Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-229/2025 · Atvinnuvegaráðuneytið

Áformaskjöl vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um Matvælastofnun, Fiskistofu o.fl. (sameining stofnana)

Áformin varða fyrirhugaða sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.

Ekki komið til Alþingis

Atvinnuvegaráðherra hefur látið vinna fýsileikagreiningu á mögulegri sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Stofnanirnar sinna opinberu eftirliti, þar sem Matvælastofnun annast eftirlit á sviði landbúnaðar, dýravelferðar og matvælaframleiðslu og Fiskistofa annast eftirlit varðandi afla og löndun auk afmarkaðs hlutverks við stjórn fiskveiða. Við gerð fýsileikakönnunar var einnig litið til hlutverks Verðlagsstofu skiptaverðs og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga. Talið er að fjölmörg tækifæri séu til samþættingar og samstarfs í verkefnum þessara stofnanna. Mikil líkindi eru í mörgum viðfangsefnum og starfsstöðvar reknar á svipuðum stöðum á landinu. Tækifæri eru talin felast í sameiningu stofnanna, þar sem sameining skapi forsendur fyrir samræmdri stefnumótun og framkvæmd í málefnum sem snerta matvælaframleiðslu og fiskveiðar. Tækifæri felist jafnframt í samræmingu verklags og ferla í leyfisveitingum og eftirliti, sem er til þess fallið að bæta þjónustu, draga úr skrifræði og bæta þjónustu við atvinnulífið. Með sameiningu þessara stofnana er horft til þess að til verði ný öflug eftirlitsstofnun á sviði matvælaframleiðslu og fiskveiða þar sem öflugar starfsstöðvar verði staðsettar um allt land.

S-229/2025· Áform um lagasetningu· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 17. nóv. 2025 – 1. des. 2025· 16 umsagnir

Áformaskjöl vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um Matvælastofnun, Fiskistofu o.fl. (sameining stofnana)

Áformin varða fyrirhugaða sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-229/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 1. desember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
  • #1Jón Frímann Jónsson

    Það er varasamt að setja óskylda starfsemi í sömu stofnun. Það leiðir til óskilvirkni og verri ákvarðanatöku um málefni fiskistofna. Það er þó í lagi að setja inn tengda hluti sem tengjast matvælaöryggi inn í stofnun sem sinnir slíku. Sameinaðar stofnanir eru ekki alltaf sá sparnaður sem þær virðast vera í skjali eða í áætlunum þegar það kemur að raunveruleikanum.

  • #2Runólfur Vigfússon

    Sjá meðfylgjandi umsögn FÍN

  • #3Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands

    Hér kemur umsögn Landverndar um áætlaða sameiningu stofnana. Bestu kveðjur. Björg Eva Erlendsdóttir, frkvstj. Landverndar.

  • #4Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands

    Umsögn Landverndar um áætlaða sameiningu.

  • #5Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE

    Umsögn SSNE um áætlaða sameiningu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-229/2025: Áformaskjöl vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um Matvælastofnun, Fiskistofu o.fl. (sameining stofnana) · Alviti