Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-227/2025 · Mennta- og barnamálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (miðlægur nemendagrunnur)

Í frumvarpsdrögum eru lagðar til breytingar sem kveða á um starfrækslu miðlægs nemendagrunns fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 158. þing (áætlað: febrúar).

Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, lögum um leikskóla, lögum um grunnskóla og lögum um framhaldsskóla (miðlægur nemendagrunnur). Skortur er á samræmdri skráningu gagna tengdum hagsmunum barna og ungmenna vegna lögbundinna hlutverka aðila á sviði menntunar og farsældar barna og ungmenna. Upplýsingar til að mynda um skólavist, flutning milli skóla og sveitarfélaga, námsframvindu samkvæmt Matsferli og stuðning sem nemendur njóta eru ekki aðgengilegar á einum stað. Þá hafa lykilupplýsingar menntakerfisins verið vistaðar hjá mismunandi aðilum, í mismunandi kerfum og á ólíku formi. Núverandi fyrirkomulag torveldar yfirsýn, hvort sem um er að ræða stöðu einstaka barns, skóla eða menntakerfisins alls. Þetta fyrirkomulag styður ekki við að hægt sé að koma úrbótum til leiðar fljótt og vel og skapar áskoranir og kostnað. Miðlægum nemendagrunni er ætlað að halda utan um skilgreindar upplýsingar með samræmdum og kerfisbundnum hætti á landsvísu, og að styðja ríki og sveitarfélög við lögbundin verkefni þeirra í þágu gæða skólastarfs, bættrar stefnumótunar, forgangsröðunar stjórnvalda og bættrar þjónustu í þágu barna og ungmenna. Frumvarpinu er ætlað að aðlaga og styrkja lagaumhverfi að uppbyggingu stafræns gagnagrunns sem heldur miðlægt utan um skráningu upplýsinga um börn og nemendur í leik-, grunn- og framhaldsskólum, þar á meðal að styrkja heimildir til vinnslu og skráningu viðkvæmra persónuupplýsinga. Frumvarpið lýtur að því verkefni Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu að starfrækja miðlægan nemendagrunn og að henni verði heimilt að starfrækja stafrænar lausnir vegna verkefna sem unnin eru í þágu verkefna stofnunarinnar. Samhliða því eru gerðar breytingar á lögum um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla sem leiðir af starfrækslu grunnsins. Þá er með frumvarpi þessu lagt til að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu geti annast umsýslu með innritun í leik-, grunn- og framhaldsskóla, þar á meðal að heimilt verði að taka á móti og vista umsóknir sem berast í gegnum stafrænt umsóknarkerfi Stafræns Íslands í miðlægan gagnagrunn. Í ljósi þess eru lagðar til breytingar á lögum um leikskóla og lögum um grunnskóla sem snýr að þessu hlutverki Miðstöðvarinnar, en nú þegar er kveðið á um slíka umsýslu af hálfu Miðstöðvarinnar í lögum um framhaldsskóla.

S-227/2025· Drög að frumvarpi til laga· Mennta- og barnamálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. nóv. 2025 – 21. nóv. 2025· 5 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (miðlægur nemendagrunnur)

Í frumvarpsdrögum eru lagðar til breytingar sem kveða á um starfrækslu miðlægs nemendagrunns fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-227/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. nóvember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (17. febrúar 2026)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 157. löggjafarþingi, sjá 443. mál, þskj. 749. Gerð er grein fyrir niðurstöðum samráðs í 5. kafla frumvarpsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-227/2025: Frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum (miðlægur nemendagrunnur) · Alviti