Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki (framkvæmd)
Í frumvarpinu er lagðar til breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki einkum með það að markmiði að skýra framkvæmd laganna og auka skilvirkni
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-218/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. nóvember 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 296)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. ágúst 2026)
Tólf umsagnir bárust um frumvarpsdrögin í Samráðsgátt stjórnvalda. Við endanlega gerð frumvarpsins var tekið mið af þeim sjónarmiðum sem þar komu fram. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 25. nóvember 2025 sem 296. mál á 157. löggjafarþingi, þskj. 411, og varð að lögum nr. 27/2026. Gerð er grein fyrir umsögnum í greinargerð með frumvarpinu sem hjálagt fylgir.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
- #1Valdimar Össurarson
Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna (SFH) gera eftirfarandi athugasemdir við lagafrumvarpið: Hér er allt of stutt gengið í takmörkun á aðgengi stórgróðafyrirtækja í samkeppnisrekstri að skattfé almennings, undir yfirskini nýsköpunar. SFH gera alvarlegar athugasemdir við það að á meðan þannig er ausið tugum milljarða árlega úr ríkissjóði til stórfyrirtækja í arðbærum samkeppnisrekstri er sífellt dregið úr því styrkfé sem ætlað er nýsköpunarfyrirtækjum í frumþróun; fyrirtækjum sem þróa góðar nýsköpunarhugmyndir en eru enn ekki komin með vöru á markað. Framleiðsla tæknivarnings á langt í land m… Lesa alla
Samtök frumkvöðla og hugvitsmanna (SFH) gera eftirfarandi athugasemdir við lagafrumvarpið: Hér er allt of stutt gengið í takmörkun á aðgengi stórgróðafyrirtækja í samkeppnisrekstri að skattfé almennings, undir yfirskini nýsköpunar. SFH gera alvarlegar athugasemdir við það að á meðan þannig er ausið tugum milljarða árlega úr ríkissjóði til stórfyrirtækja í arðbærum samkeppnisrekstri er sífellt dregið úr því styrkfé sem ætlað er nýsköpunarfyrirtækjum í frumþróun; fyrirtækjum sem þróa góðar nýsköpunarhugmyndir en eru enn ekki komin með vöru á markað. Framleiðsla tæknivarnings á langt í land með að verða sama undirstöðugrein útflutningsverðmæta hérlendis og í flestum öðrum þróuðum ríkjum. Fullyrða má að orsakir þess séu að stórum hluta skortur á opinberum stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki á fyrstu stigum; lítil hvatning stjórnvalda og vanmat á framlagi íslenskra hugvitsmanna. Hagsmunapot stórfyrirtækja og samtaka þeirra hefur m.a. leitt til þeirrar skrumskælingar nýsköpunarstuðnings sem birtist í fjáraustri ríkissjóðs til fyrirtækja í arðbærum rekstri, samkvæmt lögum þeim sem hér um ræðir. Meðan fyrirtækjum í arðbærum rekstri; jafnvel samkeppnisrekstri, er þannig nánast veitt sjálftökuheimild úr ríkissjóði, er stórlega skorið niður það fé sem samkeppnissjóðir fá til stuðnings við hugvitsmenn og aðra aðila sem eru að hefja nýsköpun. Heyrst hefur t.d. að fyrirhugaður sé stórfelldur niðurskurður fjárveitinga til slíkra styrkjaúrræða Tækniþróunarsjóðs á næsta fjárlagaári. Vert er að hafa það í huga að fyrir þær 350 milljónir sem eitt stórfyrirtæki fær í endurgreiðslu vegna nýsköpunar mætti styðja 10 örfyrirtæki um 35 milljónir, sem getur skipt sköpum fyrir þau fyrirtæki Meðan slíkur fjáraustur til stórfyrirtækja tekur til sín vel á annan tug milljarða árlega af skattfé almennings, hefur á umliðnum árum ekki fengist ein einasta króna til stuðnings við einu hagsmunasamtök hugvitsmanna og frumkvöðla á landinu; sem með sjálfboðavinnu halda úti kröftugu starfi í þágu nýsköpunar. SFH gagnrýna harðlega slíka forgangsröðun og meðferð á skattfé almennings, og leggja til að langtum meiri takmarkanir verði settar á þennan fjáraustur en hér er lagt til. 30.11.2025 f.h. Samtaka frumkvöðla og hugvitsmanna Valdimar Össurarson, stjórnarformaður
- #2Framvís - Samtök vísifjárfesta
Umsögn Framvís vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki - mál nr. S-218/2025 Framvís er sammála því að tilefni sé til umbóta á kerfinu. Þó er mikilvægt að nefna að helsti drifkraftur að slíkum breytingum sé ekki að draga úr útgjöldum, líkt og lesa má úr rökstuðningi frumvarpsins, heldur að auka skilvirkni og gagnsæi í kerfinu. Kerfi sem reynst hefur grundvallar forsenda í uppbyggingu fjölda verðmætra fyrirtækja og hugverka sem skilað hefur verðmætum til ríkisins í formi launaskatts, tekjuskatts fyrirtækja og fjármagnstekjuskatts auk annarra hagrænna á… Lesa alla
Umsögn Framvís vegna frumvarps til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki - mál nr. S-218/2025 Framvís er sammála því að tilefni sé til umbóta á kerfinu. Þó er mikilvægt að nefna að helsti drifkraftur að slíkum breytingum sé ekki að draga úr útgjöldum, líkt og lesa má úr rökstuðningi frumvarpsins, heldur að auka skilvirkni og gagnsæi í kerfinu. Kerfi sem reynst hefur grundvallar forsenda í uppbyggingu fjölda verðmætra fyrirtækja og hugverka sem skilað hefur verðmætum til ríkisins í formi launaskatts, tekjuskatts fyrirtækja og fjármagnstekjuskatts auk annarra hagrænna áhrifa. Stuðningurinn hefur einnig tryggt að verðmæt félög og rannsóknar- og þróunarstarfsemi þeirra byggist upp á Íslandi en flytjist ekki úr landi í leit að betra stuðningsumhverfi. Í greinargerð kemur fram: „Frumvarpinu er fyrst og fremst ætlað að skýra framkvæmd laganna og auka skilvirkni“, og síðar; „tryggja að stuðningurinn færi fyrst og fremst til þeirra fyrirtækja sem stunda raunverulega nýsköpun til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag“. Ekki er augljóst hvernig þeim breytingum sem lagðar eru til er ætlað að ná þessum markmiðum með nokkrum hætti. Stærstu gallarnir við núverandi kerfi felast í; 1. Óskilvirkni við afgreiðslu umsókna, sem tafist hafa um marga mánuði á árinu og sett mörg sprotafélög í virkilega erfiða stöðu, og 2. Ákvörðun Rannís byggir á óskýru og huglægu mati á því hvað telst vera „raunveruleg nýsköpun“. Þetta er sérstaklega bagalegt í ljósi þess að fjöldi nýsköpunarfyrirtækja fékk óvænt á þessu ári höfnun frá Rannís á 2024 umsóknum sínum á þeim forsendum að viðkomandi verkefni teljist ekki sem nýsköpun heldur „hefðbundinn rekstur“, jafnvel þó um sé að ræða fyrirtæki sem hafa unnið að rannsóknum og þróun í mörg ár. Í mörgum tilfellum eru fyrirtækin ekki byrjuð að selja vöru, hafa áður hlotið samþykki fyrir sambærilegar umsóknir, og eru að þróa einstaka tækni á heimsvísu. Hafnanirnar eru veittar án nokkurs frekari rökstuðnings og ekki er til staðar formlegt áfrýjunarferli. Um er að ræða óútskýrða fjölgun hafnana án þess að fyrir liggi nokkur lagabreyting. Ein skýrasta breyting frumvarpsins felst í því að veita Rannís aukinn sveigjanleika þegar kemur að svartíma umsókna, sem dregur úr bæði gagnsæi og fyrirsjáanleika og verður því að teljast vinna þvert á yfirlýst markmið frumvarpsins.
- #3Sigurður Ingi Erlingsson
Umsögnin er send inn fyrir hönd Rannsóknaráðs Háskólans í Reykjavík, sjá viðhengi.
- #4Spesía Invest ehf.
Spesía Invest ehf. vill koma á framfæri eftirfarandi atriðum: 1) Fyrirtæki "í fjárhagsvanda" eiga ekki rétt á endurgreiðslu og hugtakið "í fjárhagsvanda" er skilgreint í 2. gr. reglugerðar 758/2011. Skv. reglugerðinni þá er um er að ræða "félag með takmarkaðri ábyrgð og bókfært eigið fé þess, samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum, er orðið lægra en nemur helmingi innborgaðs hlutafjár að meðtöldum yfirverðsreikningi. Þessi töluliður á ekki við um fyrirtæki sem er lítið eða meðalstórt og starfsemi þess hefur staðið yfir í þrjú ár eða skemur." Ekki er gerð athugasemd við að stuðningur s… Lesa alla
Spesía Invest ehf. vill koma á framfæri eftirfarandi atriðum: 1) Fyrirtæki "í fjárhagsvanda" eiga ekki rétt á endurgreiðslu og hugtakið "í fjárhagsvanda" er skilgreint í 2. gr. reglugerðar 758/2011. Skv. reglugerðinni þá er um er að ræða "félag með takmarkaðri ábyrgð og bókfært eigið fé þess, samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum, er orðið lægra en nemur helmingi innborgaðs hlutafjár að meðtöldum yfirverðsreikningi. Þessi töluliður á ekki við um fyrirtæki sem er lítið eða meðalstórt og starfsemi þess hefur staðið yfir í þrjú ár eða skemur." Ekki er gerð athugasemd við að stuðningur sé ekki veittur fyrirtækjum í fjárhagsvanda en skilgreiningin á fjárhagsvanda er hins vegar galin og virðist byggja á misskilningi eða misþýðingu á sambærilegri reglugerð í Evrópu. Íslenska reglugerðinn skilgreinir fjárhagsvanda sem: "þegar bókfært eigið fé fyrirtækis, samkvæmt viðurkenndum reikningsskilaaðferðum, er orðið lægra en nemur helmingi innborgaðs hlutafjár að meðtöldum yfirverðsreikningi." Þessi skilgreining á fjárhagsvanda stenst enga skoðun og þýðir að öll félög sem hafa eytt meira en helmingi þess fjár sem þau hafa safnað frá upphafi frá fjárfestum teljast "í fjarhagsvanda". T.d er félag sem sækir 1 milljarð frá fjárfestum í fjárhagsvanda þegar búið er að nota 501 milljón en 499 milljónir eru eftir og félagið er augljóslega ekki í fjárhagsvanda í neinum skilningi. Ennig félag sem sækir 1 milljarð til fjárfesta, ver honum öllum í þróun, sækir svo annan milljarð og á 990 milljónir haf honum eftir - það félag telst líka í "fjárhagsvanda" skv. þessari skilgreiningu. Ljós er að þessi skilgreining á ekkert skilt við raunverulegan fjárhagsvanda og þýðir að félögum, jafnvel þeim sem nýlega hafa lokið fjármögnun, er mismunað á e-m furðulegum forsendum um ímyndaðan fjárhagsvanda. Íslenska reglulegerðin virðist byggja á evrópskum reglum sem skilgreina fjárhagsvanda sem svo (á ensku): "This [fjárhagsvandi] is the case when deduction of accumulated losses from reserves (and all other elements generally considered as part of the own funds of the company) leads to a negative cumulative amount that exceeds half of the subscribed share capital. For the purposes of this provision, ‘limited liability company’ refers in particular to the types of company mentioned in Annex I of Directive 2013/34/EU (1 ) and ‘share capital’ includes, where relevant, any share premium." Sjá t.d. hér: https://innovationsfonden.dk/en/undertaking-difficulty dönsk umfjöllun þar sem fjárhagsvandi er skilgreindur þannig að eigið fé þarf að vera neikvætt og neikvæða stærðin þarf að vera stærri en helmingur hlutafjár - en EKKI þannig að eigið fé fari undir helming hlutafjár - enda þá oftast alls enginn fjárhagsvandi á ferðinni eins og almenn skynsemi segir manni. Hér hefur orðið e-r handvömm í þýðingu eða staðfæringu sem þarf að laga strax enda afar ósanngjarnt og ótækt að hafa þetta í reglugerð svona. 2) Í lögum um tekjuskatt - gr. 10 c er fjallað um skattalega meðhöndlun kauprétta sprotafyrirtækja. Þessi grein var mikil framför og eitthvað sem sprotafyrirtæki á Íslandi höfðu lengi kallað eftir. Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að það verður að fá staðfestingu Rannís áður en hægt er að gera kaupréttarsamninga skv. þessari grein. Rannís virðist hins vegar ekki gera ráð fyrir að hægt sé að sækja um slíka staðfestingu nema vegna skattafrádráttar. Umsagnaraðili á ekki rétt á skattafrádrætti (vegna annarra styrkja) en er samt sannanlega sprotafyrirtæki í nýsköpun og það er mjög bagalegt að fá ekki að nota grein 10.c tekjuskattslaga við gerð kauprétta við starfsfólk nema sækja um skattafrádrátt til Rannís þó við eigum í raun ekki rétt á honum. Hér þyrfti að skýra að hægt væri að sækja um staðfestingu Rannís á að fyrirtæki uppfylli skilyrði fyrir kaupréttum skv. gr. 10.c tekjuskattslaga ÁN ÞESS að þurfa að sækja sérstaklega um skattafrádrátt. Virðingarfyllst, f.h. Spesía Invest ehf. Georg Lúðvíksson, forstjóri
- #5Fróði Steingrímsson
Meðfylgjandi er umsögn Frumtaks Ventures ehf. um frumvarp til breytingar á lögum nr. 45/2020.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.