Frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæða)
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæða).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-219/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 9. nóvember 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 19 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 309)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. júlí 2026)
Frumvarpið varð að lögum á 157. löggjafarþingi Alþingis, lög nr. 56/2026
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (19)
- #1Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Meðfylgjandi er umsögn stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
- #2Pétur Henry Petersen
Berlín 6. Nóvember 2025 Vegna: Breytingar á lögum um opinbera háskóla https://island.is/samradsgatt/mal/4104 Það er pólitísk ákvörðun að sameina opinbera háskóla, í því getur falist hagræðing og aukin gæði. Með nútímatækni er margt sem hægt er að vinna fjarri vettvangi, þó fátt komi í stað mannlegra samskipta í raun. Skólar geta verið ólíkir, eru sérhæfðir, eiga sér sögu, eru með ýmsa sérhagsmuni og styðja við sitt nærumhverfi á fjölbreyttan hátt. Frumkvæði að breytingum kemur eflaust sjaldnast frá þeim sjálfum. Í sameiningu geta því falist bæði áskoranir og möguleikar. Svo á eflaust við u… Lesa alla
Berlín 6. Nóvember 2025 Vegna: Breytingar á lögum um opinbera háskóla https://island.is/samradsgatt/mal/4104 Það er pólitísk ákvörðun að sameina opinbera háskóla, í því getur falist hagræðing og aukin gæði. Með nútímatækni er margt sem hægt er að vinna fjarri vettvangi, þó fátt komi í stað mannlegra samskipta í raun. Skólar geta verið ólíkir, eru sérhæfðir, eiga sér sögu, eru með ýmsa sérhagsmuni og styðja við sitt nærumhverfi á fjölbreyttan hátt. Frumkvæði að breytingum kemur eflaust sjaldnast frá þeim sjálfum. Í sameiningu geta því falist bæði áskoranir og möguleikar. Svo á eflaust við um HÍ og Háskólann á Hólum, en fyrir væntanlegan samruna þeirra þarf að breyta lögum um opinbera háskóla. Útkoman verður vonandi sterkari skólar á einn eða annan hátt. En vanda þarf til verka. Undirritaður gerir athugasemd við þann feluleik sem málið allt virðist vera í og þar með löggjöfin. Háskólasamstæður, þar sem stærsti skólinn tekur yfir hina og þeir verða að sviði innan hans og taka nafn hans, verða hluti af rekstri hans, eru ekki háskólasamstæður. Það eru einfaldlega sameiningar. Köllum hlutina réttum nöfnum. Það fylgir því mikil hætta að þykjast, því að þá erum við blind fyrir því sem þarf að gera til að tryggja að sameining verði ekki einfaldlega yfirtaka, þar sem stærri skólinn tekur það sem virkar/skaffar/rekur sig, en losar sig við hitt með tímanum. Ekki af því að hann vilji það eitthvað endilega, heldur vegna þess að hann þarf eða verður. Með svipuðum rökum má sjá fyrir að yfirtaka eins skóla á öðrum, getur gengið vel upp ef minni skólinn er sérhæfður – en getur farið mjög illa ef hann er það ekki. Ef t.d. sama fagið er kennt við stóra skólann og litla skólann, er mikil hætta á því að sú kennsla færist yfir á stóra skólann eða stærri deildina – enda í raun skrítið að reka margar deildir sem kenna það sama innan sama fyrirbærisins. Þannig er erfiðara að sameina HA og HÍ, en að sameina LBHÍ ýmist HA eða HÍ. Það er reyndar einnig mjög sérstakt að í lögunum er talað um flaggskipsháskóla og að hann þurfi að hafa yfir 5000 nemendur. HÍ er eini skólinn sem uppfyllir það skilyrði og væri því nærri lagi að skrifa lögin út frá því hvernig HÍ geti sameinast öðrum skólum. Aftur er ekki verið að kalla hlutina sínum réttu nöfnum, að því er virðist. Stóru spurningarnar við sameiningar háskóla eru þær að ef á að hagræða og spara, er ekki einfaldlega hægt að hafa pólitískt þor til að gera það beint og ef yfirlýst takmark er ekki hagræðing hvernig er hægt að tryggja hagsmuni minni aðilans til lengri tíma þmt nærumhverfis hans (lesist landsbyggðin). Eitt svarið við því er raunveruleg háskólasamstæða, þar sem skólar standa jafnfætis, nýta samlegðina og vinna saman. Svarið er líklega ekki að gera þá að sviði innan HÍ, nema þá að meira komi til sem hönd á festir. Það er þó vissulega texti í lögunum, sem gæti tryggt þetta „Stofnun og aðild að háskólasamstæðu skal byggja á sérstöku samkomulagi milli viðkomandi háskóla og ráðuneytis, þar sem fjallað er um markmið, stjórnskipulag, hlutverk, fjárhagsmálefni og eftir atvikum annað sem talið er þörf á í slíku samkomulagi“. Ekki er alveg ljóst hvernig rekstur aðildarskóla verður háttað, en svo virðist sem hann sé að fullu tekinn yfir af flaggskipsháskóla. En í raun er sú löggjöf sem sett er fram í samráðsgátt stjórnvalda með ólíkindum. Hvernig geta tveir skólar verið sjálfstæðir „tveir eða fleiri sjálfstæðir háskólar, sem njóta viðurkenningar samkvæmt lögum um háskóla, sameinast undir merkjum háskólasamstæðu, sem lýtur sameiginlegri yfirstjórn.“ þegar annar þeirra stýrir ferðinni nær algerlega „Flaggskipsháskóli leiðir háskólasamstæðu og rektor og háskólaráð þess háskóla fer með stjórn samstæðunnar og þeirra háskóla sem undir hana heyra…“. Eða eru þeir bara sjálfstæðir áður en háskólasamstæðan verður til, sem er orðanna hljóðan. Og þegar rektor stærri skólans, skipar rektorslíki/forstöðumanns hins skólans, sem sitja svo saman í samráðsnefnd? „Daglegri starfsemi aðildarháskóla stýrir forseti skólans sem ráðinn er af rektor að undangenginni auglýsingu“. Í stuttu máli – Sameiningar háskóla eru almennt af hinu góða ef þær eru gerðar á réttum forsendum, með skýr markmið og af yfirvegun, en lögin endurspegla ekki raunveruleikann og háskólasamstæða lýsir ekki vel því sem verið er að gera. Mögulega væri einfaldara að segja að minni skólar geti sameinast HÍ með sérstökum samningi og orðið svið innan HÍ. Það væri tel ég raunsönn lýsing. Samtímis er þá mikilvægt að undirstrika með samningum og öðrum aðgerðum að Háskóli Íslands, sé einmitt það. Virðingarfyllst, Pétur Henry Petersen PhD
- #3Pétur Ástvaldsson
Umsögn Háskóla Íslands um um frumvarp til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 – háskólasamstæða.
- #4Sveitarfélagið Stykkishólmur
Meðfylgjandi er umsögn Sveitarfélagsins Stykkishólms um fyrirliggjandi drög að framvarpi til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæða).
- #5Háskólafélag Suðurlands ehf.
Meðfylgjandi er umsögn Háskólafélags Suðurlands um drög að framvarpi til laga um breytingu á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008 (háskólasamstæða).
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.