Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-189/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009

Áformað er að bæta laga- og regluverk um framkvæmd, umgjörð og skilyrði stuðnings við nýsköpunarfyrirtæki.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember); 158. þing (áætlað: október).

Áformað er að stuðla að markvissum stuðningi við nýsköpunarfyrirtæki. Horft verður til tillagna OECD og AGS. Þá er markmiðið að skýra og skerpa á ákvæðum, s.s. að því er varðar hvaða kostnaður teljist sannanlega rannsóknar- og þróunarkostnaður, eignarhald (innlent/erlent) sem og eignarhald hugverkaréttinda. Horft verður til sjónarmiða um viðskipti milli tengdra aðila og reglna/skilgreininga að því er varðar félög í fjárhagsvanda. Þá verður horft til EES réttar um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki (GBER undanþágureglugerðin). Endurskoðun laganna verður áfangaskipt og verður í þessum áfanga unnið að bættri lagaumgjörð um framkvæmd, umgjörð og skilyrði stuðningsins.

S-189/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. sep. 2025 – 13. okt. 2025· 3 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009

Áformað er að bæta laga- og regluverk um framkvæmd, umgjörð og skilyrði stuðnings við nýsköpunarfyrirtæki.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-189/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 296)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (26. ágúst 2026)

Þrjár umsagnir komu fram um áformin og var grein gerð fyrir þeim í drögum að frumvarpi sem birt var í samráðsgátt í máli nr. S-218/2025. Það frumvarp var lagt fram á Alþingi 25. nóvember 2025 sem 296. mál á 157. löggjafarþingi, þskj. 411, og varð að lögum nr. 27/2026.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-189/2025: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki nr. 152/2009 · Alviti