Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-252/2025 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um lagareldi

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um lagareldi.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: febrúar).

Markmið frumvarpsdraganna er að styrkja lagaramma lagareldis og sporna gegn neikvæðum umhverfisáhrifum með því að innleiða hvata og þannig skapa traustari grundvöll fyrir sjálfbæra verðmætasköpun. Frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að ein heildarlög gildi um starfsemi lagareldis (sjókvíaeldi, landeldi, hafeldi og fjarðabeit) og að felld verði úr gildi lög nr. 71/2008 um fiskeldi og lög nr. 89/2019 um töku gjalds vegna fiskeldis í sjó og fiskeldissjóð. Með frumvarpinu eru lagðar til nokkrar breytingar frá framangreindum lögum sem margar hverjar stafa af ábendingum Ríkisendurskoðunar sem fram komu í stjórnsýsluúttekt embættisins á starfsemi sjókvíaeldis í janúar 2023. Efni XIV. kafla frumvarpsdraganna lýtur að innheimtu framleiðslugjalds. Umræddur kafli frumvarpsdraganna er enn í vinnslu. Áður en frumvarpið verður lagt fram er fyrirhugað að endurskoða og nánar útfæra gjaldtökufyrirkomulagið með það að markmiði að það endurspegli afkomu fyrirtækjanna sem ber að greiða gjaldið og dragi ekki úr samkeppnishæfni greinarinnar. 1) Sjókvíaeldi Helstu breytingar og nýmæli frumvarpsins sem snúa að sjókvíaeldi eru eftirfarandi: • Auknir hvatar til nýtingar lokaðs búnaðar og ófrjós lax • Vöktun í ám með það að markmiði að auka vísindalega þekkingu • Áhættustýrt skipulag með innleiðingu smitvarnasvæða. • Leyfisveitingar og eftirlit verða einfölduð, m.a. með sameiningu rekstrarleyfis Matvælastofnunar og starfsleyfis Umhverfis- og orkustofnunnar • Auknar eftirlitsheimildir Matvælastofnunar og aukin áhersla á rafrænt eftirlit • Breytt fyrirkomulag á útfærslu og framkvæmd áhættumats erfðablöndunar • Skilvirkari viðbrögð vegna stroks • Aukið aðhald og viðbrögð vegna lúsasmits og affalla, m.a. með innheimtu umhverfisgjalds • Hertar reglur um eftirlit með kynþroska eldislaxa. • Breytt fyrirkomulag á úthlutun til sveitarfélaga úr Fiskeldissjóði 2) Landeldi Eðli máls samkvæmt er nauðsyn og tilefni frumvarpsins talsvert annars eðlis þegar kemur að landeldi. Regluverk greinarinnar byggir í dag að mestu leyti á lögum nr. 71/2008, um fiskeldi, sem einkum eru skrifuð með þarfir sjókvíaeldis í huga og ná illa utan um sérstöðu landeldis, s.s. þegar kemur að leyfisveitingum, eftirliti og dýravelferð. Með frumvarpinu er bætt úr þessu þar sem sérstaklega er fjallað um landeldi í einum þætti frumvarpsins. Viðamesti hluti þeirrar umfjöllunar lítur að smitvörnum og dýraheilbrigði í landeldi. Með frumvarpinu er reynt að draga fram þau sérkenni sem skilja að landeldi frá sjókvíaeldi sem helgast af ólíku eldisumhverfi og ólíkum áskorunum, jafnt fyrir rekstraraðila og Matvælastofnun sem annast eftirlit með starfseminni. 3) Hafeldi Í fjórða þætti frumvarpsins er fjallað um hafeldi en það er eldi sem er stundað utan fjarðarkerfa. Hafeldi er enn sem komið er á hugmyndastigi hér á landi en aukinn áhugi hefur verið á slíkri starfsemi síðastliðin ár. Til að komast að því hvort og hvar hafeldi sé vænlegt í íslenskri lögsögu þarf að ráðast í fjölmargar og ítarlegar rannsóknir. Með frumvarpinu er sniðinn rammi utan um þær rannsóknir og leyfisveitingaferlið en miklu máli skiptir að fyrirsjáanleiki og skýr löggjöf sé fyrir hendi til að styðja við fyrstu skref greinarinnar. 4) Fjarðabeit Að endingu er að finna nýmæli í frumvarpinu sem er fjarðabeit. Í hnotskurn felst í fjarðabeit í að rækta fisk sem er haldið í lokuðu búri á talsverðu dýpi og nærist fiskurinn eingöngu á náttúrulegu dýrasvifi sem er laðað að búrinu með ljóstækni. Þessi grein lagareldis er enn frumstigi og ætlunin með frumvarpinu er að veita tilraunum í greininni lagastoð. Sú reynsla sem fæst með slíkum tilraunum kann seinna meir að verða tilefni til setningu ítarlegri reglna um slíkan rekstur en lagt er til í þessu frumvarpi. Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um frumvarpsdrögin.

S-252/2025· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. des. 2025 – 26. jan. 2026· 923 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um lagareldi

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um lagareldi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-252/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 26. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 923 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 529)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (923)
  • #1Skagafjörður
    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar löngu tímabærri löggjöf um lagareldi sem ætlað er að mæta áskorunum í umhverfi greinarinnar miðað við nútímann og uppbyggingu og þróun í greininni á undanförnum árum. Ljóst er að uppbygging í lagareldi er gríðarlega mikilvægt mörgum byggðarlögum á Íslandi og einnig að fram undan eru mikil tækifæri í landeldi sem ramma þarf löggjöf utan um. Uppbygging í landbúnaði stuðlar bæði að mikilli atvinnu- og verðmætasköpun, ekki síst hjá byggðarlögum sem áður áttu á brattann að sækja, en samhliða uppbyggingu þarf að gæta að því að áhrif hennar verði ekki neikvæð á umhverfi… Lesa alla

    Byggðarráð Skagafjarðar fagnar löngu tímabærri löggjöf um lagareldi sem ætlað er að mæta áskorunum í umhverfi greinarinnar miðað við nútímann og uppbyggingu og þróun í greininni á undanförnum árum. Ljóst er að uppbygging í lagareldi er gríðarlega mikilvægt mörgum byggðarlögum á Íslandi og einnig að fram undan eru mikil tækifæri í landeldi sem ramma þarf löggjöf utan um. Uppbygging í landbúnaði stuðlar bæði að mikilli atvinnu- og verðmætasköpun, ekki síst hjá byggðarlögum sem áður áttu á brattann að sækja, en samhliða uppbyggingu þarf að gæta að því að áhrif hennar verði ekki neikvæð á umhverfið. Jafnframt er nauðsynlegt að endurskoða tekjuskiptingu á milli ríkis og sveitarfélaga vegna greinarinnar. Brýnt er að sveitarfélög fái sína hlutdeild með beinum hætti, líkt og t.d. í Noregi, í stað þess að þurfa að sækja um úthlutun úr Fiskeldissjóði. Er því fagnað að komin sé fram tillaga um samfélagsframlag sem rennur beint til sveitarfélaga en eðlilegt væri að það framlag yrði ákveðið hlutfall af framleiðslugjaldi í stað fjárveitingar af fjárlögum hverju sinni. Byggðarráð leggur áherslu á mikilvægi þess að eftirlit og stjórnsýsla með þessari starfsemi sé virk og að leyfisveitingaferlið sé skýrt og fyrirsjáanlegt fyrir rekstraraðila. Einnig að nauðsynlegt sé að byggja upp aukið eftirlit í þeim landshlutum sem fiskeldi er umsvifamest, svo það sé sem mest í tengslum við nærsamfélagið. Mikilvægt er að ákvarðanir í þessum málum byggist á greinargóðum rannsóknum og gögnum sem taka mið af íslenskum aðstæðum.

  • #2EB Medica slf.

    Ekki á að gefa heimildir til opins sjókvíaeldis og ætti því að draga fyrirliggjandi drög að lögum um lagareldi til baka, hið minnsta að fella út allar greinar þess er varða sjókvíaeldi.

  • #3Magnús Stephensen

    Ágæti viðtakandi, ef einhverntíma er ástæða til að hlusta á skýran vilja þjóðarinnar þá er það núna. Í heimi þar sem stórfyrirtæki eru að níðast á verðmætum náttúrunnar til frambúðar eiga lýðræðislega kjörin stjórnvöld að huga að lífskjörum komandi kynslóða. Þið gátuð staðið upprétt gagnvart útgerðinni og sýnið nú þann manndóm að koma í veg fyrir að firðir landsins okkar breytist í drullupolla og íslenski vilti laxinn verði einungis til sýnis uppstoppaður við hlið geirfuglsins.

  • #4Magnús Geir Jensson
    Ég tel að frumvarpsdrögin endurspegli alvarlegan skort á framtíðarsýn í málefnum sjókvíaeldis og byggi á þeirri ranghugmynd að hægt sé að „stjórna“ framleiðsluaðferð sem hefur ítrekað sýnt að hún sé ósamrýmanleg náttúruvernd, dýravelferð og varúðarreglu. Opið sjókvíaeldi hefur valdið slysasleppingum, útbreiðslu laxalúsar, sjúkdómum og mengun með alvarlegum og oft óafturkræfum afleiðingum fyrir villta lax- og silungsstofna. Mengun frá sjókvíum flæðir óhindrað út í firði sem eru sameign allra, án þess að raunveruleg ábyrgð sé borin á kostnaðinum. Dýravelferð í opnu sjókvíaeldi er jafnframt í mol… Lesa alla

    Ég tel að frumvarpsdrögin endurspegli alvarlegan skort á framtíðarsýn í málefnum sjókvíaeldis og byggi á þeirri ranghugmynd að hægt sé að „stjórna“ framleiðsluaðferð sem hefur ítrekað sýnt að hún sé ósamrýmanleg náttúruvernd, dýravelferð og varúðarreglu. Opið sjókvíaeldi hefur valdið slysasleppingum, útbreiðslu laxalúsar, sjúkdómum og mengun með alvarlegum og oft óafturkræfum afleiðingum fyrir villta lax- og silungsstofna. Mengun frá sjókvíum flæðir óhindrað út í firði sem eru sameign allra, án þess að raunveruleg ábyrgð sé borin á kostnaðinum. Dýravelferð í opnu sjókvíaeldi er jafnframt í molum; laxadauði eykst ár frá ári og sýnir að aðstæður í opnum kerfum eru ósamrýmanlegar lágmarksviðmiðum um velferð dýra, og að samþykkja slíkt ástand til framtíðar er siðferðilega rangt. Í stað þess að horfast í augu við þessa staðreynd er með frumvarpinu verið að festa iðnaðinn í sessi með því að setja á nýtt kvótakerfi, sem tryggir úreltri framleiðsluaðferð varanlega stöðu, hamlar innleiðingu umhverfisvænni lausna og getur skapað ríkinu verulega lagalega áhættu síðar meir. Enn alvarlegra er þó að frumvarpið veikji faglegt aðhald með því að færa lykilákvarðanir frá vísindastofnunum til ráðherra og gera vernd náttúru og lífríkis að pólitísku mati fremur en vísindalegri niðurstöðu. Stjórnvöld víðs vegar um heim hafa reynt að taka opnu sjókvíaeldi föstum tökum með beittari regluverki, án árangurs - vandinn hefur hvergi verið leystur með „betri stjórnsýslu“ einni saman. Í ljósi þess er erfitt að skilja hvers vegna íslensk stjórnvöld, sem hafa staðið sig einstaklega illa í þessum málaflokki í gegnum tíðina, telji sig geta gert betur með sömu aðferðum. Og ætla stjórnvöld, þá sér í lagi Viðreisn sem fer með málaflokkinn, í alvörunni ekki að hlusta á skýran vilja þjóðarinnar og banna opið sjókvíaeldi? Óverulegir efnahagslegir hvatar eru ekki raunhæf lausn heldur óskhyggja um að ástandið batni af sjálfu sér. Eina raunhæfa leiðin áfram er að banna opið sjókvíaeldi sem framleiðsluaðferð, setja skýrt sólarlagsákvæði á iðnaðinn og, á meðan útfösun stendur yfir, beita ströngum og bindandi hvötum þar sem framleiðsla er skert tafarlaust ef illa er staðið að málum. Allt annað er áframhaldandi tilraunastarfsemi með náttúru Íslands, villta fiskistofna og traust almennings.

  • #5Magnús Geir Jensson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.