Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-239/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Verðbréfamiðstöðvar (CSDR Refit)

Áformað er að leiða í landslög reglugerð Evrópusambandsins 2023/2845, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 um verðbréfamiðstöðvar.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Áformuð er lagasetning til innleiðingar á reglugerð (ESB) 2023/2845, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 að því er varðar aga í uppgjöri, veitingu þjónustu yfir landamæri, eftirlitssamstarf, veitingu viðbótarbankaþjónustu og kröfur fyrir verðbréfamiðstöðvar þriðja lands og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 236/2012 (CSDR Refit). Gerðin verður innleidd með breytingum á lögum um verðbréfamiðstöðvar, uppgjör og rafræna eignarskráningu fjármálagerninga, nr. 7/2020. Breytingar með CSDR Refit varða meðal annars ráðstafanir til að takast á við uppgjörsbresti, lágmarkstíðni reglulegrar eftirlitsframkvæmdar, samstarf landsbundinna eftirlitsaðila, upplýsingamiðlun og mat vegna breytinga á eignarhaldi í verðbréfamiðstöðvum. Fyrirhuguð lagasetning mun fyrst og fremst hafa áhrif á verðbréfamiðstöðvar og eftirlitsaðila. Núverandi áætlanir gera ráð fyrir tillögugerð um gildistöku breytinganna á árinu 2026. Stefnt er að því að innleiða samhliða CSDR Refit-gerðinni aðra og nýlegri breytingu á CSDR, þ.e. reglugerð (ESB) um styttingu uppgjörstíma í T+1 (með vísan í tengt mál).

S-239/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 4. des. 2025 – 19. des. 2025· 3 umsagnir

Verðbréfamiðstöðvar (CSDR Refit)

Áformað er að leiða í landslög reglugerð Evrópusambandsins 2023/2845, um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 909/2014 um verðbréfamiðstöðvar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-239/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. desember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (6. febrúar 2026)

Umsagnir bárust frá þremur aðilum og var tekið tillit til þeirra við undirbúning frumvarpsdraga (sjá umfjöllun um samráð í 5. kafla þeirra), sjá mál nr. S-33/2026.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Íris Björk Hreinsdóttir

    Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu vísa til meðfylgjandi umsagnar um mál nr. S-240/2025. Vísað er til þeirra sjónarmiða sem þar koma fram. SFF lýsa sig reiðubúin til frekara samtals og kunna að koma með ábendingar síðar í ferlinu ef ástæða þykir til.

  • #2Árnína Steinunn Kristjánsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Nasdaq verðbréfamiðstöðvar.

  • #3Verðbréfamiðstöð Íslands hf.

    Meðfylgjandi er umsögn Verðbréfamiðstöðvar Íslands hf.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-239/2025: Verðbréfamiðstöðvar (CSDR Refit) · Alviti