Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-246/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki

Áformað er að leggja fram frumvarp í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar 2020/1503 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki (ECSP).

Áformað er að leggja fram frumvarp í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar 2020/1503 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki (hér eftir ECSP-reglugerðin eða ECSP). Með reglugerðinni er leitast við að auðvelda umfangsmikla hópfjármögnunarþjónustu á innri markaði Evrópusambandsins og auka þannig aðgang frumkvöðla, sprotafyrirtækja, fyrirtækja í stækkunarferli og lítilla og meðalstórra fyrirtækja að fjármagni. ECSP tekur ekki til þeirrar þjónustu sem veitt er eigendum verkefna sem teljast neytendur, þ.e. viðskipta hjá einstaklingum sem starfa að markmiðum sem eru utan slíkra viðskipta, atvinnustarfsemi eða sérgreinar. Þá er með ECSP leitast við að veita fjárfestum nauðsynlegar upplýsingar um hópfjármögnun, þ.m.t. upplýsingar um undirliggjandi áhættur. Meginefni áformaðs frumvarps er lögfesting ECSP og nauðsynlegra ákvæða þar að lútandi, þar á meðal heimildir eftirlitsaðila til eftirlits og upplýsingaöflunar, viðurlög við brotum gegn ákvæðum ECSP og heimild ráðherra og Seðlabanka Íslands til að setja stjórnvaldsfyrirmæli.

S-246/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 9. des. 2025 – 23. des. 2025· 1 umsögn

Áform um frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki

Áformað er að leggja fram frumvarp í þeim tilgangi að innleiða í íslenskan rétt ákvæði reglugerðar 2020/1503 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki (ECSP).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-246/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. desember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 513)
Niðurstöður samráðs (17. febrúar 2026)

ein umsögn frá Samtökum iðnaðarins. Í umsögninni er m.a. tekið fram að samtökin telji frumvarpið vera mikilvægt skref í átt að því að efla aðgengi fyrirtækja að fjármagni og auka samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Samtökin styðja frumvarpið með þeim fyrirvara að innleiðing þess stuðli raunverulega að auknu aðgengi fyrirtækja að fjármagn

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-246/2025: Áform um frumvarp til laga um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki · Alviti