Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-250/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Evrópsk græn skuldabréf (EGBR)

Áformað er að innleiða í landslög reglugerð Evrópusambandsins 2023/2631 um evrópsk græn skuldabréf.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: október).

Áformað er að innleiða í íslenskan rétt reglugerð (ESB) 2023/2631 um evrópsk græn skuldabréf og valkvæða upplýsingagjöf vegna skuldabréfa sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og vegna skuldabréfa sem tengjast sjálfbærni (European Green Bonds Regulation eða EGBR) með nýjum heildarlögum. Markmið EGBR er að samræma regluverk um útgáfu grænna skuldabréfa og aðgengi að upplýsingum um sjálfbærnimiðaða fjárfestingarkosti. Græn útgáfa undir auðkenningunni "evrópsk græn skuldabréf" eða "EuGB" er valkvæð. Með innleiðingu og framkvæmd EGBR verður fjárfestum gert auðveldara að greina skuldabréf þar sem ágóði er samræmdur við eða stuðlar að viðurkenndum umhverfismarkmiðum. Kerfi til að skrá og hafa eftirlit með ytri úttektaraðilum evrópskra grænna skuldabréfa er komið á með EGBR. Reglugerðin kveður einnig á um valkvæð sniðmát fyrir birtingu upplýsinga vegna skuldabréfa sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og vegna sjálfbærnitengdra skuldabréfa. EGBR gerir þannig ráð fyrir ólíkum grænum útgáfu- og fjárfestingarkostum.

S-250/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. des. 2025 – 9. jan. 2026· 0 umsagnir

Evrópsk græn skuldabréf (EGBR)

Áformað er að innleiða í landslög reglugerð Evrópusambandsins 2023/2631 um evrópsk græn skuldabréf.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-250/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (12. október 2026)

Engar umsagnir bárust. Gert er ráð fyrir að drög að frumvarpi um þetta efni verði birt í Samráðsgátt í október 2026.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-250/2025: Evrópsk græn skuldabréf (EGBR) · Alviti