Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-241/2025 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl

Frumvarpsdrögin fela m.a. í sér ákvæði um heimildir til að bregðast við lyfjaskorti, ávísanaheimildir og breytingar á ákvörðunum um greiðsluþátttöku í lyfjum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: janúar); 158. þing (áætlað: september).

Frumvarpsdrögin eru að miklu leyti samhljóma frumvarpi sem lagt var fram á Alþingi á 156. löggjafarþingi (þskj. 289, 257. mál.) en þó með breytingum. Helstu breytingarnar eru tilgreindar í 3.8.1. kafla greinargerðarinnar en þær eru m.a. ákvæði um ávísanaheimild lyfjafræðinga á undanþágulyf, heimild til útvíkkunar á ávísanaheimild hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra, breytingar á gjaldtökuheimildum laga um lækningatæki, nr. 132/2020, eftirlitsgjald skv. 90. gr. lyfalaga gert að lögbundnu framlagi til Lyfjastofnunar og aðrar margþættar breytingar vegna gagnagrunna og kerfa á sviði lyfjamála. Ítarlega umfjöllun má finna í greinargerð frumvarpsdraganna um þær breytingar sem þar eru lagðar til. Meðfylgjandi er einnig breytingaskjal sem sýna þær breytingar sem frumvarpsdrögin leggja til að gerðar séu á lyfjalögum, nr. 100/2020. Sjá hér frumvarp sem lagt var fram á Alþingi á 156. löggjafarþingi (þskj. 289, 257. mál.) https://www.althingi.is/altext/156/s/0289.html

S-241/2025· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. des. 2025 – 2. jan. 2026· 21 umsögn

Drög að frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl

Frumvarpsdrögin fela m.a. í sér ákvæði um heimildir til að bregðast við lyfjaskorti, ávísanaheimildir og breytingar á ákvörðunum um greiðsluþátttöku í lyfjum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-241/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 2. janúar 2026
  3. Umsagnarfresti lýkur · 21 umsögn barst
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (158. þing, mál 232)
Niðurstöður samráðs (20. mars 2026)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 157. löggjafarþingi

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (21)
  • #1Valgerður Lísa Sigurðardóttir

    Umsögn frá Námsbraut í ljósmóðurfræði Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands

  • #2Sandra Bryndísardóttir Franks

    Í viðhengi er umsögn Sjúkraliðafélags Íslands

  • #3Landspítali

    Meðfylgjandi er umsögn Lyfjanefndar Landspítala.

  • #4Sigríður Pálína Arnardóttir
    Það er mikilvægt að lyfjafræðingar taki virkan þátt í að tryggja samfellu í heilbrigðisþjónustu. Apótek eru staðsett um allt land og oft í nágrenni við heilsugæslustöðvar. Flestir einstaklingar sem leita til læknis koma jafnframt í apótek til að sækja lyf sín, sem gerir lyfjafræðinga að lykilaðilum í daglegri heilbrigðisþjónustu. Lyfjafræðingar eru heilbrigðisstétt sem mætti nýta mun betur, öllum til heilla. Rétt lyfjanotkun stuðlar að betri heilsu, dregur úr sóun og sparar þjóðfélaginu kostnað. Lyfjafræðingar bera mikla samfélagslega ábyrgð og sinna reglulega einstaklingum sem leita í apótek… Lesa alla

    Það er mikilvægt að lyfjafræðingar taki virkan þátt í að tryggja samfellu í heilbrigðisþjónustu. Apótek eru staðsett um allt land og oft í nágrenni við heilsugæslustöðvar. Flestir einstaklingar sem leita til læknis koma jafnframt í apótek til að sækja lyf sín, sem gerir lyfjafræðinga að lykilaðilum í daglegri heilbrigðisþjónustu. Lyfjafræðingar eru heilbrigðisstétt sem mætti nýta mun betur, öllum til heilla. Rétt lyfjanotkun stuðlar að betri heilsu, dregur úr sóun og sparar þjóðfélaginu kostnað. Lyfjafræðingar bera mikla samfélagslega ábyrgð og sinna reglulega einstaklingum sem leita í apótek vegna þess að þeir standa frammi fyrir því að þeim vantar nauðsynleg lyf. Algeng dæmi eru að lyfseðlar eru nýlega útrunnir, gleymst hefur að endurnýja og hætta er á meðferðarrofi. Í slíkum tilvikum væri æskilegra að lyfjafræðingur í apóteki gæti gripið inn í, í stað þess að skjólstæðingar séu sendir á læknavakt eða bráðamóttöku. Að undangengnu mati og fullvissu um rétta notkun ætti lyfjafræðingur að geta ávísað lyfinu tímabundið. Tillaga mín er sú að lyfjafræðingur starfandi í apóteki fái heimild til ávísunar í eitt skipti, með því skilyrði að næsta endurnýjun fari fram eftir pantaðan tíma hjá lækni. Jafnframt legg ég til að núverandi neyðarafhendingaréttur verði breytt yfir í formlega ávísunarheimild í þeim tilvikum þar sem annars væri hætta á meðferðarrofi. Við í Reykjanesapóteki höfum bólusett skjólstæðinga fyrir flensu í samvinnu við heilsugæslustöðina nú í þrjú ár. Eðlilegt þykir mér að lyfjafræðingar fái ávísunarrétt á bóluefni. Það að apótekin taki þátt í að bólusetja er mikið samfélagslegt verkefni. Einstaklingum þykir gott að geta komið við í apóteki og fengið bólusetningu hjá lyfjafræðingum. Lyfjafræðingar og læknar vinna þegar þétt saman innan hvers heilsugæslu¬umdæmis. Lyfjafræðingar eru vel menntaðir og búa yfir víðtækri þekkingu á verkunarmáta lyfja, milliverkunum lyfja og fæðubótarefna, niðurtröppun lyfja, þar með talið ávana- og fíknilyfja, sem og lyfjaafvísun (deprescribing). Með aukinni samvinnu heilbrigðisstétta og betri nýtingu á sérþekkingu lyfjafræðinga er hægt að ná fram bættum árangri í heilbrigðiskerfinu, auknu öryggi sjúklinga og hagkvæmari nýtingu fjármuna. Sigríður Pálína Arnardóttir Lyfjafræðingur í Reykjanesapóteki

  • #5Ljósmæðrafélag Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Ljósmæðrafélgas Íslands

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-241/2025: Drög að frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl · Alviti