Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-235/2025 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um lagareldi

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um lagareldi ásamt frummati á áhrifum lagasetningar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: febrúar).

Í samræmi við ákvæði núgildandi laga um fiskeldi nr. 71/2008, sem gerðu ráð fyrir því að þau skyldi endurskoða eigi síðar en 1. maí 2024, er fyrirhugað að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um lagareldi. Áformin eru í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins, dags. 21. desember 2024, en þar kemur m.a. fram að hún muni styrkja lagaumgjörð fiskeldis til að sporna gegn neikvæðum áhrifum á lífríki og innleiða hvata til eldis á ófrjóum laxi og til eldis í lokuðum kvíum. Áformað er að skerpa á ýmsum ákvæðum núgildandi laga um fiskeldi nr. 71/2008 ásamt því að innleiða ný. Samning frumvarpsins stendur yfir og samhliða því verður unnið að endanlegu mati á fjárhagsáhrifum lagasetningarinnar og því gerð skil í endanlegu mati á fjárhagslegum áhrifaþáttum fyrir ríkið. Hér með er óskað eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um áform um lagasetningu og frummat.

S-235/2025· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 1. des. 2025 – 15. des. 2025· 15 umsagnir

Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um lagareldi

Atvinnuvegaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um lagareldi ásamt frummati á áhrifum lagasetningar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-235/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. desember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 15 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 529)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (15)
  • #1Bændasamtök Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Bændasamtaka Íslands.

  • #2Samtök sjávarútvegssveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsög Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga

  • #3Óttar Magnús G Yngvason

    Ábendingar varðandi áform um nýtt frumvarp um lagareldi fylgja í viðhengi.

  • #4Guðrún Sigurjónsdóttir
    Ábendingar vegna áforma um nýtt frumvarp um lagareldi. Nauðsynlegt er að hlusta á raddir íbúa, framkoma stjórnvalda í garð samfélaga líkt og Seyðfirðinga er óboðleg en þar hafa íbúar barist á móti sjókvíaeldi með ágætis rökum í nokkur ár. Sjókvíaeldi verður að fara í lokaðar kvíar eða eldi með ófrjóan lax. Annað gerir útaf við villta laxastofna. Tryggt sé að allt tjón s.s. vegna slysasleppinga og kostnaður t.d. við að leitast við að hreinsa ár af eldislaxi verði greiddur af sjókvíaeldisfyrirtækjum. Hagvöxtur sem byggist á eyðingu náttúrunnar og eyðileggingu (drepur lífríki fjarðanna og ey… Lesa alla

    Ábendingar vegna áforma um nýtt frumvarp um lagareldi. Nauðsynlegt er að hlusta á raddir íbúa, framkoma stjórnvalda í garð samfélaga líkt og Seyðfirðinga er óboðleg en þar hafa íbúar barist á móti sjókvíaeldi með ágætis rökum í nokkur ár. Sjókvíaeldi verður að fara í lokaðar kvíar eða eldi með ófrjóan lax. Annað gerir útaf við villta laxastofna. Tryggt sé að allt tjón s.s. vegna slysasleppinga og kostnaður t.d. við að leitast við að hreinsa ár af eldislaxi verði greiddur af sjókvíaeldisfyrirtækjum. Hagvöxtur sem byggist á eyðingu náttúrunnar og eyðileggingu (drepur lífríki fjarðanna og eyðileggur villta laxastofninn) getur aldrei gengið upp til lengdar. Það er skammsýni að ganga á náttúruna. Guðrún Sigurjónsdóttir formaður Veiðifélags Norðurár

  • #5Landssamband veiðifélaga

    Hér meðfylgjandi er umsögn Landssambands veiðifélaga um áform um lagasetningu - frumvarp til laga um lagareldi

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-235/2025: Áform um lagasetningu - Frumvarp til laga um lagareldi · Alviti