Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-206/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)

Félags- og húsnæðismálaráðherra kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar á gildandi lögum um atvinnuleysistryggingar. Eftirfarandi er meðal helstu breytinga sem lagðar eru til: Stytting bótatímabils atvinnuleysistrygginga Lagt er til að hámarkslengd þess tímabils sem atvinnuleysistryggingar eru greiddar verði stytt um tólf mánuði þannig að heimilt verði að greiða atvinnuleysistryggingar í samtals 18 mánuði í stað 30 mánaða. Breytt lágmarksskilyrði fyrir rétti til atvinnuleysistrygginga Lagt er til að atvinnuleitandi geti almennt ekki talist tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins fyrr en viðkomandi hefur starfað á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 12 mánuði á ávinnslutímabili en samkvæmt gildandi lögum ávinnst réttur til hlutfallslegrar greiðslu atvinnuleysisbóta eftir einungis þrjá mánuði í starfi á innlendum vinnumarkaði. Breytt og einfölduð stjórnsýsla atvinnuleysistrygginga Í ljósi breytinga sem hafa orðið hvað varðar áætlanagerð og reikningshald ríkissjóðs í kjölfar gildistöku laga um opinber fjármál er í frumvarpinu gert ráð fyrir að Atvinnuleysistryggingasjóður verði lagður niður og að kveðið verði á um að kostnaður við framkvæmd atvinnuleysistrygginga greiðist úr ríkissjóði. Hið sama á við um Tryggingasjóð sjálfstætt starfandi einstaklinga. Í frumvarpinu er jafnframt lagt til að felld verði niður lögbundin úthlutunarnefnd samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar sem og vinnumarkaðsráð samkvæmt lögum um vinnumarkaðsaðgerðir. Nám samhliða greiðslu atvinnuleysistrygginga Lagt til að heimildir atvinnuleitanda til að stunda nám samhliða atvinnuleysistryggingum verði skýrðar og einfaldaðar og sérreglum fækkað. Eru jafnframt lögð til þau nýmæli að ráðherra verði heimilt að kveða í reglugerð á um auknar heimildir tiltekinna hópa atvinnuleitenda, svo sem þeirra sem skráðir hafa verið án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í tólf mánuði eða lengur, til þess að stunda tiltekið nám á framhaldsskólastigi eða á háskólastigi. Desemberuppbót atvinnuleysistrygginga lögfest Lagt er til að í lögum um atvinnuleysistryggingar verði kveðið á um rétt atvinnuleitenda til greiðslu desemberuppbótar á grunnatvinnuleysistryggingar, enda séu tiltekin skilyrði uppfyllt, en samkvæmt gildandi lögum hefur árlega verið tekin ákvörðun um rétt atvinnuleitenda til greiðslu desemberuppbótar hverju sinni. Eftirlit með atvinnuleysistryggingum atvinnuleitenda sem koma að atvinnurekstri Lagt er til að skýrt verði kveðið á um að atvinnuleitandi sem kemur að atvinnurekstri lögaðila þar sem viðkomandi atvinnuleitandi er virkur aðili vegna eignar- eða stjórnunaraðildar skal tilgreina það starfshlutfall sem viðkomandi gegnir í samræmi við vinnuframlag sitt en starfshlutfallið getur þó aldrei orðið lægra en a.m.k. 25%. Áhrif útgreiðslu séreignarsparnaðar á atvinnuleysistryggingar Lagt er til að útgreiðsla séreignarsparnaðar sem myndast hefur af viðbótariðgjaldi skv. II. kafla laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, komi ekki til frádráttar greiðslum atvinnuleysistrygginga. Breytingar á lögum um vinnumarkaðsaðgerðir Í frumvarpinu eru lagðar eru til breytingar á lögum um vinnumarkaðsaðgerðir sem þykja nauðsynlegar í kjölfar þeirra breytinga sem gerðar voru með lögum nr. 104/2024, um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.

S-206/2025· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 15. okt. 2025 – 29. okt. 2025· 15 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)

Félags- og húsnæðismálaráðherra kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.)

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-206/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 15 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 312)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. desember 2025)

Drög að frumvarpinu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 15. –29. október 2025. Alls bárust 15 umsagnir sem teknar voru til skoðunar en sú skoðun leiddi þó ekki til breytinga á greinum frumvarpsins. Í ljósi ábendinga sem komu fram í umsögnum um mat á áhrifum frumvarpsins, þar með talið á fjárhag sveitarfélaga, var 6. kafli uppfærður og ítarlegar fjallað um mat á áhrifum. Útbýtingardagur frumvarpsins á Alþingi var 1. desember 2025.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (15)
  • #1Svavar Kjarrval Lúthersson
    Um 4. lið almennra athugasemda greinargerðar við frumvarpsdrög: Ráðuneytinu er fyllilega ljóst um tilvist og þjóðréttarlega bindandi gildi Samningsins um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og Samninginn um réttindi fatlaðs fólks. Kemur því á óvart að ráðuneytið segi ekki tilefni til þess að fjalla um þessa samninga. Sú handabending að um sé að ræða samræmingu við önnur norðurlandaríki hvað styttingu bótatímabilsins varðar leysir íslenska ríkið ekki frá skyldu sinni samkvæmt þessum samningum sem bannar afturför og jákvæðum skyldum þeirra til síbatnandi lífsskilyrða. Í tilviki fatla… Lesa alla

    Um 4. lið almennra athugasemda greinargerðar við frumvarpsdrög: Ráðuneytinu er fyllilega ljóst um tilvist og þjóðréttarlega bindandi gildi Samningsins um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi og Samninginn um réttindi fatlaðs fólks. Kemur því á óvart að ráðuneytið segi ekki tilefni til þess að fjalla um þessa samninga. Sú handabending að um sé að ræða samræmingu við önnur norðurlandaríki hvað styttingu bótatímabilsins varðar leysir íslenska ríkið ekki frá skyldu sinni samkvæmt þessum samningum sem bannar afturför og jákvæðum skyldum þeirra til síbatnandi lífsskilyrða. Í tilviki fatlaðs fólks er algengt að það lendi í langvarandi atvinnuleysi. Þó það séu nýbyrjað að kalla í átak til að aðstoða fatlað fólk til að öðlast störf (sbr. Unndísarverkefnið), þá er það alltof skammt á veg komið til þess að hægt sé að segja að málið sé leyst. Tilefnið fyrir umfjöllunina er enn til staðar eins og sakir standa. Ráðuneytið þarf að gera miklu betur við samningu þess liðar.

  • #2Guðmundur Ásgeirsson

    Sjá umsögn í viðhengi.

  • #3BSRB

    Hér má finna umsögn BSRB.

  • #4Persónuvernd

    Með fylgir umsögn Persónuverndar.

  • #5Samband sveitarfélaga á Austurlandi

    Hjálögð er umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-206/2025: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.) · Alviti