Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-257/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026

Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026.

Kynnt eru drög að lagafrumvarpi um breytingu á kosningalögum nr. 112/2021, sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011 og lögum um lögheimili og aðsetur nr. 80/2018. Tilefni fyrirhugaðra lagabreytinga eru þær aðstæður sem skapast hafa í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara, það er jarðhræringa og eldsumbrota, sem varað hafa frá 2019. Kosningarétturinn er undirstöðuréttur í lýðræðissamfélagi. Því er gert ráð fyrir að kosningar fari fram í Grindavík vorið 2026 nema ófyrirsjáanlegir atburðir hindri. Hins vegar eru ýmis álitamál sem þarf að leiða til lykta og lúta meðal annars því að því hverjir hafi kosningarétt og kjörgengi. Með frumvarpinu er lagt til að þeir sem áttu lögheimili í Grindavíkurbæ 9. nóvember 2023 hafi val um að kjósa í Grindavík eða því sveitarfélagi sem þeir eiga nú lögheimili í. Hvað varðar kjörgengi er lagt til að það haldast í hendur við ofangreindar sérreglur um kosningarrétt og haldist óbreytt út kjörtímabilið. Þá þarf að útfæra kjörgengi í nefndum sveitarfélagsins þannig að störf nefnda, stjórna og ráða séu óröskuð á kjörtímabilinu.

S-257/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. des. 2025 – 7. jan. 2026· 1 umsögn

Frumvarp vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026

Drög að frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-257/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 400)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. september 2026)

Ein umsögn barst um frumvarpið frá Sveitarfélaginu Vogar. Var frumvarpið lagt fram á Alþingi 29. janúar 2026 og var samþykkt sem lög nr. 13/2026.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-257/2025: Frumvarp vegna sveitarstjórnarkosninga í Grindavík 2026 · Alviti