Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-256/2025 · Innviðaráðuneytið

Frumvarpsdrög um netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni

Frumvarpinu er ætlað að innleiða reglugerð (ESB) 2019/881 um Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA) og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og samskiptatækja (e. Cybersecurity Act).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: febrúar); 158. þing (áætlað: september).

Meginmarkmið reglugerðar ESB nr. 2019/881 er annars vegar að tryggja Netöryggisstofnun Evrópusambandsins, sem í daglegu tali er kölluð ENISA, varanlegan starfsgrundvöll og efla starfsemi hennar á sviði netöryggis. Hins vegar er markmið reglugerðarinnar að koma á fót samræmdu, valkvæðu, evrópsku vottunarferli fyrir vörur, þjónustu og ferla á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni (e. Information and Communication Technology – ICT), til þess m.a. að vernda aðgengi, réttleika eða leynd gagna eða tendrar virkni eða þjónustu sem boðið er upp á með slíkum vörum, þjónustu eða ferlum. Gerðin er tekin upp í íslenskan rétt með tilvísunarákvæði, sbr. 1. gr. frumvarpsdraga, en í öðrum ákvæðum frumvarpsdraga eru gerðar nauðsynlegar aðlaganir og skilgreiningar til að aðlaga hana að íslensku stofnanaumhverfi og atvinnulífi. Má þar einna helst nefna að Fjarskiptastofu er falið hlutverk landsbundins netöryggisvottunaryfirvalds, sbr. 3. gr., stofnunni veittar heimildir til að útvista tilteknum verkefnum til ytri aðila sér sérstaklega tilgreint að sá sem óskar netöryggisvottunar skuli greiða kostnað sem hlýst af útgáfu vottorðinu, sbr. 4. gr., eftirlitsheimildir stofnunarinnar eru skilgreindar, sbr. 5. gr., stofnuninni er veitt heimilt til að leggja á dag- og stjórnvaldssektir vegna brota gegn ákvæðum laganna, sbr. 12. og 13. gr., auk þess að ráðherra eru veittar reglugerðarheimildir til að kveða á um nánari framkvæmd laganna, sbr. 14. gr.

S-256/2025· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 19. des. 2025 – 15. jan. 2026· 0 umsagnir

Frumvarpsdrög um netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni

Frumvarpinu er ætlað að innleiða reglugerð (ESB) 2019/881 um Netöryggisstofnun Evrópusambandsins (ENISA) og netöryggisvottunarkerfi upplýsinga- og samskiptatækja (e. Cybersecurity Act).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-256/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 571)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-256/2025: Frumvarpsdrög um netöryggisvottun á sviði upplýsinga- og fjarskiptatækni · Alviti