Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-217/2025 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytinga á lögum um úrvinnslugjald.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Frumvarpið felur í sér breytingar á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002. Í frumvarpinu er gerður enn skýrari greinarmun á úrvinnslugjaldi sem innheimt er við nýskráningu ökutækja, sem nær þá til ábyrgðar framleiðenda og innflytjenda á úrvinnslu ökutækis, og hins vegar á skilagjaldi á skráningarskyld ökutæki sem innheimt er reglulega af skráðum eiganda ökutækis, sem á móti á rétt á að fá endurgreitt skilagjald fyrir ökutæki þegar því er skilað á móttökustöð til endurnýtingar og förgunar. Jafnframt er lagt til að kveðið verði skýrar á um hlutverk úrvinnslugjaldsins í því að ná tölulegum markmiðum um undirbúning fyrir endurnotkun, endurvinnslu, endurnýtingu, söfnun og förgun úr sér genginna, skráningarskyldra ökutækja í samræmi við skyldur Úrvinnslusjóðs þar að lútandi. Á seinustu þremur árum hafa verið gerðar breytingar á tollskránni með auglýsingum, um breytingu á viðauka I við tollalög, nr. 88/2005, nr. 132/2022, nr. 8/2023, nr. 76/2023, nr. 95/2023, nr. 14/2024, nr. 33/2024 og nr. 143/2024. Nauðsynlegt er að uppfæra lög um úrvinnslugjald reglulega með hliðsjón af breytingum á tollskrá og eru því í frumvarpinu lagðar til breytingar á lögunum sem felast í endurskoðun á tollskrárnúmerum og uppfærslu á viðaukum við lögin sem leiða af fyrrgreindum auglýsingum. Með frumvarpinu eru einnig lagðar til uppfærslur á reiknilíkani viðauka XVIII við lögin sem byggja á reynslu síðustu tveggja ára. Lagðar eru til breytingar sem miða að því að fjölga valmöguleikum fyrir meginsöluumbúðir tiltekinna tollskrárnúmera ásamt því að gera viðeigandi lagfæringar á hlutfallstölum. Með þessum breytingum er ætlað að tryggja að álagning úrvinnslugjalds á umbúðir nái til flutningsumbúða í þeim tilvikum þegar vörur eru ekki seldar í sérstökum söluumbúðum og í tilviki skilagjaldsskyldra drykkjarvöruumbúða sem bera ekki úrvinnslugjald. Þá er gerð tillaga um að ákvæði til bráðabirgða V sem kom inn með lögum nr. 101/2024 verði framlengt og uppfært með hliðsjón af breytingum á tollskrá. Regluleg endurskoðun og uppfærsla líkansins er mikilvæg til að álagning úrvinnslugjalda sé sem réttust hverju sinni til að standa undir kostnaði við úrvinnslu umbúðaúrgangs og endurspegla betur raunverulegt magn umbúða sem úrvinnslugjald er lagt á sem hefur mikla þýðingu fyrir úrgangstölfræði og stöðu gagnvart tölulegum markmiðum um árangur í úrgangsmálum.

S-217/2025· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 28. okt. 2025 – 8. nóv. 2025· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytinga á lögum um úrvinnslugjald.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-217/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 8. nóvember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 308)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. janúar 2026)

Frumvarp var samþykkt á Alþingi 18. desember 2025.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-217/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald · Alviti