Jöfnun atkvæðavægis - breyting á kosningalögum nr. 112/2021
Með breytingunum er stefnt að því að jafna vægi atkvæða milli kjördæma eins og unnt er og að sem mest samræmi sé á milli fjölda þingmanna og atkvæða sem greidd eru hverjum þingflokki.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-251/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 8. janúar 2026
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (22. september 2026)
Dómsmálaráðherra skipaði starfshóp sem skilaði af sér skýrslu og frumvarpsdrögum sem send voru Alþingi til meðferðar. Lagt var til að Alþingi skipaði þingmannanefnd til að fjalla um tillögurnar. Í frumvarpsdrögum er gerð grein fyrir umsögnum sem bárust um áformin.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Skagafjörður
Byggðarráð Skagafjarðar gerir athugasemdir við áform um breytingar á kosningalögum: 1. Skipan starfshóps dómsmálaráðherra um jöfnun atkvæða vekur undrun, þ.e. að allir nefndarmenn skuli koma frá höfuðborgarsvæðinu. Ekki felst mikið jafnvægi sjónarmiða í þeirri skipan. 2. Misvægi atkvæða á milli kjördæma er ekki séríslenskt fyrirbrigði heldur þekkist það í mörgum öflugustu lýðræðisríkum heimsins. Má þar t.d. nefna Kanada, Noreg og Finnland þar sem meðvitað er tekið tillit til byggðasjónarmiða. 3. Reynt hefur á fyrirkomulag hér á landi fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu sem lítur ekki svo á að í… Lesa alla
Byggðarráð Skagafjarðar gerir athugasemdir við áform um breytingar á kosningalögum: 1. Skipan starfshóps dómsmálaráðherra um jöfnun atkvæða vekur undrun, þ.e. að allir nefndarmenn skuli koma frá höfuðborgarsvæðinu. Ekki felst mikið jafnvægi sjónarmiða í þeirri skipan. 2. Misvægi atkvæða á milli kjördæma er ekki séríslenskt fyrirbrigði heldur þekkist það í mörgum öflugustu lýðræðisríkum heimsins. Má þar t.d. nefna Kanada, Noreg og Finnland þar sem meðvitað er tekið tillit til byggðasjónarmiða. 3. Reynt hefur á fyrirkomulag hér á landi fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu sem lítur ekki svo á að í kosningaréttinum felist að atkvæði skuli vega jafnt við úrslit kosninga. Þvert á móti styðji ýmis sjónarmið við að kosningakerfi geti falið í sér atkvæðamisvægi þegar tilgangurinn er að niðurstaða kosninga endurspegli sem best lýðræðislegt samfélag. Það verður því ekki fullyrt að misvægi atkvæða gangi gegn alþjóðlegum mannréttindaskuldbindingum, eins og Ragnheiður E. Þorsteinsdóttir, lektor við lagadeild Háskólans á Akureyri, hefur rakið. 4. Hafa ber í huga að öll ráðuneyti, Alþingi Íslendinga og flestar ríkisstofnanir eru staðsettar í Reykjavík. Því er brýnt að tryggt verði að raddir og sjónarmið landsbyggðarinnar heyrist. Ef ráðast á í jöfnun atkvæðavægis og fækka þingmönnum af landsbyggðinni er einboðið að hluti ráðuneyta og ríkisstofnanir verði fluttar til landsbyggðarinnar til að tryggja raunverulegt jafnvægi í stjórnsýslu og ákvarðanatöku. 5. Mikilvægt er að ef farið verður í breytingar á kosningalögum verði sú breyting ekki til þess að þingmönnum landsbyggðarinnar fækki.
- #2Múlaþing
Meðfylgjandi er umsögn byggðaráðs Múlaþings um breytingar á kosningalögum.
- #3Borgarbyggð
Byggðarráð Borgarbyggðar telur að áformuð lagasetning um jöfnun atkvæðavægis hafi þann tilgang að fjölga þingmönnum Höfuðborgarsvæðisins og Suðvesturhornsins og fækka þingmönnum landsbyggðarkjördæma. Frá upphafi hefur á Alþingi Íslendinga verið fylgt því sjónarmiði að fulltrúalýðræði byggi ekki aðeins á fjölda atkvæða að baki hverjum fulltrúa heldur einnig að íbúar um land allt eigi rödd á löggjafarsamkomunni. Á því sjónarmiði byggja einnig löggjafarsamkomur fjölda annarra lýðræðisríkja. Á Íslandi býr fámenn þjóð í stóru landi. Landið hefur sérstöðu að því leyti hve þéttleiki byggðar á einu h… Lesa alla
Byggðarráð Borgarbyggðar telur að áformuð lagasetning um jöfnun atkvæðavægis hafi þann tilgang að fjölga þingmönnum Höfuðborgarsvæðisins og Suðvesturhornsins og fækka þingmönnum landsbyggðarkjördæma. Frá upphafi hefur á Alþingi Íslendinga verið fylgt því sjónarmiði að fulltrúalýðræði byggi ekki aðeins á fjölda atkvæða að baki hverjum fulltrúa heldur einnig að íbúar um land allt eigi rödd á löggjafarsamkomunni. Á því sjónarmiði byggja einnig löggjafarsamkomur fjölda annarra lýðræðisríkja. Á Íslandi býr fámenn þjóð í stóru landi. Landið hefur sérstöðu að því leyti hve þéttleiki byggðar á einu horni landsins er mikill m.v. aðra landshluta og þar hafa safnast saman stofnanir ríkisins. Sitjandi ríkisstjórn kennir sig við verðmætasköpun. Ríkisstjórnin hefur í orði sýnt því skilning að verðmætasköpun þjóðarbúsins á að mestu leyti uppruna sinn utan þéttbýlasta svæðis landsins svo sem í ferðaþjónustu, matvæla- og orkuframleiðslu. Sú verðmætasköpun er forsenda lífskjara á Íslandi og skatttekna ríkissjóðs. Framundan er mikið verk að tryggja áframhaldandi verðmætasköpun í sátt við nærsamfélög um land allt. Það skýtur því skökku við að sett sé í forgang að fækka röddum hinna dreifðu byggða á Alþingi Íslendinga.
- #4Grýtubakkahreppur
Meðf. er umsögn sveitarstjórnar Grýtubakkahrepps.
- #5Samband sveitarfélaga á Austurlandi
Hjálögð er umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.