Drög að frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum (framleiðendafélög)
Atvinnuvegaráðuneyti kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á búvörulögum, nr. 99/1993.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-191/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 28 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 374)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (28)
- #1Jón Frímann Jónsson
Tryggja verður samkeppni á þessum markaði. Þá sérstaklega á þann hátt að takmarka verður sameiningar fyrirtækja og afnema þær sameiningar fyrirtækja sem hafa átt sér stað nú þegar undir fyrri lögum. Þetta þarf að gera til þess að tryggja hagsmuni bænda fyrst og síðan hagsmuni neytenda. Tillögur um annað er að halda íslenskum bændum í fátækt, slæmri aðstöðu til þess að selja sína vörur áfram til sláturhúsa og annara framleiðanda. Afurðarstöðvar ættu ekki að vera með neina undanþágu frá samkeppnislögum. Alveg óháð því hvaða framleiðslu á kjöti er verið að ræða um. Afnema þarf einokun á mjólkurf… Lesa alla
Tryggja verður samkeppni á þessum markaði. Þá sérstaklega á þann hátt að takmarka verður sameiningar fyrirtækja og afnema þær sameiningar fyrirtækja sem hafa átt sér stað nú þegar undir fyrri lögum. Þetta þarf að gera til þess að tryggja hagsmuni bænda fyrst og síðan hagsmuni neytenda. Tillögur um annað er að halda íslenskum bændum í fátækt, slæmri aðstöðu til þess að selja sína vörur áfram til sláturhúsa og annara framleiðanda. Afurðarstöðvar ættu ekki að vera með neina undanþágu frá samkeppnislögum. Alveg óháð því hvaða framleiðslu á kjöti er verið að ræða um. Afnema þarf einokun á mjólkurframleiðslu á Íslandi með öllu. Einokun á mjólkurframleiðslu á Íslandi hefur verið mjög skaðleg efnahagslega hjá þeim bændum sem framleiða mjólk og neyðast til þess að selja sína framleiðslu til Mjólkursamsölunnar. Allir aðrir á Íslandi neyðast til þess að kaupa af Mjólkursamsölunni á því verði sem þeir ákveða, sem er langt fyrir ofan markaðsverð á ýmsum vöruflokkum. Auk þess sem Mjólkursamsalan er með verndartolla í þeim vöruflokkum sem þar eru framleiddir. Einokun í hvaða formi sem er, er aldrei neitt annað en skaðleg þeim sem framleiða vöruna og síðan þeirra sem þurfa að neyta hennar. Það er engin réttlæting á því að setja einokun í lög á Íslandi og slíkt ætti aldrei að gera. Það er því nauðsynlegt að afnema einokun á Íslandi í íslenskum landbúnaði, sem gerir ekki annað en að hækka verðlag til neytenda og minnka tekjur bænda sem framleiða vöruna. Ég er eingöngu neytandi á þessum markaði og finn fyrir þessu sem slíkur. Þá sérstaklega stöðugt hækkandi verðlagi á markaði sem er án samkeppni.
- #2Jódís Helga Káradóttir
Í samráðsgátt liggur frumvarp til breytinga á búvörulögum sem ætlað er að samræma heimildir framleiðenda til samstarfs við almennar reglur samkeppnisréttar. Hugmyndin er í sjálfu sér göfug, að skapa jafnvægi milli samkeppni og samvinnu í landbúnaði. En þegar í frumvarpið er rýnt út frá sjónarhóli framleiðenda, vakna alvarlegar spurningar. Hæstiréttur Íslands staðfesti 21. maí síðastliðinn (mál nr. 56/2024) að breytingar á búvörulögum með lögum nr. 30/2024, hefðu verið löglega samþykktar, þótt þær væru umdeildar. Dómurinn undirstrikar svigrúm Alþingis til stefnumótunar. Frumvarpsdrög atvinnuveg… Lesa alla
Í samráðsgátt liggur frumvarp til breytinga á búvörulögum sem ætlað er að samræma heimildir framleiðenda til samstarfs við almennar reglur samkeppnisréttar. Hugmyndin er í sjálfu sér göfug, að skapa jafnvægi milli samkeppni og samvinnu í landbúnaði. En þegar í frumvarpið er rýnt út frá sjónarhóli framleiðenda, vakna alvarlegar spurningar. Hæstiréttur Íslands staðfesti 21. maí síðastliðinn (mál nr. 56/2024) að breytingar á búvörulögum með lögum nr. 30/2024, hefðu verið löglega samþykktar, þótt þær væru umdeildar. Dómurinn undirstrikar svigrúm Alþingis til stefnumótunar. Frumvarpsdrög atvinnuvegaráðherra fer út fyrir það sem má telja skynsamlega stefnu, sé litið til innlendra framleiðenda og bænda. Fyrst ber að nefna ákvæðið um brottfall 71. gr. búvörulaga árið 2027. Það felur í sér að undanþága mjólkurframleiðenda frá samkeppnislögum verður afnumin, sem þýðir í einföldu máli að komið sé í veg fyrir nauðsynlega hagræðingu. Í sveitum landsins þar sem mjólkurbú eru burðarás atvinnulífsins er þetta ekki aðeins lagabreyting heldur bein ógn við byggðafestu. Ef mjólkurafurðir fá ekki örugga móttöku er hætt við að kúabú leggist af, með tilheyrandi fólksfækkun og þjónustuskerðingu. Þá má nefna að viðmiðið um 40% markaðshlutdeild sem virkjar móttökuskyldu er varla raunhæft. Í vissum landshlutum getur fyrirtæki með 30–39% markaðshlutdeild í reynd ráðið öllu. „Raunkostnaðar“-gjaldtaka sem frumvarpið byggir á getur jafnframt reynst ósanngjörn í afskekktum byggðum þar sem flutningskostnaður er margfaldur. Þannig mun reglan, sem ætlað er að tryggja jafnræði, að líkindu verða til óhægræðis fyrir bæði bændur og afurðastöðvar. Sú krafa að framleiðsluhluti afurðastöðva skuli vera fjárhagslega og stjórnarlega aðskilinn kann að virðast eðlilegt á blaði, en er í reynd óraunhæf krafa í afurðarstöðvum þar sem sama fólk sinnir jafnan stjórn, fjármálum og daglegum rekstri. Slíkur aðskilnaður kallar á tvöfalda stjórnsýslu, aukinn kostnað og óþarfa regluverk sem dregur úr skilvirkni án þess að bæta stöðu bænda. Með þessu er í raun verið að leggja óhóflegar byrðar á afurðastöðvar sem gegna lykilhlutverki í landbúnaðarhéruðum. Loks má minna á að samningsfrelsið, ein helsta meginregla íslensks samningaréttar, er hér skert með tvennum hætti. Samkeppniseftirlitið fær vald til að úrskurða samninga ólögmæta eftir á, á meðan fyrirtækjum er gert skylt að taka við afurðum. Þetta er mikið valdframsal til eftirlitsstofnunar framkvæmdarvaldsins sem verður að meta í ljósi meðalhófs og jafnræðis. Frumvarpið er kynnt sem lausn, en sé litið á það út frá sjónarhorni innlendrar búvöruframleiðslu, er því miður verið að veikja samkeppnisstöðu þeirra. Þannig verður niðurstaðan því miður sú að hvorki neytendur né bændur hagnast, heldur aðeins innflytjendur erlendra búvara.
- #3Ragnar Árnason
Umsögn fylgir
- #4Dalabyggð
Meðfylgjandi er umsögn frá Dalabyggð.
- #5Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Meðfylgjandi er umsögn frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.