Frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (símar og snjalltæki)
Í drögum að frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um grunnskóla varðandi sértækari heimildir ráðherra til að kveða á um í reglugerð um notkun síma og snjalltækja í skóla- og frístundastarfi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-195/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 17. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 19 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 232)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. nóvember 2025)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 157. löggjafarþingi, sjá 232. mál, þskj. 295. Gerð er grein fyrir niðurstöðum samráðs í 5. kafla frumvarpsins.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (19)
- #1Ásdís Bergþórsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn mín
- #2Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar
- #3Karítas Lea Kristjánsdóttir
Ég heiti Karítas Lea og er í 10.B í Foldaskóla í Grafarvogi. Ég er harðlega á móti nýja síma banninu, af því að ég nota símann minn daglega í nauðsynlegum tilgangi t.d. Til að borga í strætó til þess að komast í íþróttir (Dalhús) eða hafa hann á mér í neyðartilvikum. Ég skil að vísu að símar eru truflun í kennslustundum en að banna þá allan skóladaginn finnst mér óþarfi. Í Foldaskóla hefur síma bannið ekki haft nein góð áhrif á nemendur, sumum nemendum leiðist svo svakalega að það er daglega verið að eiðileggja eignir skólans, eins og sófa og klósett, og margir nemendur ósáttir við stjórnendu… Lesa alla
Ég heiti Karítas Lea og er í 10.B í Foldaskóla í Grafarvogi. Ég er harðlega á móti nýja síma banninu, af því að ég nota símann minn daglega í nauðsynlegum tilgangi t.d. Til að borga í strætó til þess að komast í íþróttir (Dalhús) eða hafa hann á mér í neyðartilvikum. Ég skil að vísu að símar eru truflun í kennslustundum en að banna þá allan skóladaginn finnst mér óþarfi. Í Foldaskóla hefur síma bannið ekki haft nein góð áhrif á nemendur, sumum nemendum leiðist svo svakalega að það er daglega verið að eiðileggja eignir skólans, eins og sófa og klósett, og margir nemendur ósáttir við stjórnendur skólans. Svo hugsa ég líka til allra krakkanna sem eru ný komnir á unglingastig sem hafa beðið spennt eftir að klára miðstig og hafa aðeins meira frelsi og mega hafa/vera í símanum. Ég man hversu spennandi þetta var þegar ég var að byrja á elstastigi. En því miður er ekki svoleiðis upplifun fyrir þau. Að lokum vil ég koma því fram, sem nemandi í grunnskóla sem fylgir þessari nýju reglu, að nútímatækni er framtíðin okkar og við ættum frekar að læra hvernig á að nota hana skynsamlega, í stað þess að banna hana.
- #4Ragnar Þór Pétursson
15. október 2025 Athugasemdir við frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (símar og snjalltæki). Frá mennta- og barnamálaráðherra. Um lið 2.1. Ekkert í þessum kafla styður við símabann. 2.2. Hér er eftirfarandi haldið fram um vinnu starfshóps: „Í skýrsludrögunum eru niðurstöður reifaðar, þar sem kemur m.a. fram að snjallsímar eigi ekki erindi innan grunnskóla í afþreyingartilgangi. Þá kemur fram að hópurinn er sammála um að notkun farsíma hjá nemendum í 1.–7. bekk eigi almennt ekki að vera í skólastarfi og að notkun samfélagsmiðla í afþreyingartilgang… Lesa alla
15. október 2025 Athugasemdir við frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (símar og snjalltæki). Frá mennta- og barnamálaráðherra. Um lið 2.1. Ekkert í þessum kafla styður við símabann. 2.2. Hér er eftirfarandi haldið fram um vinnu starfshóps: „Í skýrsludrögunum eru niðurstöður reifaðar, þar sem kemur m.a. fram að snjallsímar eigi ekki erindi innan grunnskóla í afþreyingartilgangi. Þá kemur fram að hópurinn er sammála um að notkun farsíma hjá nemendum í 1.–7. bekk eigi almennt ekki að vera í skólastarfi og að notkun samfélagsmiðla í afþreyingartilgangi á skólatíma eigi alltaf að vera óheimil.“ Það er ábyrgðarlaust af mennta- og barnamálaráðherra að halda þessu fram. Sannleikurinn er sá að frá því að ráðherrar Flokks fólksins gáfu það út að símar yrðu bannaðir í skólum, hver sem niðurstaða hópsins yrði, hefur umræddur starfshópur ekki átt nokkra möguleika á að komast að sameiginlegri niðurstöðu og engin „skýrsla“ er tilbúin í drögum. Til eru tvær hugmyndir að skýrslum sem formaður hópsins er ábyrgur fyrir og eru ósamþykktar tilraunir hans til þess að finna lendingu í flóknu máli. Að vitna í þau skrif og bera starfshópinn fyrir þeim er óheiðarlegt, óviðeigandi og villandi. Því fer fjarri að allt sem skrifað er í þau drög sé niðurstaða umræðu og ofangreind tilvitnun er beinlínis röng og er birt án vitundar eða samþykkis þeirra sem í hópnum sátu. Á Akureyri hefur, svo dæmi sé tekið, verið farin leið sem fulltrúar sveitarfélagsins segjast hafa ítrekað kynnt ráðherra og boðið fram sem einhverskonar líkan að kerfi á landsvísu. Þar er litið á það sem sanngjarnan þátt í símabanni að nemendur fái að nota síma sína í „afþreyingarskyni“ á ákveðnum dögum. Eitt af því sem nemendur hafa leyfi til að gera er að nota þá samfélagsmiðla sem þeir hafa aldur til að nota. Engin afstaða um blátt bann við slíkri notkun var rædd, hvað þá samþykkt. Engin afstaða var heldur tekin gegn því að nemendur noti samskiptamiðla t.d. í tengslum við leiksýningar eða aðrar uppákomur, fjáraflanir eða önnur tilefni þar sem slík notkun getur talist eðlileg. Eins var engin afstaða tekin gegn því að nemendur hefðu aðgang að upplýsingum um eigin vinnu eða æfingar sem miðlað er um slíka miðla eða að þeir eigi í samskiptum við foreldra sína eða aðra nákomna. Svona vinna er mennta- og barnamálaráðherra ekki samboðin. 2.3. Ásdís Bergþórsdóttir fjallar með greinargóðum hætti um „rannsóknakafla“ greinargerðarinnar í umsögn sinni sem dagsett er 7.10. 2025. Ég tek undir allt sem hún bendir á. Þessi hluti er með öllu ótækur sem fagleg samantekt eða greinargerð um samspil snjalltækni, vellíðunar og námsárangurs. Hið eina, sem orðið er sæmilega skýrt, af fjölmörgum rannsóknum á áhrifum snjalltækni á líf, nám og störf ungmenna er að ekki hefur tekist að styðja með rökum þá einföldu mynd sem hér er máluð upp. Þetta veit ráðherra. Í evrópskri útgáfu af læknaritinu Lancet var í vor sýnt fram á að símabann í skólum bætti hvorki andlega líðan 12-15 ára nemenda né minnkaði símanotkun þeirra. Það er í samræmi við aðrar vísbendingar sem sýnt hafa að nemendur í símabannsskólum eru ólíklegri til að slökkva á tilkynningum þegar þeir fara að sofa og hafa meiri ótta við að missa af efni á samfélagsmiðlum. Í bandarískum könnunum meðal stórra kennarasamtaka hefur ítrekað komið í ljós að í skólum sem banna síma er meira stafrænt einelti en í öðrum skólum. Engar stórar, fræðilegar rannsóknir styðja þá hugmynd að símabann sé líklegt til árangurs. Þvert á móti benda sífellt fleiri rannsakendu á að símabann sé óæskileg nálgun og að rétt notkun síma nemenda í kennslu geti aukið gæði náms. 2.4. Ekkert í þessum hluta styður við símabann nema síður sé. 2.5. Allur þessi kafli grefur undan hugmyndum um símabann. Hér ber þó að staldra við eina fullyrðingu: „Í skólastarfi er nemendum almennt séð fyrir viðeigandi búnaði til að sinna verkefnum sem tengjast stafrænni tækni.“ Þessi fullyrðing er ekki rétt. Í mjög mörgum skólum er tækjakostur lítill og lélegur. Nemendur og kennarar nota búnað sem alls ekki uppfyllir allar kröfur skólastarfsins. Þá er aðgengi að forritum og hjálpartækjum mjög takmarkað, svifaseint og nánast ónýtt, jafnvel hjá stöndugum sveitarfélögum. Nemendur á unglingastigi hringinn um landið klippa kvikmyndaverkefni nær undantekningarlaust í forritum í eigin símum í stað þess að nota þau úreltu forrit sem boðið er upp á í tækjum skólans. Marga mánuði tekur að láta samþykkja smáforrit til notkunar í kennslu og oft daga slíkar beiðnir uppi sökum tímaskorts og manneklu. Í framsæknu, stafrænu skólastarfi bæta persónulegir símar heilli vídd í þá möguleika sem nemendur standa frammi fyrir til að skipuleggja og ástunda nám sitt. Hvort sem nemandi notar eigið skipulagsforrit (eins og Notion) eða nýtir síma sinn í eðlisfræðitilraunum (t.d. með Phyphox) eða sem upptökutæki eða myndavél þá skiptir máli að hann geti hagnýtt sér þau verkfæri sem best duga. Það getur verið mjög persónubundið. Það skiptir ekki máli hvort nemandi er með rándýran, splunkunýjan farsíma af dýrustu gerð eða gamlan snjallsíma. Slík tæki eru löngu orðin að mjög öflugum tölvum sem vel má nýta í námi. Reyndar getur markviss kennsla í upplýsingatækni og ábyrg notkun eigin tækja dregið úr þeim yfirborðskennda samanburði sem fylgir því þegar tæki verða fyrst og fremst stöðutákn eða afþreyingarmiðlar. Með því að banna síma á skólatíma er verið að senda nemendum þau skilaboð að slík tæki sé ógagnleg í námi. Þar með er ýtt undir þær víðtæku ranghugmyndir sem mörg ungmenni hafa um að símar séu fyrst og fremst til afþreyingar. Þvert á móti eru símar öflugar tölvur sem nýta má óháð því hvort síminn er nýr eða gamall. Raunar er líklega ekkert námsgagn sem hefur meiri möguleika á að jafna aðstöðumun milli nemenda ef rétt er á málum haldið. 2.6. Það skýtur skökku við að skrifuð séu inn í lög einstök tæki og tól í skólastarfi. Snjalltæki eru til þess að gera nýleg tækni og viðbúið er að tækniþróun mundi áfram halda áfram að vera hröð. Nú er til að mynda unnið að því á vegum OpenAi að hanna nýja tegund að tækni sem er í grundvallaratriðum annars eðlis en hefðbundin snjalltæki og símar. Nú þegar eru heyrnartæki snjallvædd, jafnvel fatnaður, úr og skartgripir. Miklu nær væri að beita þeim björgum sem menntayfirvöld hafa nú þegar og eru ætluð til þess að taka breytingum með tíðaranda og tilfallandi áskorunum. Öllum gagnlegum markmiðum frumvarpsins mætti ná með vandaðri námskrárvinnu, útgáfu stuðningsefnis auk innra- og ytra mats á skólum. Í raun er með öllu óskiljanlegt hvers vegna ráðherra telur nauðsynlegt að hverfa frá slíkri leið í þessu tilfelli. Hann hefði getað valið ábyrgari og skaðaminni leiðir. 2.7. Þessi kafli er jafn illa unninn og rannsóknarkaflinn. Um það ber þessi fullyrðing vitni: „Í löndum þar sem bönn eru til staðar eru þau oftast bundin við notkun snjallsíma í skólastarfi. Alla jafna er ætlunin að bæta náms- og félagsumhverfi í skólastarfi og skólum falið að innleiða eða útfæra notkun þessara tækja í skólastarfi.“ Það er ekki hægt að kalla það fyrirkomulag að skólar ákveði „notkun tækja í skólastarfi“ bann við notkun sömu tækja í skólastarfi. Í fjölmörgum löndum hefur sannarlega verið ákveðið að setja stefnur um að tæki skuli nýtt á faglegan og markvissan hátt og að kennarar leggi mat á hvernig það verði best gert. Hér er því ítrekað ruglað saman við „bann“. Þótt þetta komi fram í skýringartexta við fyrstu grein frumvarpsins… „Reglunum er ekki ætlað að banna notkun tækninnar heldur er markmið þeirra að tryggja jafnræði milli skóla og stuðla að jákvæðu og öruggu skólaumhverfi þar sem börn geta einbeitt sér að námi, þroskast og styrkt félagsleg samskipti enda er grunnskóli vinnustaður nemenda“ …hafa mennta- og barnamálaráðherrar Flokks fólksins tekið af öll tvímæli um það í fjölmiðlum að þær heimildir sem lagabreytingarnar myndu veita ráðherra verði nýttar til að leggja á eiginlegt símabann. Slíkar hugmyndir njóta vinsælda hjá sumum jaðarhópum í íslensku samfélagi og hjá stjórnmálaöflum með hneigðir sem tindra í takt við stjórnvöld í ríkjum eins og Ungverjalandi. Þær undantekningar frá banni sem núverandi ráðherra hefur ljáð máls á yrðu veittar á grundvelli einhverskonar veikinda eða fötlunar. Þó það nú væri. Einkasímar eru oft eina leið lesblindra barna að Hljóðbókasafni Íslands, sykursjúkra að eigin blóðsykursmælingum eða blindra að talgervlum. Hin alvarlega ranghugmynd er sú að nemendur skiptist í tvo hópa: heilbrigða og óheilbrigða – þar sem annar hópurinn hefur gagn að einstaklingsmiðaðri notkun snjalltækninnar en hinn ekki. Nemendur skiptast ekki í neina slíka hópa og það væri afturför um marga áratugi að fara að festa slíkar merkingar í sessi aftur. 3. Í þessari grein er það viðurkennt að ráðherra hafi almennar heimildir til setningar reglugerða en að „betur fari á því“ að heimila sérstaklega útgáfu reglugerðar varðandi snjalltæki. Ég hef rakið í löngu máli hvers vegna það er alls ekki rétt að það fari neitt sérstaklega vel á því. Við lifum á pólitískum umbrotatímum sem sumpart einkennast af samfélagslegum átakalínum sem tæra sundur lýðræðisleg samfélög. Að ráðherra í ríkisstjórn þyki of þröngt um sig innan ramma laganna til þess að geta framfylgt vilja sínum er ekki endilega sönnun þess að rýmka þurfi heimildir hans. Þar sem frumvarpið vísar á einum stað til „umræðu í samfélaginu“ má til dæmis geta þess að í samfélaginu þrífst einnig margvísleg andlýðræðisleg umræða og umræða um skólamál sem er í fullkominni andstöðu við grundvöll íslenska skólakerfisins. Þær raddir eru farnar að heyrast sem fullyrða að slök börn standi í vegi fyrir námi sterkari barna og að rétt sé að aðskilja samfélagshópa í íslenskum skólum. Ég þykist vita að það sé ekki ætlun núverandi ráðherra að beita þeirri heimild sem hér er beðið um með hætti sem jaðarsetur viðkvæma hópa en ráðherra með aðrar skoðanir gæti reynt eitt og annað (eins og að heimila aðeins notkun talgervla í blindraskólum eða skilyrða notkun hjálpartækja lesblindra við sérdeildir). Þær þjóðir sem mennta- og barnamálaráðherra vísaði til í hluta 2.7. hafa flestar komist að þeirri niðurstöðu, eftir margra ára yfirlegu og faglega vinnu, að treysta skólum til að nýta snjalltækni með þeim hætti sem best virkar innan viðkomandi skóla. Byggir það á margítrekuðum niðurstöðum rannsókna um að gagn- og ógagn af slíkjum tækjum sé afar aðstöðubundið. Hér á landi er farin öndverð leið. Okkur rekur undan pólitískum vindi í átt til óvandaðri ákvarðanatöku sem illa er ígrunduð og byggir alls ekki á greiningu rannsókna heldur yfirborðskenndum áróðri. Og allt er unnið á tíföldum hraða annarra skólakerfa og með engum tilkostnaði. 4. Ég hef þegar rekið hvers vegna fyrirhugað símabann er vond hugmynd sem byggir á hæpnum undirstöðum. Ég hef þó ekki enn ávarpað það sem mér finnst vera alvarlegasta angi málsins. Íslendingar, eins og aðrar þjóðir, búa við mjög alvarlega lýðræðiskreppu. Áhugi á lýðræði fer dvínandi, skautun er vaxandi og umræða um stjórnmál er yfirborðskennd og átakamiðuð. Skólakerfið ber töluverða ábyrgð á lýðræðislegu uppeldi barna. Það er í mínum huga enginn vafi að það er ekki aðeins mögulegt, heldur beinlínis afar æskilegt og nánast nauðsynlegt að skólar styðji við nemendur í grunnskóla á þeirra eigin vegferð í hinu stafræna samfélagi. Hinn stafræni heimur er ekki minna raunverulegur en heimur kennslubókanna. Ef grunnskólar breyta stafrænni tilvist nemenda í fræðilegt viðfangsefni en ekki hagnýtt er skólinn að koma ábyrgð yfir á herðar foreldra og annarra aðstandenda. Það mun næstum örugglega skapa verulegan aðstöðumun og auka mismunun milli ungmenna. Ráðherra þekkir þær rannsóknir sem sýna að símabann í skólum minnkar samverustundir fjölskyldna barna á aldrinum 12-15 ára. Það er nokkurn veginn það síðasta sem börnin þurfa. Virðing fyrir skoðunum og réttindum barna hefur verið fótum troðin í símamálum undanfarin misseri. Ég man í svipinn ekki eftir öðru máli sem byggt hefur á jafn lítilli virðingu fyrir raunverulegu lýðræði. Notuð eru skrauthvörf og „bann“ er kallað „frí“ og gerðar eru kannanir á skoðunum nemenda og þeim veitt rödd – en niðurstaðan er ákveðin fyrirfram og andstaða nemenda er skýrð með því að þeir skilji ekki eða viti ekki betur. Ég er þvert á móti sannfærður um það að fáir vita betur um þessi mál en einmitt nemendur. Lýðræðislegur réttur er eitthvað sem engan veginn er sjálfgefið að fólk berjist fyrir. Nú styttist í 50 ára afmæli kvennafrís og samstarfskona mín minntist þess á dögunum hvernig móðir hennar fussaði og sveiaði yfir þessu tiltæki kynsystra sinna. Hún sá enga ástæðu til að vera með þessi leiðindi vegna ólíkrar stöðu kynjanna í íslensku samfélagi. Á sama hátt eru nemendur í íslenskum skólum almennt í mjög góðum tengslum við kennara sína og upplifa gagnkvæma virðingu. Í slíku umhverfi er ekki ólíklegt að nemendur séu ögn seinþreyttir til vandræðna. Auðvitað vilja sumir nemendur í skólum vera án síma. Það er frábært. Þá stendur upp á okkur öll að finna leiðir til að greiða götu slíks nemanda upp menntaveginn. En það er mikill munur á því að taka ákvarðanir fyrir sjálfan sig eða neyða alla aðra til að vera eins. Símabönn hafa stundum verið innleidd og framkvæmd með hætti sem okkur er öllum algerlega ljóst að jaðrar við brot á grundvallarrétti nemenda. Nemanda ber ekki skylda til þess að afhenda skólanum eigur sínar til varðveislu. Það er hvorki hægt að fara fram á það að nemandi láti af hendi síma né úr né nokkuð annað sem nemandinn á. Almennt símabann mun mjög hratt lenda á vegg þegar nemendur láta reyna á þennan rétt sinn. Það má auðvitað setja reglur um að símar megi ekki sjást í íslenskum skólum. Um það er þrennt að segja: Í fyrsta lagi skapar það ólýðræðislegt andrúmsloft sem grefur undan trausti og setur kennara og nemendur í fáránlega aðstöðu (af engu skynsamlegu tilefni). Í öðru lagi þjálfast nemendur í undirferli og óheilbrigðri símanotkun. Þau ríki sem innleitt hafa ströng símabönn hafa nánast öll reynst ófær um að framfylgja þeim og nemendur fara oft og ítrekað í símann. Til dæmis í því skyni að stunda stafrænt einelti inni í heimi sem skólinn er búinn að gefa skýr skilaboð um að komi honum ekki við. Í þriðja lagi mun reyna á yfirráð skóla yfir nemendum sem sannarlega eru í eigin frítíma. Skóli getur aðeins sett reglur um símanotkun í húsnæði skólans. Nemandi sem er í frímínútum eða hádegishléi getur hæglega rölt út fyrir skólalóðina og gert það sem hann vill. Það getur meðal annars leitt til þess að nemendur sleppi því að borða til þess að geta hangið í símanum. Snjallsímar nemenda tengjast með beinum hætti flestum grundvallarréttindum þeirra. Ekki aðeins rétt til ákvarðana um eigið líf. Bann við samskiptamiðlum snertir tjáningarfrelsið og bann við snjallúrum eða -símum snertir eignarétt. Ef skólar eiga í raun að vera lýðræðislegar vöggustofur samfélagsins þýðir ekki að láta sem skoðanir nemenda skipti ekki máli. Sérstaklega ekki í máli þar sem náin skoðun skynseminnar leiðir í ljós að bann er misheppnuð leið. Ég vil hrósa Karítas Leu Kristjánsdóttur, nemanda í Foldaskóla í Reykjavík, fyrir umsögn sína um málið. Það er gott að nemandi hafi kjark til þess að standa upp og láta rödd sína heyrast. Ég skora á mennta- og barnamálaráðherra að hlusta á Karítas og hugleiða um leið hvers vegna óskir annarra, blandaðar óteljandi fordómum fullorðinna um tækjanotkun ungs fólks, eigi að trompa ráðstöfunarrétt hennar til að hafa áhrif á eigið líf og nám. Ljóst er að skjánotkun, allt að fimm tímum yfir skóladaginn, hefur jákvæð áhrif á námsárangur (líka notkun eigin tækja). Við vitum auðvitað einnig að börn sem mest hanga í símanum yfir skóladaginn eru í verstri stöðu. Þau upplifa sig afrækt, einangruð og ná minni árangri. Þegar ég hóf kennslu voru þetta börnin sem mest horfðu út um gluggann á skólastofunni. Það var aldrei lausn á þeim vanda að gefa ráðherra reglugerðarvald til að láta múra upp í gluggana. 5. Þessi hluti afhjúpar það að ekkert raunverulegt samráð hefur átt sér stað. Þrípunkturinn er vanræðaleg áminning um það. 6. Þessi fullyrðing: „Frumvarpið mun stuðla að verulegum samfélagslegum ávinningi í formi bættrar einbeitingar og vellíðan nemenda og skýrari reglna innan skólasamfélagsins.“ er ekki boðleg. Lokaorð Við höfum verið hér fyrr. Ráðherra lofar stórkostlegri uppskeru sem hann getur engan veginn staðið við. Okkur var fyrir áratug lofað því að hér myndi stærsti hluti barna ná mjög góðum árangri í lestri árið 2018. Sett voru mælanleg markmið og fjármunum ausið í visitasíur og lestrarsamninga. Ástandið versnaði stórkostlega í kjölfarið. Það skorti allt raunsæi í vegferðina. Það mál var miklu betur unnið en þetta. Það er ekkert við þessa lagabreytingu sem kemur að gagni. Þetta er óábyrg framganga, uppblásið oflof um aðgerð sem skila mun minni árangri en óbreytt ástand. Skólar hafa ekki verið í nokkrum vandræðum með að setja símabönn. Það sem skólar hafa kallað eftir er stuðningur ráðuneytis við námsefnisgerð, leiðbeiningar og fagleg viðmið. Hjálp sem er nógu fjölbreytt til að koma að gangi í þeim ólíku aðstæðum sem til staðar eru í hinu fjölbreytta samfélagi grunnskólans. Slík vinna kostar ígrundun, vandvirkni – og peninga. Það segir margt þegar ráðherra fullyrðir að hann muni, fái hann tiltekna heimild, leysa flókinn vanda án þess að það kosti nokkuð. Í stað stuðnings fá skólar hlutverk við að fylgja eftir illa ígrunduðu, óskýru vinnulagi stjórnvalda sem enn virðast ekki átta sig á því hve fúsk er landlægt á Íslandi. Samræmt, miðlægt fúsk – er samt fúsk. Þetta mál ætti að draga til baka og hefja þess í stað vinnu sem samboðin er skólakerfinu okkar og grundvallast á raunsæi og virðingu fyrir verkefninu. Ragnar Þór Pétursson Kennari
- #5Heimili og skóli-landssamtök foreldra
Umsögn Heimili og skóla - landssamtaka foreldra um frumvarp til laga um breytingu á lögum um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla Heimili og skóli, landssamtök foreldra, fagnar frumvarpinu sem miðar að því að styrkja og bæta stjórn skólamála á Íslandi. Með því að veita ráðherra auknar reglugerðarheimildir getur frumvarpið stuðlað að samræmdari og markvissari framkvæmd skólastarfs á landsvísu, sem er mikilvægur þáttur í að tryggja jafnrétti og vandaða menntun fyrir öll börn, óháð staðsetningu eða öðrum félagslegum aðstæðum. Við teljum að frumvarpið sé mikilvægt skref í rétta átt, þar sem þ… Lesa alla
Umsögn Heimili og skóla - landssamtaka foreldra um frumvarp til laga um breytingu á lögum um leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla Heimili og skóli, landssamtök foreldra, fagnar frumvarpinu sem miðar að því að styrkja og bæta stjórn skólamála á Íslandi. Með því að veita ráðherra auknar reglugerðarheimildir getur frumvarpið stuðlað að samræmdari og markvissari framkvæmd skólastarfs á landsvísu, sem er mikilvægur þáttur í að tryggja jafnrétti og vandaða menntun fyrir öll börn, óháð staðsetningu eða öðrum félagslegum aðstæðum. Við teljum að frumvarpið sé mikilvægt skref í rétta átt, þar sem það opnar fyrir aðgerðir sem geta styrkt menntakerfið og gert það aðgengilegra og skilvirkara fyrir allar fjölskyldur. Á sama tíma viljum við árétta að það er mikilvægt að þessar nýju heimildir verði nýttar á ábyrgan hátt, með fullu samráði við alla hagsmunaaðila í skólasamfélaginu, þar með talið foreldra, nemendur og starfsfólk skóla. Símar og snjalltæki í skólastarfi Í ljósi sívaxandi tækninýtingar og sífellt aukinnar notkunar snjalltækja í daglegu lífi barna, er það mikilvægt að reglur varðandi þessi tæki séu skýrar og bæði stuðli að námslegum ávinningi og vernd barna gegn óæskilegri notkun. Þetta frumvarp býður upp á möguleika til að móta stefnu sem getur verið sveigjanleg og tæklar tækninýjungar á árangursríkan og ábyrgan hátt, þannig að snjalltæki geti orðið verkfæri í námi, fremur en truflanir. Það er mikilvægt að tæknilausnir verði notaðar á þann hátt að þær stuðli að lærdómi og félagslegum þroska, en ekki á kostnað þess. Við viljum einnig árétta að tæknivæðing skólastarfsins kallar á aukna fræðslu fyrir starfsfólk skóla og foreldra, svo þau geti nýtt þessa tækni á sem bestan hátt í námi og leiðsögn. Jafnframt þarf að tryggja að foreldrar hafi skýrar upplýsingar um þær reglur sem gilda um símafrí og hvernig snjalltæki eru nýtt í skólastarfinu. Foreldrar eru lykilaðilar í að framfylgja þessum reglum í samstarfi við skólana. Við viljum leggja áherslu á að við mótun og útfærslu nýrra reglna þurfi að vera sterk stefna um samstarf og samráð. Reglur og fyrirmæli sem ráðherra setur þurfa að byggjast á rannsóknar- og vísindalegum grunni, sem og reynslu þeirra sem koma að degi barna. Mikilvægt er að allar reglur séu ekki aðeins framkvæmanlegar, heldur að þær styrki einnig það skólastarf sem fer fram, til hagsbóta fyrir börn, foreldra og starfsfólk skóla. Einnig viljum við leggja áherslu á að með auknum heimildum ráðherra fylgi viðeigandi fjárveiting til að tryggja að nýjar reglur og stefna verði raunverulega framkvæmd. Það þarf að tryggja að breytingar á stjórnsýslu og reglugerðum komi ekki í veg fyrir það sem þegar hefur verið reynt og virkar í skólastarfinu, heldur að þær bæti það sem þarf að bæta og styrki það sem vel hefur gengið. Heimili og skóli fagnar frumvarpinu og vonar að það verði unnið áfram með skýrum áherslum á samráð, vandaða stefnumótun og raunverulega framkvæmd. Við teljum að með ábyrgri og markvissri vinnu geti þetta frumvarp orðið grundvöllur að betra og jafnara menntakerfi fyrir öll börn á Íslandi, þar sem tæknivæðing, símar og snjalltæki fái viðeigandi reglur til að tryggja velferð barna. Með kveðju, Sigurjón Már Fox Gunnarsson Heimili og skóli – landssamtök foreldra
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.