Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-245/2025 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Áform um lagasetningu um breytingu á lögum um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Hljóðbókasafn og Kvikmyndasafn)

Í meðfylgjandi áformaskjali er fjallað um mögulega sameiningu Landsbókasafns Íslands - Háskólasafns, Hljóðbókasafns Íslands og Kvikmyndasafns Íslands.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Fjölmargar stofnanir sem eru allt frá því að vera örstofnanir yfir í fjölmenna vinnustaði heyra undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið. Töluverð umsýsla fylgir hverri og einni stofnun en t.a.m. ber öllum að skila þriggja ára áætlunum í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál, sem og árlegum rekstraráætlunum og öðrum gögnum, svo að ráðuneytið geti sinnt lögbundnu eftirlitshlutverki sínu með þeim. Þá er töluverður kostnaður samfara því fyrir ríkissjóð að halda úti mörgum yfirstjórnum hjá misstórum stofnunum. Í ráðuneytinu hefur um nokkurt skeið verið hugað að því hvort hagræða mætti í ríkisrekstri og einfalda stjórnsýslu með sameiningum stofnana. Er í því samhengi m.a. horft til skýrslu Ríkisendurskoðunar frá desember 2021 þar sem eftirfarandi tilmælum var beint til þáverandi mennta- og menningarmálaráðuneytis: „Fækka þarf undirstofnunum mennta- og menningarmálaráðuneytis. Þriðjungur stofnana Stjórnarráðsins heyrir undir ráðuneyti mennta- og menningarmála. Margar þeirra eru smáar. Mikilvægt er að skoða fjölda og skipulag þeirra með tilliti til einföldunar, hagræðingar og skilvirkni. Ætla má að fjöldi smárra stofnana sé óhagstæður í rekstrarlegu og faglegu tilliti en líkur eru einnig á að einhverjar þeirra gætu hæglega rúmast innan stærri skipulagsheilda hins opinbera.“ Þær menningarstofnanir sem áður heyrðu undir mennta- og menningarmálaráðuneytið heyra nú undir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

S-245/2025· Áform um lagasetningu· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 8. des. 2025 – 20. jan. 2026· 29 umsagnir

Áform um lagasetningu um breytingu á lögum um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Hljóðbókasafn og Kvikmyndasafn)

Í meðfylgjandi áformaskjali er fjallað um mögulega sameiningu Landsbókasafns Íslands - Háskólasafns, Hljóðbókasafns Íslands og Kvikmyndasafns Íslands.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-245/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 29 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (29)
  • #1Sigurjón B Hafsteinsson

    Sjá meðfylgjandi PDF-skjal.

  • #2Rithöfundasamband Íslands
    Rithöfundasamband Íslands setur sig ekki upp á móti fyrirhugaðri breytingu á lögum um Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn né samruna Hljóðbókasafnsins við Landsbókasafn. Við óskum eftir því að við sameiningaráformin verði reynt að sporna við þeirri miklu misnotkun á efni Hljóðbókasafnsins sem viðgengist hefur, til að mynda með breyttu heiti sem felur í sér að þjónustan sé eingöngu fyrir prentleturshamlaða en ekki aðra eða aðstandendur þeirra. Þá þarf að herða skilyrði fyrir aðild að efni safnsins og láta a.m.k. ákveðinn hóp notenda þurfa að endurnýja umsókn sína með reglubundnum hætti og r… Lesa alla

    Rithöfundasamband Íslands setur sig ekki upp á móti fyrirhugaðri breytingu á lögum um Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn né samruna Hljóðbókasafnsins við Landsbókasafn. Við óskum eftir því að við sameiningaráformin verði reynt að sporna við þeirri miklu misnotkun á efni Hljóðbókasafnsins sem viðgengist hefur, til að mynda með breyttu heiti sem felur í sér að þjónustan sé eingöngu fyrir prentleturshamlaða en ekki aðra eða aðstandendur þeirra. Þá þarf að herða skilyrði fyrir aðild að efni safnsins og láta a.m.k. ákveðinn hóp notenda þurfa að endurnýja umsókn sína með reglubundnum hætti og reyna að stöðva misnotkun þegar hún á sér stað.

  • #3Blindrafélagið

    Blindrafélagið leggst gegn áformum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um sameiningu Hljóðbókasafnsins við Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn. Sjá umsögn Blindrafélagsins í meðfylgjandi pdf-skjali.

  • #4ÖBÍ réttindasamtök

    Góðan dag, meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka.

  • #5Baldur Snær Sigurðsson
    Umsókn um lög vegna sameiningar safna Tilgangur þessarar umsagnar er að tryggja að lög um fyrirhugaða sameiningu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Hljóðbókasafns Íslands og Kvikmyndasafns Íslands verndi og styrki sérhæfða þjónustu við blinda og sjónskerta. Ég hef verulegar efasemdir um að sameiningin muni heppnast vel og tel brýnt að setja skýr, bindandi ákvæði í lög til að koma í veg fyrir skerðingu á þessari þjónustu. Ég hef áhyggjur af því að sérhæfð þjónusta Hljóðbókasafnsins muni veikjast ef hún fellur inn í stærri stofnunarheild. Reynsla sýnir að sérþarfir notenda verða oft ól… Lesa alla

    Umsókn um lög vegna sameiningar safna Tilgangur þessarar umsagnar er að tryggja að lög um fyrirhugaða sameiningu Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns, Hljóðbókasafns Íslands og Kvikmyndasafns Íslands verndi og styrki sérhæfða þjónustu við blinda og sjónskerta. Ég hef verulegar efasemdir um að sameiningin muni heppnast vel og tel brýnt að setja skýr, bindandi ákvæði í lög til að koma í veg fyrir skerðingu á þessari þjónustu. Ég hef áhyggjur af því að sérhæfð þjónusta Hljóðbókasafnsins muni veikjast ef hún fellur inn í stærri stofnunarheild. Reynsla sýnir að sérþarfir notenda verða oft óljósari og fjarlægari þegar þjónustan er ekki lengur rekin sem sjálfstæð eining. Lögin verða að tryggja að þjónusta Hljóðbókasafnsins haldi sérstöðu, nálægð og aðgengi fyrir sinn notendahóp, sérstaklega blinda og sjónskerta. Hljóðbókasafnið hefur í áraraðir veitt blindum og sjónskertum aðgengilegt efni og viðhaldið eldri aðgengilegri tækni sem margir notendur treysta á. Verður þar að nefna til dæmis að safnið hefur útbúið bækur á geisladiskum fyrir DAISY-spilara fyrir notendur. Fyrir marga er sú tækni eina raunhæfa leiðin til að hlusta á hljóðbækur og eru þessir notendur kannski í miklum minnihluta í notendahóp safnsins, en þetta er sá hópur notenda sem hlustar hvað mest á hljóðbækur hjá safninu og hljóðbækurnar oft þeirra eina aðgengi að bókmenntum. Þessari þjónustu má ekki hætta eða leggja niður. Ef þjónustan færist inn í stærri einingu án skýrra, lagalega tryggðra áherslna á þennan notendahóp, þá færist hún fjær fólki og er hætta á að hún verði almennari og minna sérhæfð. Slík þróun mundi skerða aðgengi að menningu, upplýsingum og námi og ganga gegn skuldbindingum Íslands samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (sérstaklega um jafnt aðgengi og 30. gr. samningsins: Þátttaka í menningarlífi og tómstunda-, frístunda- og íþróttastarfi). Tryggja verður að þjónusta við blinda og sjónskerta verði skýrlega lögfest sem sérhæfð starfsemi innan sameinaðs safns og að hún haldi sjálfstæðri verkferla- og gæðastjórn. Tryggja verður að þjónustan færist ekki fjær notendum og að hún haldi áfram þjónustu, sérhæfðri ráðgjöf og skjótum svörum við sértækum beiðnum. Tryggja þarf að fjárveitingar til þjónustuleiða safnsins verði óskertar við sameiningu og bundnar lögákvæðum sem tryggja fyrirsjáanleika og stöðugleika. Tryggja þarf skyldu hljóðbókasafnsins til að viðhalda og reka eldri aðgengilega tækni, þar á meðal DAISY-spilara og dreifingu efnis á geisladiskum, á meðan sá notendahópur er enn að nýta sér þá leið. Einnig þarf að setja skyldu til fjárfestinga í þróun, viðhaldi og innleiðingu aðgengilegra lausna, til dæmis stafrænna lausna með hljóð- og skjálestraraðgengi. Tryggja þarf að sérþekking starfsfólks Hljóðbókasafnsins haldist og sé nýtt innan sameinaðs safns. Tryggja þarf að það verði sjálfstætt eftirlit með aðgengi að safninu og árlega opinbera skýrslu um frammistöðu, ánægju notenda og mælanlegan árangur á aðgengilegri þjónustu Hljóðbókasafnsins. Ég tel að fyrirhuguð sameining, eins og hún hefur verið kynnt, feli í sér verulega áhættu fyrir sérhæfða þjónustu við blinda og sjónskerta og aðra notendur safnsins. Með framangreindum punktum er hægt að reyna að fyrirbyggja skerðingu á þjónustu safnsins, vernda sérþekkingu og tryggja raunverulegt aðgengi blindra og sjónskertra að öllum notendum safnsins að þjónustu þess. Virðingarfyllst, Baldur Snær Sigurðsson Tækniráðgjafi hjá Blindrafélaginu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-245/2025: Áform um lagasetningu um breytingu á lögum um Landsbókasafn Íslands – Háskólabókasafn (Hljóðbókasafn og Kvikmyndasafn) · Alviti