Drög að frumvarpi til laga um brottfararstöð
Lagt er til að sett verði lög um vistun útlendinga á brottfararstöð. Þá verði innleidd skimunarreglugerð sem kveði á um skimun ríkisborgara þriðju ríkja á ytri landamærum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-193/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 16. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 230)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
- #1Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar
- #2Bjarkarhlíð - miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
Um skimun og þjónustu viðkvæmra einstaklinga. Bjarkarhlíð fagnar yfirlýstum áformum dómsmálaráðherra um að leggja sérstaka áherslu á mansalsmál og skipulagða brotastarfsemi. Bjarkarhlíð hefur væntingar til þess að þessi áhersla skili sér í framkvæmd, bæði þegar kemur að skimun einstaklinga á landamærum og aðbúnaði í móttökumiðstöðvum og brottvísunarbúðum. Ljóst er að stór hluti brotaþola mansals er af erlendu bergi brotinn og lifir í mörgum tilfellum utan hefðbundinna kerfa. Ofbeldi í nánum samböndum er að sama skapi til staðar í öllum samfélögum og eru flóttafólk og farandfólk þar ekki… Lesa alla
Um skimun og þjónustu viðkvæmra einstaklinga. Bjarkarhlíð fagnar yfirlýstum áformum dómsmálaráðherra um að leggja sérstaka áherslu á mansalsmál og skipulagða brotastarfsemi. Bjarkarhlíð hefur væntingar til þess að þessi áhersla skili sér í framkvæmd, bæði þegar kemur að skimun einstaklinga á landamærum og aðbúnaði í móttökumiðstöðvum og brottvísunarbúðum. Ljóst er að stór hluti brotaþola mansals er af erlendu bergi brotinn og lifir í mörgum tilfellum utan hefðbundinna kerfa. Ofbeldi í nánum samböndum er að sama skapi til staðar í öllum samfélögum og eru flóttafólk og farandfólk þar ekki undanskilin. Mikilvægt er að tryggja að skimun á fólki á landamærum og í móttökumiðstöðvum sé framkvæmd af þjálfuðu og óháðu fagfólki sem hefur færni í að greina viðkvæma stöðu einstaklinga, þar á meðal mögulega þolendur ofbeldis og mansals. Þjálfun starfsfólks þarf að fela í sér skýra verkferla og viðbragðsáætlanir ef grunur vaknar um ofbeldi eða mansal, auk þess sem skilgreina þarf hvaða úrræði taka við og hver ber ábyrgð á næstu skrefum. Eitt af lykilatriðunum er að tryggja að þeir einstaklingar sem stöðvaðir eru á flugvelli eða við landamæri, og ekki geta sannað á sér deili eða eru hugsanlega þolendur mansals, séu ekki vistaðir í lokuðu úrræði. Þeir skulu þess í stað hafa aðgang að móttökumiðstöð í Reykjavík, þar sem hægt er að veita samræmda þjónustu í samstarfi við Bjarkarhlíð og aðra viðeigandi aðila. Reynslan sýnir að ofbeldi innan móttökumiðstöðva og brottvísunarbúða getur átt sér stað, og því er nauðsynlegt að starfsfólk sem þar starfar sé vakandi fyrir einkennum ofbeldis. Viðbrögð við grun um ofbeldi verða að vera skýr og úrræði til staðar. Það má ekki vera svo að hindranir, svo sem mannekla eða úrræðaleysi, komi í veg fyrir að gripið sé til aðgerða. Að loka brotaþola og geranda inni á sama stað getur verið lífshættulegt og skapað óbærilegt ástand fyrir brotaþola. Markmið skimunar þarf fyrst og fremst að vera að aðstoða einstaklinga í viðkvæmri stöðu fremur en að hraða brottvísun. Þá vakna spurningar um ábyrgð íslenska ríkisins á vernd þeirra sem kunna að vera þolendur ofbeldis eða mansals. Samkvæmt 27. gr. skimunarreglugerðar Evrópusambandsins (2024/1356) skulu aðildarríki tryggja að viðeigandi innlendar og alþjóðlegar stofnanir, sem og frjáls félagasamtök, geti tekið þátt í eftirliti með framkvæmd skimunar. Þar sem Bjarkarhlíð fer með hlutverk samhæfingaraðila mansalsmála á Íslandi telur miðstöðin mikilvægt að fá aðkomu að þeirri vinnu. Þá ber að tryggja að rannsókn á mögulegum brotum á grundvallarréttindum fari fram og að kvörtunum sé sinnt á skjótan og viðeigandi hátt, auk þess sem skýrt þarf að liggja fyrir hvert einstaklingar geti leitað með mál sín. Í þessu samhengi vakna eftirfarandi spurningar: • Hver skilgreinir sérstaklega viðkvæma stöðu einstaklinga? • Hver ber ábyrgð á framkvæmd skimunar? • Er unnið eftir samræmdu opinberu tilvísunarkerfi vegna mansalsmála (National Referral Mechanism)? Bjarkarhlíð óskar eftir því að fá að koma formlega að málaflokknum og starfa í nánu samstarfi við þjónustuaðila sem sinna þessum verkefnum. Miðstöðin býr yfir sérþekkingu og reynslu sem getur verið grundvallaratriði í vernd og stuðningi við þolendur. Hjá Bjarkarhlíð starfa sérfræðingar í mansalsmálum sem sinna þjónustu og stuðningi við þolendur ofbeldis og mansals. Mikilvægt er að sú þekking og þau úrræði sem Bjarkarhlíð hefur upp á að bjóða verði nýtt til að tryggja heildstæða, samræmda og mannúðlega þjónustu. f.h. Bjarkahlíðar Jenný Kristín Valberg Teymisstýra
- #3Samband sveitarfél Suðurnesjum
Meðfylgjandi er ályktun aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, sem var samþykkt á aðalfundi S.S.S. þann 4.október s.l. Virðingarfyllst F.h. Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum Berglind Kristinsdóttir/framkvæmdastjóri.
- #4Stígamót
Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Stígamóta og Kvennaathvarfsins.
- #5Unicef Ísland
Meðfylgjandi er umsögn landsnefndar UNICEF á Íslandi. Virðingarfyllst, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.