Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-243/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stofnun innviðafélags

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um heimild til að stofna sérstakt innviðafélag sem heldur utan um fjármögnun og uppbyggingu tiltekinna samgöngumannvirkja.

Stofnun innviðafélags styður við áherslu ríkisstjórnar Íslands um að rjúfa kyrrstöðu í samgöngumálum. Tilgangur félagsins er að koma á nýju skipulagi fjármögnunar við framkvæmd stórra samgöngumannvirkja. Félagið, sem sjálfstæður lögaðili, mun starfa á sjálfbærum fjárhagslegum grundvelli en jafnframt með það samfélagslega markmið að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum framkvæmdum. Áformað er að félagið fái það hlutvertk að hrinda í framkvæmd uppbyggingu stórra þjóðhagslega mikilvægra samgönguverkefna og tryggja fjármögnun og hraðari framvindu slíkra framkvæmda. Félagið mun að öðru leyti stuðla að því að ákvarðanir um fjárfestingar í samgönguinnviðum lúti skýrum markmiðum, séu vandlega undirbúnar og standist lög og viðmið sem gilda um opinberar framkvæmdir. Við stofnun félagsins mun allt hlutafé þess vera í eigu ríkissjóðs. Fjámála- og efnahagsráðherra mun jafnframt fara með hlut ríkisins í félaginu, sbr. 43. og 44. gr. laga um opinber fjármál. Miðað er við að innviðaráðherra muni með heimild í áformuðum lögum gera samning við félagið, einn eða fleiri eftir þörfum, um uppbyggingu og rekstur samgönguverkefna á grundvelli samgönguáætlunar í samræmi við tilgang og hlutverk félagsins. Í samningi verði tryggt að félagið geti staðið undir kostnaði við undirbúning og framkvæmd verkefna, stofnkostnað, rekstur, viðhald og fjármagnskostnað með tekjum af veggjöldum eða eftir atvikum beinum fjárframlögum frá ríkinu til að tiltekið verkefni geti talist fjárhagslega sjálfbært.

S-243/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. des. 2025 – 22. des. 2025· 4 umsagnir

Stofnun innviðafélags

Áformað er að leggja fram frumvarp til laga um heimild til að stofna sérstakt innviðafélag sem heldur utan um fjármögnun og uppbyggingu tiltekinna samgöngumannvirkja.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-243/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. desember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 535)
Niðurstöður samráðs (6. janúar 2026)

Umsagnir bárust frá þremur aðilum innan samráðsfrest og frá einum aðila til viðbótar eftir að umsagnarfresti lauk. Í umsögnunum var almennt tekið jákvætt í stofnun sérstaks innviðafélags sem hefði þann tilgang að stuðla aukinni uppbyggingu í samgönguinnviðum. Unnið verður áfram að áformum um gerð frumvarps um stofnun innviðafélags þar sem tillit verður tekið til framkominna umsagna.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-243/2025: Stofnun innviðafélags · Alviti