Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-236/2025 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: febrúar).

Við undirbúning og vinnslu frumvarps til laga um lagareldi hefur atvinnuráðuneytið orðið þess áskynja að mikil þörf sé á endurskoðun á regluverki og framkvæmd á málefnasviði lax- og silungsveiða en margvísleg skörun á sér stað á milli þess og regluverks  á málefnasviði lagareldis. Enn fremur hafa stofnanir ráðuneytisins og hagsmunaaðilar bent á nauðsyn þess að taka upp margvísleg atriði á málefnasviði lax- og silungsveiða en núverandi lagaumgjörð er frá árinu 2006.   Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem hafa það að markmiði að styrkja lagaumgjörð um lax- og silungsveiði og fiskrækt í ám og vötnum. Frumvarpið tekur m.a. til breytinga á lögum um lax- og silungsveiði, 61/2006, lögum um fiskrækt, nr. 58/2006, og lögum um Fiskræktarsjóð, nr. 72/2008. Samning frumvarpsins stendur yfir og samhliða því verður unnið að endanlegu mati á fjárhagsáhrifum lagasetningarinnar og því gerð skil í endanlegu mati á fjárhagslegum áhrifaþáttum fyrir ríkið. Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áform um lagasetningu og frummat.

S-236/2025· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 1. des. 2025 – 15. des. 2025· 2 umsagnir

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-236/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. desember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Kári Gunnarsson

    Legg til breytingu á fyrstu og annarri málsgrein 18. gr. laga nr. 61/2006, þar sem segir til um netaveiðitíma göngusilungs. Vegna hnignunar sjóbleikjustofna og minnkandi bleikjuveiði, væri ráðlegt að stytta leyfðan netaveiðitíma. Banna ætti netaveiði sjóbleikju eftir 1. september til 1. maí. En nú má veiða í net frá 1. apríl til 10. okt. Nú má leggja net frá þriðjudagsmorgni til föstudagskvölds. Geri að tillögu að veiðitíminn verði frá miðvikudagsmorgni til fimmtudagskvölds. Enn fremur ætti að skylda stangveiðimenn til að drepa ekki fleiri en þrjár sjóbleikjur á hverjum stangardegi.

  • #2Landssamband veiðifélaga

    Hér meðfylgjandi er umsögn Landssambands veiðifélaga á áformum um lagasetningu - frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-236/2025: Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna lax- og silungsveiði og fiskræktar · Alviti