ferli sem nær frá stefnumótun til skilamats. Ferlið byggir á fimm skýrt tilgreindum stigum: tilefnisgreiningu, valkostagreiningu, áætlanagerð, framkvæmd og skilamat og tryggir samanburðarhæft mat á stærri fjárfestingum, skýra ábyrgð og gagnsæi á hverju stigi í samræmi við alþjóðleg viðmið. Með því er jafnframt tryggt að einstakar fjárfestingar tengist fjármálaáætlun og langtímastefnu ríkisins. Ábyrgð og boðleiðir verða skýrari með skilgreindu hlutverki ráðuneyta, fagráðs um opinberar fjárfestingar og framkvæmdaraðila. Þá verður kveðið á um langtímastefnu og áætlanir um forgangsröðun til meðallangs og skemmri tíma til að styrkja verkefnaval og samræma ákvarðanir við markmið stjórnvalda. Önnur úrræði en lagasetning þykja ekki koma til greina þar sem umfang og eðli breytinganna krefjast skýrrar lagastoðar til að tryggja samræmda framkvæmd og ná fram þeim markmiðum sem stefnt er að með endurskoðun núgildandi regluverks

S-259/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. des. 2025 – 20. jan. 2026· 1 umsögn

Heildarendurskoðun á fyrirkomulagi við fjárfestingar ríkisins

Stefnt er að heildarendurskoðun á núgildandi fyrirkomulagi um opinberar framkvæmdir til að tryggja að samræmd málsmeðferð og fagleg verkefnastjórnsýsla gildi yfir allar stærri fjárfestingar ríkisins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-259/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (7. júlí 2026)

Umsagnir frá einum aðila einum aðila. Í umsögnunum var almennt tekið jákvætt í að lögfesta ætti skýrari og formfastari umgjörð um fjárfestingar ríkisins. Unnið verður áfram að gerð fruvmarp um fjárfestingar ríkisisn sem felur í heildarendurskoðun á núgildandi umgjörð.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-259/2025: Heildarendurskoðun á fyrirkomulagi við fjárfestingar ríkisins · Alviti