Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga (takmörk á beitingu nauðungar)
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga (takmörk á beitingu nauðungar).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-190/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 24. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 319)
Niðurstöður samráðs (3. nóvember 2025)
Að loknu umsagnarferli í samráðsgátt fóru frumvarpsdrögin í frekari vinnslu í ráðuneytinu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Hildur Þórarinsdóttir
Athugasemdir frá stjórn Félags íslenskra öldrunarlækna (FÍÖ) við frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauðungar). Stjórn Félags íslenskra öldrunarlækna fagnar þeim breytingum sem komnar eru fram á frumvarpi heilbrigðisráðherra til laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 . Stjórn FÍÖ telur að frumvarpið í núverandi mynd sé til framfara fyrir okkar skjólstæðinga með viðbót texta í 27. gr. c.: „ Undir nauðung falla ekki öryggisráðstafanir sem beitt er á hjúkrunarheimilum- eða dvalarheimilum og í sérstökum hjúkrunarrýmum sjúkrahúsa og e… Lesa alla
Athugasemdir frá stjórn Félags íslenskra öldrunarlækna (FÍÖ) við frumvarpi til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauðungar). Stjórn Félags íslenskra öldrunarlækna fagnar þeim breytingum sem komnar eru fram á frumvarpi heilbrigðisráðherra til laga um réttindi sjúklinga nr. 74/1997 . Stjórn FÍÖ telur að frumvarpið í núverandi mynd sé til framfara fyrir okkar skjólstæðinga með viðbót texta í 27. gr. c.: „ Undir nauðung falla ekki öryggisráðstafanir sem beitt er á hjúkrunarheimilum- eða dvalarheimilum og í sérstökum hjúkrunarrýmum sjúkrahúsa og er ætlað að tryggja öryggi og vellíðan sjúklings.“ (27. gr. c.) Við teljum einnig að viðbót með skilgreiningu á líkamlegri leiðsögn sem beita má í heilbrigðisþjónustu án þess að teljist nauðungar til bóta. Auk þess fagnar stjórnin því að öldrunarlæknir verði nú einn þeirra sem sitji í sérfræðingsteymi því sem ráðherra mun skipa um beitingu nauðungar( 27.gr j.). Stjórn FÍÖ vil þó benda á nokkur atriði. 1. Ef til vill þarf að skilgreina betur í reglugerð hvaða öryggisráðstafanir á hjúkrunarheimilum og sjúkrastofnunum falla ekki undir nauðung. 2. Koma þarf fram hvernig lögin ætli að túlka lyfjagjafir til þeirra sem eru með einkenni heilabilunar og geta ekki sjálfir gefið samþykki sitt (duldar lyfjagjafir) þegar þeir einstaklingar eru ekki sviptir sjálfræði inn á stofnun til að bæta líðan, heilsu og öryggi. Mikilvægt að hafa í huga að fólk með heilabilun (eða aðra hrörnunarsjúkdóma í heila) er sjaldnast sjálfræðissvipt hvort sem er á sjúkrahúsum eða á hjúkrunarheimilum. Í mörgum tilfellum er sjúklingurinn samt ekki hæfur til að veita upplýst samþykki fyrir ráðstöfunum eða lyfjagjöf sem getur þurft að beita samstundis eða með mjög stuttum fyrirvara til að tryggja öryggi sjúklings og/eða annarra í nánasta umhverfi. 3. Þegar ráðherra setur reglugerð um þessi lög teljum við að það þurfi að vera mjög skýrt hvaða "annar heilbrigðisstarfsmaður" geti ákveðið að víkja frá banni um beitingu nauðungar. 4. Viðbót málsgreinar í 3.gr laganna Samþykki fyrir meðferð gæti haft mikil og íþyngjandi áhrif á starfshætti okkar með orðalaginu: „Þá skal heilbrigðisstarfsmaður ávallt upplýsa sjúkling um áhrif ólíkra meðferða og aukaverkanir séu þær fyrir hendi.“ ef okkur er ætlað að greina sjúkling og/eða aðstandenda frá öllum þeim lyfjum sem í boði eru til meðhöndlunar sjúkdóms eða sjúkdómsástands, aukaverkunum þeirra og skrá valið í sjúkraskrá viðkomandi. Með vinsemd og virðingu Stjórn Félags íslenska öldrunarlækna Hildur Þórarinsdóttir formaður Guðlaug Þórsdóttir ritari Þórhildur Kristinsdóttir gjaldkeri
- #2Landspítali
Umsögn Landspítala
- #3Geðhjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Geðhjálpar.
- #4Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn Hrafnistu um málið.
- #5Félagsráðgjafafélag Íslands
Í viðhengi er umsögn Félagsráðgjafafélags Íslands
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.