Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-255/2025 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)

Drög að frumvarpi til breytingar á lögum 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, að því er varðar vindorku og verndarflokk áætlunarinnar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október); 158. þing (áætlað: janúar).

Í lögum nr. 48/2011, um verndar og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun), er kveðið á um að allir virkjunarkostir, 10 MW og stærri, skuli fá umfjöllun í áætlun þar sem þeim er raðað í orkunýtingarflokk, biðflokk og verndarflokk. Samkvæmt meðfylgjandi frumvarpsdrögum er gert ráð fyrir að virkjunarhugmyndir í vindorku verði að meginstefnu til metnar með sambærilegum hætti og aðrir orkukostir, en þó með vissum undantekningum vegna sérstöðu vindorkunnar. Er þar m.a. horft til þess að vindorka er ekki staðbundin auðlind í sama skilningi og aðrir orkukostir og að áhrif vindorkumannvirkja á landslag og umhverfi geta verið víðtæk. Vindorka verði því tekin fyrir í sérstakri grein laganna þar sem sett verði skýr viðmið og sjónarmið fyrir verkefnisstjórn verndar- og orkunýtingaráætlunar að hafa til hliðsjónar við mat á virkjunarhugmyndum í vindorku. Þannig verði m.a. horft til þess hvort fyrirhuguð virkjunarhugmynd sé á röskuðu svæði, hvaða áhrif hún hafi á nálæg friðlýst svæði, óbyggð víðerni og mikilvæg fuglasvæði, hvort hún efli raforkuöryggi í viðkomandi landshluta, sem og áhrif á atvinnulíf og byggðaþróun. Í frumvarpsdrögunum er einnig lagt til að þau landsvæði sem talin eru hafa það hátt verndargildi að þau eru flokkuð í verndarflokk áætlunarinnar sæti ítarlegri vernd en gildandi lög gera ráð fyrir. Markmiðið er að tryggja að svæðin verði fyrst og fremst tekin til skoðunar með það að leiðarljósi að friðlýsa þau á grundvelli almennra friðlýsingarflokka. Með hliðsjón af stærð, umfangi og sýnileika vindorkumannvirkja eru jafnframt lagðar til skýrar landfræðilegar takmarkanir á hagnýtingu vindorku. Þær miða að því að undanskilja allra verðmætustu og viðkvæmustu svæði landsins frá slíkri nýtingu, þar á meðal friðlýst svæði og önnur svæði sem njóta sérstakrar verndar, svæði innan marka friðhelgunar menningarminja, miðhálendi Íslands ásamt fleiri verðmætum svæðum. Í frumvarpinu er jafnframt lögð áhersla á að styrkja skipulagsvald sveitarfélaga þegar kemur að uppbyggingu vindorkuvera og að endanleg ákvörðun um hvort vindorkumannvirki rísi á tilteknu svæði verði á forræði sveitarstjórna í samræmi við skipulagslög og mat á staðbundnum aðstæðum og áhrifum. Gert er ráð fyrir að settar verði tilteknar sérreglur um áherslur við mat slíkra virkjunarhugmynda enda eru þær að mörgu leyti frábrugðnar hinum hefðbundnu orkukostum, vatnsorku og jarðvarma. Lagðar eru til takmarkanir á hagnýtingu vindorku á tilteknum mjög viðkvæmum svæðum landsins, byggðar á hlutlægum viðmiðum og að virkjunarkostir í vindorku verði undanþegnir þeirri meginreglu laganna að þeir séu bindandi gagnvart skipulagsvaldi sveitarfélaga. Einnig eru lagðar til breytingar sem miða að því að skerpa á vernd þeirra landsvæða sem falla í verndarflokk áætlunarinnar þannig að byggt verði á þeirri almennu flokkum friðlýstra svæða sem finna má í VIII. kafla l. nr. 60/2013, um náttúruvernd eins og kostur er við friðlýsingu þeirra, í stað þess að svæðin í verndarflokki áætlunarinnar séu einungis friðlýst gagnvart orkuvinnslu. Sú leið komi einungis til greina að fullreynt sé að friðlýsa svæðið með almennum hætti vegna andstöðu landeigenda eða sveitarfélags.

S-255/2025· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 19. des. 2025 – 19. jan. 2026· 31 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)

Drög að frumvarpi til breytingar á lögum 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun, að því er varðar vindorku og verndarflokk áætlunarinnar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-255/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 31 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 565)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (31)
  • #1Anna Sigríður Einarsdóttir
    "Þannig verði m.a. horft til þess hvort fyrirhuguð virkjunarhugmynd sé á röskuðu svæði, hvaða áhrif hún hafi á nálæg friðlýst svæði, óbyggð víðerni og mikilvæg fuglasvæði" Hér gleymist alveg að huga að því hvaða áhrif vindorkuver hafa á fólk ! Ég bý að þeirri reynslu að hafa búið við hlið vindmyllu, sem reyndar var pínulítil miðað við fyrirhugaða stærð vindorkuveranna. Hávaðamengun er mjög mikil og síbreytileg. Það er misvindasamt á Íslandi sem veldur því að hvinurinn verður með mjög mismundandi tíðni sem er streituvaldandi fyrir fólk. Reynsla erlendis er sú að fasteignir, sem hljóðmengun… Lesa alla

    "Þannig verði m.a. horft til þess hvort fyrirhuguð virkjunarhugmynd sé á röskuðu svæði, hvaða áhrif hún hafi á nálæg friðlýst svæði, óbyggð víðerni og mikilvæg fuglasvæði" Hér gleymist alveg að huga að því hvaða áhrif vindorkuver hafa á fólk ! Ég bý að þeirri reynslu að hafa búið við hlið vindmyllu, sem reyndar var pínulítil miðað við fyrirhugaða stærð vindorkuveranna. Hávaðamengun er mjög mikil og síbreytileg. Það er misvindasamt á Íslandi sem veldur því að hvinurinn verður með mjög mismundandi tíðni sem er streituvaldandi fyrir fólk. Reynsla erlendis er sú að fasteignir, sem hljóðmengun frá vindorkuverum nær til, falla í verði. Það er einfaldlega vegna þess að enginn vill búa þar sem sífelldur mishár hvinur er til staðar. Hvinur og lágtíðnihljóð sem trufla fólk í daglegu lífi. Því er mér ómögulegt að skilja að einhverjum detti í hug að vindorkuver í nágrenni höfuðborgarsvæðisins sé góð hugmynd. Á sama hátt er útilokað að planta vindorkuverum út um allt land með tilheyrandi hvini, sjónmengun og rústun náttúru og mannlífs. Ferðaþjónustan mun einnig hljóta skaða af en mestar áhyggjur hef ég af fólkinu sem mun fá þennan iðnað í bakgarðinn. Ég biðla til ráðherra að hinkra um stund og tjalda síðan til tveggja nátta við Vaðölduver þegar það verður gangsett í haust og upplifa sjálfur hávaðann, áður en nokkuð annað skref verður tekið.

  • #2Skagafjörður
    Meirihluti byggðarráðs samþykkir eftirfarandi umsögn: Markmið íslenskra stjórnvalda um orkuskipti, er að Ísland skuli ná kolefnishlutleysi og að fullum orkuskiptum skuli náð eigi síðar en árið 2040. Rétt er að benda á að framboð raforku í dag nær engan veginn að fullnægja eftirspurn eftir henni og að einnig er mikill munur á milli landshluta hvað varðar aðgengi að orku. Þar ræður fjarlægð frá virkjunum og flutningskerfið mestu. Í Skagafirði er hvoru tveggja andsnúið íbúum og atvinnulífi héraðsins, þ.e.a.s raforkuframleiðsla á svæðinu er vart mælanleg og flutningskerfið í gegnum fjörðinn er bæð… Lesa alla

    Meirihluti byggðarráðs samþykkir eftirfarandi umsögn: Markmið íslenskra stjórnvalda um orkuskipti, er að Ísland skuli ná kolefnishlutleysi og að fullum orkuskiptum skuli náð eigi síðar en árið 2040. Rétt er að benda á að framboð raforku í dag nær engan veginn að fullnægja eftirspurn eftir henni og að einnig er mikill munur á milli landshluta hvað varðar aðgengi að orku. Þar ræður fjarlægð frá virkjunum og flutningskerfið mestu. Í Skagafirði er hvoru tveggja andsnúið íbúum og atvinnulífi héraðsins, þ.e.a.s raforkuframleiðsla á svæðinu er vart mælanleg og flutningskerfið í gegnum fjörðinn er bæði gamalt og fulllestað. Framboð af raforku umfram það magn sem notað er í dag er því mjög takmarkað. Ástæða þess að raforkuframleiðsla á svæðinu er lítil er að fáir álitlegir vatnsaflsvirkjunarkostir sem framleiða meira en 1 MW er hér að finna. Stærri virkjunarkostir eins og Skatastaðavirkjun eða Villinganesvirkjun hafa verið í afar löngu matsferli í rammaáætlun sem ekki sér fyrir endann á. Meirihluti byggðarráðs Skagafjarðar fagnar áformum um einföldun og flýtingu málsmeðferðar vindorkukosta en hefur efasemdir um að núverandi ferli rammaáætlunar stuðli að slíkri niðurstöðu. Með því að opna á þann möguleika að stytta og einfalda ferlið fyrir byggingu vindmylla upp að ákveðinni stærð gæti ferlið þó styst hvað það varðar og möguleikar sveitarfélaga til að efla orkuframleiðslu á eigin svæði aukist. Það er jákvætt, ekki síst fyrir sveitarfélög eins og Skagafjörð, þar sem aðgengi að aukinni raforku er mjög takmarkað.

  • #3Heilbrigðiseftirlit Vesturlands

    Sjá meðfylgjandi umsögn

  • #4Langanesbyggð

    Umsögn um frumvarpið er í meðfylgjandi skjali.

  • #5Orkusalan ehf.

    Meðfylgjandi er umsögn Orkusölunnar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-255/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum 48/2011, um verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur) · Alviti