Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-210/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011

Lagt er til að lögreglu verði heimilt að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Dómsmálaráðuneytið óskar umsagna um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 85/2011 um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Í þeim tilgangi að auka vernd brotaþola gegn heimilisofbeldi og umsáturseinelti er með frumvarpinu lagt til að innleidd verði í lög nr. 85/2011 ákvæði sem heimila lögreglu að taka ákvörðun um að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili. Jafnframt er lagt til að málsmeðferð hjá lögreglustjóra verði breytt á þann veg að fallið verði frá þeirri kröfu að ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili sé tekin af lögreglustjóra eða fulltrúa hans á heimilisvarnarþingi brotaþola. Með þeirri breytingu er þeim lögreglustjóra sem fer með rannsókn málsins, óháð heimilisvarnarþingi brotaþola, gert kleift að taka ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, rafrænt eftirlit, framlengingu úrræðanna og jafnframt hafa umsjón með málinu fyrir dómi. Breytingin er til að stuðla að frekara samræmi og samfellu í meðferð máls brotaþola á rannsóknarstigi og hjá dómstólum, með það að markmiði auka réttaröryggi brotaþola. Auk þess eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum til að viðurlög við brotum gegn rafrænu eftirliti séu í samræmi við núgildandi viðurlög við brotum gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Því er með frumvarpinu lagðar til breytingar á viðeigandi ákvæðum almennra hegningarlaga, þess efnis, að ef einstaklingur brýtur gegn rafrænu eftirliti geti það varðað sektum eða fangelsi til samræmis við núgildandi viðurlög við brotum gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Þá er lagt til að sömu viðurlög gildi þegar maður af ásetningi eða stórfelldu gáleysi hindrar rafrænt eftirlit. Markmið frumvarpsins er að auka vernd brotaþola gegn heimilisofbeldi og umsáturseinelti en þó með þeim hætti að jafnframt sé gætt að hagsmunum þess einstaklings sem sæta þarf rafrænu eftirliti með nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Breytingarnar eru taldar nauðsynlegar til að sporna gegn endurteknum brotum gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili og bæta sönnunarfærslu vegna brota. Frumvarpið byggir á því sjónarmiði að ekki sé litið á heimilisofbeldi sem einkamál brotaþola heldur mál sem varðar samfélagið í heild og því nauðsynlegt að koma á frekari raunhæfum úrræðum til að bregðast við því. Þá liggur það sjónarmið til grundvallar frumvarpinu að ábyrgð heimilisofbeldis og umsáturseineltis eigi að liggja hjá sakborningi en ekki brotaþola.

S-210/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 22. okt. 2025 – 29. okt. 2025· 1 umsögn

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011

Lagt er til að lögreglu verði heimilt að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-210/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 1 umsögn barst
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 298)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (1)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-210/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili nr. 85/2011 · Alviti