Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-220/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa)

Með frumvarpinu er lagt til að umsýsla og útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa verði felld í einn farveg innan Útlendingastofnunar. Samhliða því eru gerðar breytingar á dvalarleyfum námsmanna.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október); 158. þing (áætlað: október).

Frumvarpið, sem samið er í dómsmálaráðuneytinu í samvinnu við félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun, kveður á um að umsýsla og útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa verði felld í einn farveg innan Útlendingastofnunar. Samkvæmt gildandi framkvæmd gefur Útlendingastofnun út dvalarleyfi á grundvelli laga um útlendinga, nr. 80/2016, en Vinnumálastofnun gefur út atvinnuleyfi á grundvelli laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2022. Markmið frumvarpsins er að skila aukinni skilvirkni og fyrirsjáanleika við afgreiðslu umsókna um tímabundin atvinnu- og dvalarleyfi með flutningi afgreiðslu atvinnuleyfa frá Vinnumálastofnun til Útlendingastofnunar, sem farið hefur með afgreiðslu dvalarleyfa á grundvelli atvinnuþátttöku. Með þessari breytingu verður framkvæmd atvinnuleyfa hér á landi færð nær þeirri framkvæmd sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum. Með flutningi er stefnt að því að stytta afgreiðslutíma slíkra umsókna, auka gagnsæi í umsóknarferlinu og auðvelda umsækjendum samskipti vegna umsókna. Þá er lagt til að skyldubundin umsögn stéttarfélaga vegna tímabundinna atvinnuleyfa verði felld úr gildi en Útlendingastofnun heimilað að leita slíkrar umsagnar þegar vafamál og flóknari álitamál um túlkun kjarasamninga koma upp. Með því má búast við að hægt verði að stytta afgreiðslutíma margra umsókna umtalsvert. Þá felur frumvarpið í sér að gerðar verði breytingar á fyrirkomulagi atvinnuþátttöku námsmanna sem mun liðka umtalsvert fyrir atvinnuþátttöku þess hóps en að sama skapi er skerpt á skilyrðum fyrir útgáfu og endurnýjun dvalarleyfa námsmanna. Heimildir til fjölskyldusameiningar við námsmenn verða samræmdar við Norðurlönd, teknar upp forkröfur fyrir útgáfu dvalarleyfis til atvinnuleitar eftir útskrift og það dvalarleyfi stytt úr þremur árum í eitt. Að endingu mun kæruleið vegna tímabundinna atvinnuleyfa færist frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu til kærunefndar útlendingamála og vettvangseftirlit með atvinnuþátttöku útlendinga á grundvelli laganna færast til Vinnueftirlits ríkisins.

S-220/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 29. okt. 2025 – 5. nóv. 2025· 56 umsagnir

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa)

Með frumvarpinu er lagt til að umsýsla og útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa verði felld í einn farveg innan Útlendingastofnunar. Samhliða því eru gerðar breytingar á dvalarleyfum námsmanna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-220/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 5. nóvember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 56 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 316)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. mars 2026)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 1. desember 2025, sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í greinargerð er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (56)
  • #1Jón Frímann Jónsson
    Þetta frumvarp er til skammar og allir þeir sem komu að því að semja þessi mannréttindabrot ættu að segja af sér embætti án tafar. "Norska leiðin" er ekkert nema hreinn rasismi og byggður á einangrunarhyggju sem er stór í Noregi og norðmönnum til ævarandi skammar. Það er ekki í lagi og verður aldrei í lagi að taka upp eitthvert bull sem kemur frá nasistum og fasistum á Íslandi og setja það fram sem einhverjar staðreyndir og koma því síðan í lög. Vegna þess að þessir hópar í samfélaginu sem setja fram þessar fullyrðingar hafa ekkert til síns máls, geta ekki vísað á dæmi til þess að styðja við… Lesa alla

    Þetta frumvarp er til skammar og allir þeir sem komu að því að semja þessi mannréttindabrot ættu að segja af sér embætti án tafar. "Norska leiðin" er ekkert nema hreinn rasismi og byggður á einangrunarhyggju sem er stór í Noregi og norðmönnum til ævarandi skammar. Það er ekki í lagi og verður aldrei í lagi að taka upp eitthvert bull sem kemur frá nasistum og fasistum á Íslandi og setja það fram sem einhverjar staðreyndir og koma því síðan í lög. Vegna þess að þessir hópar í samfélaginu sem setja fram þessar fullyrðingar hafa ekkert til síns máls, geta ekki vísað á dæmi til þess að styðja við sínar fullyrðingar. Enda ljúga fasistar og nasistar öllu sem þeir setja fram. Jafnvel inni á Alþingi Íslendinga. Þetta frumvarp á að draga til baka og henda því í næsta tærara. Það er að lagi að breyta lögum um útlendinga en eingöngu þar sem dregið er úr skilyrðum sem Íslendingar segja um flutning til Íslands frá ríkjum utan Norðurlandanna, EES, ESB og EFTA. Það að taka undir það sem fasistar og nasistar setja fram hefur aldrei dregið úr bullinu sem frá þeim kemur. Það hefur aðeins aukið þeirra völd og er núna langt komið með að setja af lýðræði í nokkrum ríkjum Evrópu. Þeir byrjuðu allir með svona útlendinga bulli eins og sést í þessum drögum að lögum hérna.

  • #2Trixie Anne Bron
    We are studying really hard, and we take our studies very seriously. Even if we have future goals, that doesn’t mean we’re frauds. We spent millions of krónur, and it was very hard to get here. There was IELTS, and now there is an admission exam and interview, all of that you have to pass. Rent is 20× higher than in my country. Groceries are very expensive. Eating a proper meal is a privilege while you are still just studying, maybe even with a part-time job. The weather is extremely harsh, but we still manage to go to university and attend our classes. It’s not like we are frauds. We are law… Lesa alla

    We are studying really hard, and we take our studies very seriously. Even if we have future goals, that doesn’t mean we’re frauds. We spent millions of krónur, and it was very hard to get here. There was IELTS, and now there is an admission exam and interview, all of that you have to pass. Rent is 20× higher than in my country. Groceries are very expensive. Eating a proper meal is a privilege while you are still just studying, maybe even with a part-time job. The weather is extremely harsh, but we still manage to go to university and attend our classes. It’s not like we are frauds. We are law-abiding residents, and we study hard because we literally can’t afford to lose our place here. Our fellow immigrants pay high amounts of taxes too, and we work hard, we may even feel that we have to work harder than others just so we belong. This bill is very unfair. The real problems aren’t us; it’s the poor administration. We came here to study. Studying literally is our activity and purpose, and our current legal status is tied to being a student. You are putting the burden on us students when they should be focusing on the real administrative challenges. The people who disobey the rules or misuse the system should face the consequences, instead of putting the burden on all of us students who are really studying very hard to learn the language. May I also add, it is not hard to become passionate about something you are working hard to understand and learn. SO YES, WE ARE HERE TO STUDY THE LANGUAGE.

  • #3Chloe Jane Mostert Fisher
    So you people don't actually care about preserving Icelandic, huh? Forcing a change so that only BA holders can access the university system is going to trash the Íslenska sem annað mál programs. It infuriates me that Icelandic politicians are playing with this gutter racism when the data is in that tightening restrictions on international students ruins local economies. Norway lost 80% of their international students recently and they're scrambling to roll back tuition fees. You people are going to kill your language, your economy, your academic standing, and your soft power because you're… Lesa alla

    So you people don't actually care about preserving Icelandic, huh? Forcing a change so that only BA holders can access the university system is going to trash the Íslenska sem annað mál programs. It infuriates me that Icelandic politicians are playing with this gutter racism when the data is in that tightening restrictions on international students ruins local economies. Norway lost 80% of their international students recently and they're scrambling to roll back tuition fees. You people are going to kill your language, your economy, your academic standing, and your soft power because you're mad there are some Filipinos around. No one gets together millions of krónur to NOT study. It is obvious that no one involved in drafting this legislation has spoken to an international student, ever. Pathetic, self-harming nationalism.

  • #4Abdullah
    The proposed amendments raise serious concerns about fairness for current students. The bill refers multiple times to adopting systems from countries like Norway and Denmark, yet in Norway, when similar changes were made, existing students were not affected. It seems unreasonable that students who have relocated, studied, and contributed to the Icelandic economy would now face stricter requirements mid-course. Framing all students as potential abusers of the visa system is also concerning. While addressing misuse is important, the vast majority of students pursue their studies in good faith a… Lesa alla

    The proposed amendments raise serious concerns about fairness for current students. The bill refers multiple times to adopting systems from countries like Norway and Denmark, yet in Norway, when similar changes were made, existing students were not affected. It seems unreasonable that students who have relocated, studied, and contributed to the Icelandic economy would now face stricter requirements mid-course. Framing all students as potential abusers of the visa system is also concerning. While addressing misuse is important, the vast majority of students pursue their studies in good faith and contribute academically, socially, and economically. Penalizing all students because of the actions of a few is unjust and risks undermining trust in Iceland’s international education system.

  • #5Iftejar Miah Viki

    This is totally shame for the students who are really working hard to achieve their degree. And most importantly changing the job searching from 3 years to 1 year is really ridiculous. Specially foreigner like us need to swim in the job market to get a job, then this kind of shameful time limit will kill our hopes for the future. This will lead to more depression and anxiety for the running students.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-220/2025: Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa) · Alviti