Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-258/2025 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, kostnaður o.fl.) og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (umsjón framkvæmda)

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, kostnaður o.fl.) og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (umsjón framkvæmda).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember); 158. þing (áætlað: september).

Í því skyni að auka skýrleika laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum er lögð til breyting á markmiðsákvæði laganna svo það samræmist betur þeim markmiðum sem lágu að baki upphaflegri lagasetningu, þ.e. að aftra manntjóni og slysum af völdum ofanflóða á heimilum fólks sem og á mennta- og heilbrigðisstofnunum. Til einföldunar stendur til að afnema lánveitingar úr ofanflóðasjóði til sveitarfélaga en þess í stað hækka kostnaðarhlutfall ofanflóðasjóðs vegna undirbúnings og framkvæmda við varnarvirki sem og vegna kaupa á eignum eða eignarnáms. Þá er kostnaðarhlutfall ofanflóðasjóðs hækkað úr 60% í 99% vegna viðhalds á varnarvirkjum. Eins er lagt til að mat Veðurstofu Íslands þurfi að liggja fyrir ef nota á fé ofanflóðasjóðs til að kaupa upp lóðir eða aðrar fasteignir í þeim tilvikum þegar varnarvirki auka ofanflóðahættu á þeim lóðum og fasteignum. Lögð er til viðbót við lögin um endurskoðun hættumats hafi forsendur breyst, skerpt er á því að eftirlit með hættu á ofanflóðum á vegum, skipulögðum skíðasvæðum, í ferðaþjónustu og annarri starfsemi sé á ábyrgð viðkomandi rekstraraðila og eins er lögð til lögfesting skiptingar á hættusvæðum í áhættuflokka líkt og kveðið er á um í reglugerð nr. 505/2000. Þá er í frumvarpsdrögunum lagt til að ákvæði laganna verði aðlöguð að breyttu hlutverki almannavarnanefnda. Lagt er til að sveitarfélögum verði gert óheimilt að selja fasteignir sem keyptar hafa verið með fé ofanflóðasjóðs, nema til flutnings af hættusvæði, og að sama skapi verði óheimilt að skipuleggja íbúðabyggð, frístundabyggð eða svæði fyrir atvinnustarfsemi nema tryggt sé að áhætta fólks m.t.t. ofanflóða verði ásættanleg. Jafnframt gera frumvarpsdrögin ráð fyrir að óheimilt verði að dvelja í eða á eignum á hættusvæði, sem keyptar hafa verið eða teknar eignarnámi í samræmi við 11. gr. laganna, á tímabilinu 1. nóvember til 30. apríl. Ákvæðinu er ætlað að ná til dvalar í eða á hvers konar eignum en á íbúðarhúsum á umræddum svæðum, sem keypt voru með fé ofanflóðasjóðs en sveitarfélög hafa síðan selt áfram á almennum markaði, hvílir þinglýst kvöð um dvalarbann á ákveðnum tíma ársins. Ákvæðinu er þó ekki ætlað að ná til dvalar sem er nauðsynleg vegna atvinnustarfsemi sem fram fer í eign á hættusvæði og dvölin eykur ekki heildaráhættu á viðkomandi svæði, t.d. með fjölgun starfsmanna eða annas konar aukinni viðveru. Eins er ákvæðinu ekki ætlað að ná til dvalar í eignum í dreifbýli sem ekki hafa verið keyptar upp. Lagt er til að lögreglustjóri fái heimild til að leggja sektir á einstaklinga og beita valdi til að rýma eignir á hættusvæði verði brotið gegn banninu. Enn fremur er gerð tillaga um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála, nr. 120/2012, á þá leið að Vegagerðin fái heimild til að taka að sér verkefni fyrir ríki og sveitarfélög sem tengjast vörnum gegn ofanflóðum.

S-258/2025· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 22. des. 2025 – 16. jan. 2026· 13 umsagnir

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, kostnaður o.fl.) og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (umsjón framkvæmda)

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, kostnaður o.fl.) og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (umsjón framkvæmda).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-258/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 16. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 499)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. júlí 2026)

B-liður 3. gr. var styttur, bætt við c-lið 4. gr. að átt sé við áður óbyggð svæði, d-lið 4. gr. breytt, a-liður 8. gr. tekin n út, 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. tekinn út.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #1Magnús Kristján Guðmundsson

    Gott mál. Það þyrfti líka að setja meiri kraft í að klára þetta fyrr en áætlað er.

  • #2Svava Björk Jónasdóttir

    Með þessari breytingu á lögunum, verður þá heimilaður dvalartími í sumarhúsum á snjóflóðasvæðum sá sami um allt land? Í dag er ósamræmi milli svæða t.d. er heimilt að dvelja í Tungudal í Skutulsfirði frá 15.apríl en í sumarbyggðinni í Súðavík, í næsta firði, má ekki dvelja fyrr en frá 30.apríl.

  • #3Ragnar Bragason
    Athugasemd vegna reglna um viðveru í húsum á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum Með þessari athugasemd vil ég koma á framfæri sjónarmiðum vegna reglna um viðveru í húsum á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum, byggðum á persónulegri reynslu minni sem íbúi á skilgreindu dvalarsvæði í Súðavík yfir vor- og sumarmánuði síðustu 26 ár. Í opinberri umræðu hefur komið fram að bann við vetrardvöl í húsum á slíkum svæðum sé ítrekað brotið og að lögregla hafi takmörkuð úrræði til að bregðast við því. Engar sannanir hafa hins vegar verið lagðar fram til stuðnings þessum fullyrðingum og tel ég þær því órök… Lesa alla

    Athugasemd vegna reglna um viðveru í húsum á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum Með þessari athugasemd vil ég koma á framfæri sjónarmiðum vegna reglna um viðveru í húsum á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum, byggðum á persónulegri reynslu minni sem íbúi á skilgreindu dvalarsvæði í Súðavík yfir vor- og sumarmánuði síðustu 26 ár. Í opinberri umræðu hefur komið fram að bann við vetrardvöl í húsum á slíkum svæðum sé ítrekað brotið og að lögregla hafi takmörkuð úrræði til að bregðast við því. Engar sannanir hafa hins vegar verið lagðar fram til stuðnings þessum fullyrðingum og tel ég þær því órökstuddar. Það er eðlilegt og réttlætanlegt að beita viðurlögum, þar á meðal sektum, ef fólk dvelur í húsum utan leyfilegs dvalartíma. Hins vegar er algerlega óásættanlegt að reglur um leyfilegan dvalartíma séu ekki samræmdar milli byggðarlaga sem öll eru skilgreind á snjóflóðahættusvæðum. Sem dæmi má nefna að í Tunguskógi á Ísafirði hefst leyfilegur dvalartími húseigenda 16. apríl, en í Súðavík ekki fyrr en 30. apríl, þrátt fyrir að aðeins séu um 20 km á milli svæðanna. Slíkt misræmi er ómálefnalegt og skapar ójafnræði milli húseigenda við sambærilegar aðstæður. Ekki er samræmi í reglum um árlegan dvalartíma milli byggðarlaga á Vestfjörðum og tel ég að slíkt fyrirkomulag brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar, sem kveður á um að sambærileg tilvik skuli hljóta sambærilega meðferð. Félag sumarhúsaeigenda í Súðavík hefur síðastliðin átta ár ítrekað óskað eftir því við hlutaðeigandi stjórnvöld að heimilað verði að dvelja í húsum á svæðinu frá 16. apríl, til jafns við eigendur húsa í Tunguskógi á Ísafirði. Það er sérstaklega mikilvægt í ljósi þess að á báðum svæðum hafa fallið snjóflóð sem kostað hafa mannslíf. Að öllu framangreindu virtu er brýnt að samræma reglur um leyfilegan dvalartíma á snjóflóðahættusvæðum á Vestfjörðum, með það að markmiði að tryggja jafnræði, réttaröryggi og skýra stjórnsýslu. Ég tel því mikilvægt að: 1. Samræma leyfilegan dvalartíma fyrir húseigendur á snjóflóðahættusvæðum innan Vestfjarða svo að réttaröryggi og jafnræði sé tryggt. 2. Endurskoða gildistíma dvalartíma í samráði við íbúa og sérfræðinga í snjóflóðamálum til að stuðla að sanngirni og skýrum reglugerðum. Ég hvet ráðuneyti til að taka tillit til þessara atriða við áframhaldandi vinnu og stuðla að slíku samræmi í regluverki. Með vinsemd og virðingu, Ragnar Bragason
 Aðalgata 26, Súðavík
 bragasonragnar@gmail.com

  • #4Ísafjarðarbær

    Umsögn Ísafjarðarbæjar.

  • #5Karl Már Einarsson

    Athugasemdir við Mál nr. S-258/2025

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-258/2025: Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum (markmið, kostnaður o.fl.) og um breytingu á lögum um Vegagerðina, framkvæmdastofnun samgöngumála (umsjón framkvæmda) · Alviti