Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-214/2025 · Innviðaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 (EES-reglur)

Innviðaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 (EES-reglur).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Með frumvarpi um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 er ætlunin að tryggja lagastoð fyrir innleiðingu reglugerðar (EB) nr. 391/2009. Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 391/2009 frá 23. apríl 2009 um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit er hluti af endurútgáfu tilskipunar ráðsins 94/57/EB um sameiginlegar reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun og fyrir tilheyrandi starfsemi siglingamálayfirvalda. Sú tilskipun er innleidd hér á landi með reglugerð nr. 142/2004 um viðurkenningu flokkunarfélaga og um reglur og staðla fyrir stofnanir sem sjá um skipaeftirlit og -skoðun. Þar sem eldri tilskipun hefur verið breytt í veigamiklum atriðum var ákveðið að endurútgefa Evrópugerðina til að skýra og styrkja ýmis efnisatriði. Helstu nýmæli reglugerðar (EB) nr. 391/2009 eru breytingar á valdi framkvæmdastjórnar ESB, eða Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) í tilviki EFTA-ríkjanna, til að leggja á sektir og févíti ef viðurkenndar stofnanir (stofnanir sem sjá um skipaskoðun og -eftirlit og hafa verið viðurkenndar til þeirra starfa) uppfylla ekki þau skilyrði sem kveðið er á um í reglugerðinni. Þessar ákvarðanir ESA yrðu svo bornar undir EFTA-dómstólinn til endurskoðunar, en ekki íslenska dómstóla. Vegna þessara ákvæða þarf lagabreytingu til að hægt sé að innleiða gerðina.

S-214/2025· Drög að frumvarpi til laga· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. okt. 2025 – 6. nóv. 2025· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 (EES-reglur)

Innviðaráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 (EES-reglur).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-214/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. nóvember 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 330)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. janúar 2026)

Ein umsögn barst frá Samtökum verslunar og þjónustu. Í umsögn sinni beina samtökin því til stjórnvalda að ganga úr skugga um hvaða afleiðingar það kann að hafa fyrir innlenda aðila taki frumvarp þetta gildi óbreytt. Þá telja samtökin nauðsynlegt að meta líkindi þess að innlendir aðilar verði fyrir viðbótarkostnaði vegna málareksturs utan Íslands. Þar sem engar viðurkenndar stofnanir hafa höfuðstöðvar sínar á Íslandi og hafa verið viðurkenndar á grundvelli beiðni frá EFTA-ríki er ekki talið að lagabreytingin hafi afleiðingar fyrir innlenda aðila.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-214/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á skipalögum nr. 66/2021 (EES-reglur) · Alviti